Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2014, Síða 21
Páskablað 15.–22. apríl 2014 Neytendur 21
S
júkrasjóðir stéttarfélaga
greiða út sjúkradagpen-
inga eftir sérstökum regl-
um, svo sem eftir að veik-
indaréttindi eru fullnýtt,
eða kostnað við dýrar læknisað-
gerðir erlendis. Þeir sem lenda í
langvarandi veikindum ættu að
kynna sér það nánar. En auk þess
greiða sjúkrasjóðirnir styrki vegna
forvarna og endurhæfingar, sem
flestir kannast við sem líkams-
ræktarstyrki og endurgreiðslu á
gleraugum. En það er margt fleira
sem sjóðirnir styrkja og hér á síð-
unni má sjá dæmi um hvað er
endurgreitt og hversu mikið hjá
nokkrum stéttarfélögum. Umfjöll-
un er langt frá því að vera tæmandi
og er lesendum bent á að skoða
nánar sjúkrasjóði og styrki hjá sínu
stéttarfélagi.
Sex mánaða lágmark
Í öllum tilfellum er skilyrði fyrir
greiðslum úr sjúkrasjóði að hafa
greitt í hann í ákveðinn tíma.
Þannig miðast hámarksstyrkur hjá
Eflingu í langflestum tilfellum við
að félagsgjald sex mánuðina þar á
undan sé 8.568 krónur eða meira.
Sama er uppi á teningnum hjá SFR
en þar miðast styrkirnir við starfs-
hlutfall sjóðfélaga sem þarf að vera
minnst 25%.
Í reglum um sjúkrasjóði BHM
segir að rétt eigi þeir sem greitt
hefur verið fyrir sjúkrasjóðsfram-
lag í samtals sex mánuði, þar af
samfellda þrjá mánuði áður en at-
burður sem leiðir til styrkumsókn-
ar átti sér stað. Séu iðgjöld vegna
sjóðfélaga lægri en 1.500 krónur á
mánuði á hann rétt á hálfum styrk.
Sjóðfélagi í aðildarfélagi KÍ öðl-
ast rétt til úthlutunar úr sjóðnum
eftir sex mánaða iðgjaldagreiðslur.
Varasjóður VR
Félagsmenn VR hafa aðgang að
einkasjóði, VR varasjóði, en í hann
runnu árið 2013 0,39% af heildar-
launum. Sjóðinn má nota til kaupa
á líkamsræktar-, endurhæfingar-,
sálfræði-, og læknis- og tann-
læknisþjónustu, kaupa á hjálpar-
tækjum s.s. gleraugum og heyrnar-
tækjum, vegna heilsubrests, kaupa
á líf-, slysa- og sjúkdómatrygging-
um, kaupa á orlofstengdri þjón-
ustu, vegna tómstunda barna að
18 ára aldri, námsorlofs og kaupa
á menntunarþjónustu, námsgagna
barna félagsmanns, að 18 ára
aldri og framfærslu samhliða at-
vinnuleysisbótum. Hlutfall endur-
greiðslu er því ekki skilgreint sér-
staklega fyrir hvert atriði eins og
hjá hinum stéttarfélögunum með
undantekningu um líkamsræktar-
styrki.
Sálfræðiviðtöl
Nokkur samhljómur er milli
stéttarfélaga um hvað skuli greitt
en auk þess sem hér er upp talið
má nefna að Efling býður félags-
mönnum sínum endurgreiddan
kostnað vegna greiningar á les-
blindu að hámarki 15.000 krónur.
Kennarasambandið býður 60.000
króna endurgreiðslu á aðstoð við
þyngdarstjórnun, og SFR býður
möguleika á styrk verði sjóðfélagi
fyrir launamissi vegna sérstakra
aðstæðna.
Flest stéttarfélögin niðurgreiða
kostnað við sálfræðiviðtöl, viðtöl
við geðhjúkrunarfræðinga, félags-
ráðgjafa eða fjölskylduráðgjafa og
ýmsa aðra. Lesendur eru hvattir til
að leita nánari upplýsinga hjá sínu
stéttarfélagi um hvað er endur-
greitt.
Upphæðin á við um hámarks-
styrki sem greiddir eru en oft er
aðeins greitt ákveðið hlutfall, oft
helmingur upphæðar þó hámarks-
heimild sé hærri.
Líkamsrækt
n Efling: 17.000 kr. á ári en aldrei
meira en 50% af kostnaði.
n SFR: Hámark 20.000 kr. á ári.*
n BHM: 30.000 kr. á ári.
n VR: Hámark 50.000 kr. á ári úr varasjóði.
