Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2014, Qupperneq 18
18 Fréttir Páskablað 15.–22. apríl 2014
Íslenskur kalkúnn – gæði í yfir 60 ár
Uppskriftir og
eldunarleiðbeiningar
á kalkunn.is
Hollusta
með hækkandi sól
A
T
A
R
N
A
Reykjabúið Mosfellsbæ
kalkunn.is
Baugur og tengdir
aðilar tóku Byr yfir
n Stærstu skuldarnir n Glitnir með veð í bréfum sjóðsins og væntanlegum arði
B
augur og tengdir aðilar tóku
sparisjóðinn Byr nánast
yfir að hluta í aðdraganda
falls íslensku bankanna.
Félög tengd Baugi urðu
stærstu skuldarar sparisjóðsins í
aðdraganda hrunsins. Um þetta er
fjallað í skýrslunni um sparisjóðina
sem gerð var opinber í síðustu viku.
Stórir skuldarar í Byr voru meðal
annars Baugur, Hannes Smárason,
Magnús Ármann og Þorsteinn M.
Jónsson og félög þeim tengd. Baug-
ur var einn stærsti hluthafi Glitnis í
gegnum FL Group á þessum tíma og
hafa birst upplýsingar opinberlega
sem benda til að Jón Ásgeir Jóhann-
esson, aðaleigandi Baugs, hafi verið
skuggastjórnandi í Glitni.
Upplýsingarnar sýna ágætlega
hvernig sparisjóðirnir urðu hluti
af viðskiptablokkunum sem stýrðu
öðrum fjármálafyrirtækjum, í þessu
tilfelli Glitni. Á sama tíma voru hags-
munir nokkurra stærstu sparisjóða
landsins tvinnaðar saman við Kaup-
þing í gegnum eignarhaldsfélagið
Kistu. Í raun má segja að sá eini af
stóru viðskiptabönkunum þremur
sem ekki var orðinn tengdur beint
við einhvern sparisjóð í gegnum
eignarhald í aðra hvora áttina hafi
verið Landsbanki Íslands.
Rúm 20 prósent
af eiginfjárgrunni
Í skýrslunni um sparisjóðina segir
til dæmis að í árslok 2008 hafi skuld-
bindingar Baugs og tengdra aðila
verið orðnar rúm 20 prósent af eign-
fjárgrunni sparisjóðsins. Áhætta
Byrs af lánveitingum til Baugs
og tengdra aðila var því
mikil. „Í árslok 2008
var skuldbinding
Baugs Group hf.
og tengdra aðila stærsta áhættu-
skuldbinding Byrs sparisjóðs og
nam 20,8% af eiginfjárgrunni spari-
sjóðsins. Á þessum tíma samanstóð
lánahópurinn af Baugi Group hf., FL
Group hf., Landic Ísland ehf., Hög-
um ehf., Fjárfestingafélaginu Gaumi
ehf. og Þyrpingu ehf. Stærstu eins-
töku skuldbindingarnar voru við
Baug Group hf. og FL Group hf.“
Glitnir hafði meðal annars fjár-
magnað stofnfjáraukninguna í Byr
í lok árs 2007 sem gerði með-
al annars aðilum tengdum FL
Group kleift að halda hlut sín-
um í sparisjóðnum án þess að
þynnast út. Lánin fyrir stofn-
fjárbréfunum voru með veði
í bréfunum sem seld voru.
Þannig var Glitnir einnig orðinn
stærsti óbeini hluthafinn í Byr: Ef
komið hefði til þess að eigendur
Byrs hefðu ekki getað greitt af lán-
um sínum við Glitni hefði bankinn
getað tekið bréfin í sjóðnum af þeim.
Afskrifuð útlán
Í skýrslunni um sparisjóðina er
vísað til þess að eftir
hrun hafi ytri endur-
skoðun á bókhaldi
Byrs leitt til þeirr-
ar niðurstöðu að
afskrifa þyrfti út-
lán til Baugs
og tengdra
aðila, auk
annarra
skuldara í Byr. Orðrétt segir í skýrsl-
unni:
„Ytri endurskoðandi spari-
sjóðsins hjá KPMG fór yfir af-
skriftareikning útlána samkvæmt
endurskoðunarskýrslum á árunum
2005–2008. Í mars 2009 skilaði KPMG
sérstakri skýrslu um skoðun á útlán-
um Byrs sparisjóðs. Helstu niður-
stöður voru þær að fjármálakrepp-
an hefði haft slæm áhrif á útlánasafn
sparisjóðsins og væri ljóst að stór-
ar fjárhæðir myndu tapast. Stærstu
fyrirsjáanlegu útlánatöpin tengd-
ust Baugi Group hf., Stoðum hf.
(áður FL Group hf.), Runna-
félögunum, Hansa ehf. og
eignarhaldsfélögunum
sem keyptu hluti í Spari-
sjóðabanka Íslands
hf. (þá Icebank hf.)
haustið 2007.“
Ætluð hluta
félagavæðing
Eignarhald og
tengsl Byrs og
Glitnis byggðust
meðal annars
á því að til
stóð að breyta
sparisjóðnum í
hlutafélag. Um-
rædd stofnfjár-
aukning, sem rætt var um hér að
ofan, var meðal annars liður í þessari
viðleitni.
Um þetta segir í skýrslunni:
„Stofnfjáraukningin var einnig liður
í fyrirhugaðri breytingu á rekstrar-
formi Byrs sparisjóðs í hlutafélag.
Þannig var á stjórnarfundi spari-
sjóðsins 18. október 2007 rætt um
„drög að samningi við Glitni um
ráðgjöf, sölutryggingu, fjármögnun
og útboð í tengslum við breytingu
á rekstrarformi BYRS sparisjóðs“. Í
samningnum er tiltekið að Byr hafi
áætlað að auka stofnfé sparisjóðsins
fyrir árslok 2007 þannig að það yrði
allt að 30 milljarðar króna. Glitn-
ir banki tók að sér að sölutryggja
fyrirhugað stofnfjárútboð og
tryggja stofnfjáreigendum
Byrs fjármögnun til þátt-
töku í útboðinu. Þá kvað
samningurinn einnig á
um ráðgjöf Glitnis banka
við framkvæmd hugsan-
legra breytinga á rekstrar-
formi Byrs sparisjóðs og
átti þóknun Glitnis að vera
að lágmarki 240 milljónir
króna.“
Ekki meðvitaður
um brot
Fjármunirnir sem
fengust í stofnfjár-
aukningu Byrs voru
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is „Arðgreiðslan
ákvaðst náttúru-
lega út frá arðsemi þess
rekstrarárs sem þetta er
gert en rekstrarárið hafði
verið mjög gott.
Tengslin við Byr Tengsl
Glitnis við Byr voru orðin veru-
leg við fall íslensku bankanna
en Jón Ásgeir Jóhannesson,
aðaleigandi Baugs, hefur
oft verið sagður hafa verið
skuggastjórnandi Glitnis.