Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2014, Síða 22
22 Fréttir
E
rlendum ferðamönnum
hefur fjölgað látlaust á um-
liðnum árum. Á síðasta ári
komu tæplega 800 þúsund
erlendir gestir til landsins
og þá er talið að meira en millj-
ón ferðmenn muni leggja leið sína
til Íslands á næsta ári. Samkvæmt
gögnum frá Hagstofu Íslands
námu tekjur af erlendum ferða-
mönnum alls tæplega 275 millj-
örðum króna á árinu 2013.
Ferðaþjónusta er því ört vax-
andi atvinnuvegur á Íslandi og
ljóst að margir vilja taka þátt í
þeirri uppbyggingu. Minna er
hins vegar rætt um fólkið á bak við
tölurnar – ferðamennina sjálfa.
Við sjáum bara appelsínugula
úlpu, myndavél á lofti og hugs-
um; ferðamaður. DV fór á stúfana,
í rigningu og slagviðri, og náði
tali af nokkrum erlendum ferða-
mönnum í miðborg Reykjavíkur
sem létu veðrið svo sannarlega
ekki á sig fá. n
Páskablað 15.–22. apríl 2014
Fólkið á bak við tölurnar
Áslaug Karen Jóhannsdóttir
aslaug@dv.is
Ævintýraferð ákveðin með sex klukkutíma fyrirvara
Þessar bandarísku konur eiga það sameiginlegt að finnast fátt skemmtilegra en að ferðast. Erin, sem starfar hjá Amazon þar ytra, er
forsprakkinn í hópnum en hún leiddi hinar tvær saman í ævintýraferð til Íslands – ákvörðun sem var tekin með sex klukkustunda fyrirvara.
Tekla, sem vinnur hjá Starbucks, og Claire, sem starfar fyrir ferðaþjónustufyrirtæki, voru því að hittast í fyrsta skipti þegar þær settust í
flugvélina á leið sinni til Íslands. „Við ætlum í Bláa lónið, að Geysi og síðan eigum við bókaða ferð til Hafnar í Hornafirði í næstu viku,“ segja
þær kátar í samtali við DV.
Sá dansandi unglinga í miðbænum
Gad er læknir í heimalandi sínu en hefur einnig áhuga á ljósmyndun, fjallgöngum og
siglingum. Hann kom hingað til lands ásamt konunni sinni, en hún tók þátt í svokölluðum
rit höfundabúðum hér á landi í síðustu viku. „Ég hef því bara verið að skoða Reykjavík á
meðan,“ segir Gad. Aðspurður hvort eitthvað hafi komið honum á óvart í heimsókninni
segist hann nýlega hafa rekist á stóran hóp ungmenna í skrautlegum búningum, syngjandi
og dansandi í miðbænum. Hann hafi síðar komist að því að með þessum hætti fagna Ís-
lendingar útskrift. „Þetta þótti mér einstaklega skemmtilegt. Kanadamenn fagna ekki með
jafn áberandi hætti,“ segir hann brosandi.
„Maturinn hérna er mjög góður.“
Hjónin Yvonne og Per eru hér á landi ásamt sonum sínum og tengda-
dætrum að fagna sextíu ára afmæli Yvonne. Hún er hjúkrunarfræðing-
ur, hann er ráðgjafi hjá bandarísku fyrirtæki og þau búa í grennd við
Stokkhólm. „Þessar húfur eru glænýjar,“ segja hjónin hlægjandi þegar
þau stilla sér upp fyrir ljósmyndara DV. Þau höfðu aldrei áður komið til
Íslands og höfðu því ekki hugmynd um hverju þau mættu eiga von á.
„Maturinn hérna er mjög góður. Við höfum þegar farið á fjölmarga góða
veitingastaði í borginni. Humarsúpan sem við fengum niðri við höfnina er
til að mynda sú besta sem við höfum nokkurn tíma smakkað.“
„Við
munum
klárlega
mæla með
Íslandi“
Þessir kumpánlegu
Norðmenn eru allir lands-
lagsarkitektar og eru hér í
starfsmannaferð á vegum
fyrirtækisins. Þeir voru
nýkomnir úr fjórhjólaferð
þegar DV náði tali af þeim.
„Þetta er í fyrsta skipti
sem við gerum eitthvað
þessu líkt vinnufélagarnir
en þetta er mjög góð
leið til þess að þjappa
hópnum saman. Við mun-
um klárlega mæla með
Íslandi í ferðir af þessu
tagi,“ segir Simen sem
talar fyrir hönd hópsins.
Framundan er síðan ferð
um Gullna hringinn og í
Bláa lónið.
Vilja ólm
smakka ekta
íslenskt smjör
Hjónin Jeanette og Mark eru hér á
landi ásamt sonum sínum Neil og
Rob. Jeanette og Neil hafa áður
heimsótt Ísland og vildu ólm sýna
hinum tveimur fjölskyldumeðlimun-
um hvað landið hefði upp á að bjóða.
Jeanette vinnur í skóla í London, sér
um óþekku börnin að eigin sögn, en
Mark er rafvirki. Neil vinnur síðan í
banka en Rob er smiður. „Það var
betra veður þegar við komum hingað
síðast en það var líka í maí,“ segir
Jeanette. Framundan er stíf dagskrá
hjá fjölskyldunni en þau ætla að
fara Gullna hringinn og þá stefna
bræðurnir á að verja degi í að kafa
á Þingvöllum. Fjölskyldan er einnig
mjög spennt fyrir því að smakka ekta
íslenskan bjór.
n Spjallað við erlenda ferðamenn í miðborg Reykjavíkur n Reiknað er með milljón ferðamönnum á næsta ári n Hámenntaðir ferðamenn hrífast af íslenskum mat og hönnun
Gad (55)
Kanada, Ottawa
Tekla (36), Claire (32) og Erin (31)
Bandaríkin, Seattle
Jeanette, Mark, Neil og Rob
England, London
Simen, André,
Hákon, Stein,
Marius og Fredrik
Noregur
Yvonne (60) og Per (60)
Svíþjóð