Tannlækningar
n Efling tekur ekki þátt í tannlæknakostnaði
n SFR: Hámark 80.000 kr. eða 30%
kostnaðar umfram 80.000 kr. annað
hvert ár.*
n BHM: Hámark 200.000 kr. á ári eða
40% af heildarkostnaði yfir 75.000 kr.
n KÍ: Hámark 200.000 kr. á ári eða 70% af
kostnaði umfram 400.000 kr. á ári.
Krabbameins-
skoðun kvenna
n Efling:
4.200/6.300 kr. á ári.
n SFR: 4.200/6.300
kr. á ári.
n BHM: 4.200/6.300
kr. á ári.**
n KÍ: 6.300 kr. á ári.
Önnur krabbameinsskoðun:
n Efling: 10.000 kr. á ári.
n SFR: 10.000 kr. á ári.
n BHM: 20.000 kr. á ári.
n KÍ: 20.000–30.000 kr. á ári.
Dvöl á heilsu-
stofnun t.d.
Bláa lóninu
eða NFLÍ
n Efling: 2.000 kr. á
dag í 42 daga á ári.
n SFR: 2.000 kr. á dag
í 20 daga á ári.*
n BHM: 50.000 kr. á tveggja ára fresti.
n KÍ: 5.000 kr. á dag í 28 daga á ári.
Hjartavernd –
áhættumat
n Efling: 10.000 kr. á
ári eða 50%.
n SFR: 16.000 kr. á ári.
n BHM: 20.000 kr.
á ári.**
n KÍ: 20.900 kr. á ári.
Sálfræðingar og ráðgjafar
n Efling: 6.000 kr. eða 50% 15
sinnum á ári.
n SFR: 5.000 kr. 15 sinnum á ári.*
n BHM: 65.000 kr. á ári.**
n KÍ: 6.600 kr. 10 sinnum á ári.
Námskeið til að hætta
reykingum
n Efling: 15.000 kr. á ári.
n KÍ: 25.000 kr. á ári.
Gleraugu
eða linsur
n Efling: 17.000 kr.
á ári eða 50%
n SFR: 30.000 kr.
þriðja hvert ár eða 20%
af upphæð yfir 10.000 kr.
n BHM: 40.000 kr. þriðja hvert ár.
n KÍ: 30% af kostnaði, nái hann 60.000
kr. annað hvert ár.
Svefngrímur CPAP
n Efling: Greitt er allt að 1.125 kr. á mánuði
eða allt að kr. 13.500 kr. á ári á hverjum 12
mánuðum.
n BHM: 65.000 kr. á ári.**
Heyrnar-
tækjastyrkur
n Efling: 100.000 kr. eða 50% þriðja
hvert ár.
n SFR: 150.000 kr. eða 50% af kostnaði
umfram 50.000 kr.
n BHM: 150.000 kr. þriðja hvert ár.
n KÍ: Allt að 30% af kaupverði.
Laser-augnaðgerðir
n Efling: 50.000 kr. fyrir hvort auga
eða 50%.
n SFR: 50.000 kr. fyrir hvort auga.
n BHM: 60.000 kr. fyrir hvort auga.
n KÍ: 60.000 kr. fyrir hvort auga.
Glasa- eða tæknifrjóvgun
n Efling: 100.000 kr. eða 50%.
n SFR: 120.000 kr. eða 30%.*
n BHM: 130.000 kr. eða 40%.
n VR: 150.000 kr.
n KÍ: 120.000 kr.
Ættleiðing
erlendis frá
n Efling:
200.000 kr.
n SFR: 220.000 kr.
n BHM: 200.000 kr.
n VR: 150.000 kr.
n KÍ: 200.000 kr.
Fæðingarstyrkur
n Efling greiðir ekki fæðingarstyrk
n SFR: 220.000 kr. vegna hvers barns.
n BMH: 150.000 kr.
n KÍ: 200.000 kr.
Endurhæfing og
sjúkraþjálfun
n Efling: 2.000 kr. 20
sinnum á ári.
n SFR: 1.500 kr. 25
sinnum á ári.
n BHM: 65.000 kr. á ári.**
n KÍ: 2.600 kr. 20 sinnum á ári.
Dánarbætur
og útfarir
n Efling: 348.695 kr.
n SFR: 200.000 kr.
n BHM: 350.000 kr.
n KÍ: 350.000 kr.
*Sumir styrkir eru einungis ætl-
aðir þeim sem hafa verið meira en
ár í sjóðnum og í einhverjum tilfell-
um eingöngu eftir nokkur ár.
**Hjá BHM eru 65.000 kr. á ári
ætlaðar til endurgreiðslu á ýmsum
kostnaði sem önnur stéttarfélög
telja saman. Þess vegna eru þær
upphæðir stjörnumerktar í úttekt-
inni. n
Þú átt inni peninga
Stéttar- og verkalýðsfélög endurgreiða ekki bara gleraugu og líkamsrækt
Auður Alfífa Ketilsdóttir
fifa@dv.is