Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2014, Blaðsíða 23
Fréttir 23Páskablað 15.–22. apríl 2014
„Höfðum búið okkur undir það versta.“
Fabian og Carolin leggja bæði stund á geimtæknifræði í heimalandi sínu og munu því að
vonum starfa við það að smíða geimflaugar í framtíðinni. Þau spila tennis í frítíma sínum og
þá er Fabian einnig liðtækur áhugaljósmyndari að eigin sögn. Parið gaf sér góðan tíma til að
skoða landið. „Við komum hingað fyrir tveimur vikum, leigðum okkur bíl og keyrðum hringinn
í kringum landið. Góða veðrið sem við fengum á ferðalaginu kom okkur skemmtilega á óvart
en við höfðum búið okkur undir það versta.“ Aðspurð um uppáhaldsviðkomustaði sína á
ferðinni um landið nefna þau Varmá við Hveragerði og Hverfjall við Mývatn.
Fólkið á bak við tölurnar
Hittu
dónalegan
Bandríkja-
mann
Aaron er verkfræðingur en
Amy vinnur á auglýsinga-
stofu. Helstu áhugamál
þeirra eru vatnsíþróttir af
ýmsum toga og ferðalög.
Þau höfðu haft augastað
á Íslandi í mörg ár þegar
þau ráku augun í gott
tilboð á flugi hingað til
lands og ákváðu loksins
að láta drauminn rætast.
„Bandaríkjamaðurinn á
hótelinu okkar var heldur
dónalegur, en annars
hefur upplifun okkar af
landinu verið mjög góð,“
segja þau og hlægja. Þau
voru nýlent þegar DV náði
tali af þeim en þau höfðu
áformað að fara bæði í
norðurljósabátsferð og
Gullna hringinn áður en
þau halda heim aftur í
næstu viku.
„Við værum alveg til í að sjá eldgos“
„Vinir mínir kalla mig Sam. Það er auðveldara,“ segir Viacheslav þegar blaðamaður biður hann um að skrifa niður nafnið sitt. Hann er
skipstjóri á fraktskipi en Marina er sálfræðingur. Viacheslav hafði lengi látið sig dreyma um að heimsækja Ísland en Marina hefði heldur kosið
hlýrri áfangastað. Starfs hans vegna gátu þau ekki undirbúið ferðina með miklum fyrirvara heldur var ferðin bókuð í síðustu viku. „Við værum
alveg til í að sjá eldgos,“ segja þau og hlægja, „en gætum þurft að koma seinna til að ná því.“
Íslensk hönnun heillar upp úr skónum
Matargerð er þeirra helsta áhugamál ásamt tónlist og gönguferðum. Sandy er að auki mikill
áhugamaður um lestir og sagði skort Íslands á þeim algjöra synd. „Við komum hingað fyrir
matinn,“ segja þau en Ísland er í þeirra augum fyrst og fremst mataráfangastaður. Arkitekt-
úrinn og íslensk hönnun hafi hins vegar heillað þau upp úr skónum við komuna til landsins.
„Við eigum einn uppkominn son sem starfar sem bakari í Edinborg þannig við munum þræða
bakaríin í Reykjavík á meðan við erum hérna.“
n Spjallað við erlenda ferðamenn í miðborg Reykjavíkur n Reiknað er með milljón ferðamönnum á næsta ári n Hámenntaðir ferðamenn hrífast af íslenskum mat og hönnun
Aaron (32) og Amy (31)
Bandaríkin, Texas
Fabian (25) og Carolin (23)
Þýskaland
Marina (30) og
Viacheslav (46)
Rússland, St. Pétursborg
Sandy (64) og Heather (62)
Skotland