Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2014, Blaðsíða 27
Páskablað 15.–22. apríl 2014 Fréttir Erlent 27
í fjöldagöngu í höfuðborg Sómalíu,
Mogadishu, þegar vopnaður mað-
ur réðst að honum og skaut hann af
stuttu færi í brjóstið. Hann lést sam-
stundis. Martin hafði á ferli sínum
fengið virt verðlaun á sviði blaða- og
fréttamennsku og hann átti eiginkonu
og tvö börn þegar hann var myrtur.
Skotinn í Kabúl
Fyrir skömmu var annar sænskur
blaðamaður, að þessu sinni fyrir
sænska ríkisútvarpið (SR), skotinn til
bana við störf sín í Kabúl, Afganistan.
Um var að ræða einn besta frétta-
mann SR á sviði erlendra frétta, Nils
Horner. Greinarhöfundur bjó í Sví-
þjóð frá 1996–2007 og hlustaði iðulega
á áhugaverðan og fræðandi frétta-
flutning Horners. Hann lagði sig mjög
fram við það að gefa viðmælendum
sínum rödd og klippti fréttir sínar og
frásagnir einstaklega skemmtilega
saman. Hann var með mjög þægilega
og áheyrilega útvarpsrödd og hafði
gríðarlega þekkingu á umfjöllunar-
efnum sínum. Þegar hann var myrtur
var hann staddur á götu úti í Kabúl
og var að ræða við almenna borgara
í sambandi við forsetakosningarnar
sem fram fóru í landinu fyrir skömmu.
Skyndilega komu tveir menn íklædd-
ir vestrænum klæðnaði upp að Horn-
er, annar tók upp byssu og skaut
hann í höfuðið af stuttu færi. Morðið
kom mönnum mjög á óvart, þar sem
Horner var í hverfi í Kabúl, sem talið
var tiltölulega öruggt og mörg erlend
hjálparsamtök voru til dæmis með
starfsemi þar. En dauði Nils Horner
staðfestir einungis að enginn getur
verið algerlega öruggur gagnvart
morðingjum. Samkvæmt frétt á vef
Dagens Nyheter er fjöldi myndavéla
á því svæði sem Horner var myrtur
og því binda menn vonir við að hægt
verði að bera kennsl á morðingjana.
Umfjöllun sýnir að daglega legg-
ur fréttafólk sig um allan heim í mikla
lífshættu við að færa okkur, frétta-
og fjölmiðlaneytendum, frásagnir af
gangi mála, fréttaskýringar og afhjúp-
un. Þetta fólk vinnur mikilvæg störf og
kemur til dæmis í veg fyrir að spilling
þrífist enn frekar. Það vinnur að því að
sannleikurinn nái fram að ganga og að
tjáningar- og upplýsingafrelsið sé virkt
í samfélaginu. n
Hættulegustu
löndin árið 2013
Sýrland
Írak
Egyptaland
Malí
Brasilía
Filippseyjar
Rússland
Sómalía
Pakistan
Indland
Skotinn í Kabúl Nils Horner, einn þekkt-
asti fréttamaður sænska ríkisútvarpsins, var
við störf í Kabúl um miðjan mars síðastliðinn,
þegar tveir menn í vestrænum klæðnaði
gengu upp að honum og skutu hann af stuttu
færi í höfuðið. Hann var 51 árs. Mynd ReuteRS
Myrt í Moskvu Rússnesk kona heldur á ljósmynd af blaðakonunni Önnu Politkovskaju,
sem fannst myrt í Moskvu árið 2006. Hún hafði meðal annars verið harður gagnrýnandi
Vladimírs Pútín og stefnu hans. Mynd ReuteRS
Féll í Mogadishu Sænsk-breski
verðlaunablaðamaðurinn Martin Adler
var myrtur í mótmælagöngu í landi lög-
leysunnar, Sómalíu, árið 2006.
Fallin við störf Mynd þessi er talin vera af bandaríska blaðamanninum Ernie Pyle, sem
féll fyrir japanskri kúlu í bardögum á Kyrrahafinu árið 1945.
Gengið á land Bandarískir hermenn vaða
í land í Normandí, til móts við Þjóðverja, og
Robert Capa myndar.Í fremstu vÍglÍnu
n Fjöldi blaða- og fréttamanna lætur árlega lífið n Eru einnig fangelsaðir n Sýrland hættulegast
n Af þessum
löndum sem hér
eru talin upp er
Sýrland talið
hættulegast,
en að öðru leyti
er taflan ekki í
sérstakri röð, öll
löndin eru talin
hættuleg fyrir
blaða- og frétta-
menn. Heimild:
CPJ.org