Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2014, Qupperneq 50
Páskablað 15.–22. apríl 201450 Sport
D
regið var í undanúrslit
Meistaradeildar Evrópu
á föstudag og eins við var
að búast eru hörkuleikir
framundan. Real Madrid
og Bayern München drógust saman
og fer fyrri leikurinn fram í Madrid.
Þá mætast Atletico Madrid og
Chelsea og fer fyrri leikurinn
fram á heimavelli Atletico.
Leikirnir fara fram 22. og 23.
apríl og 29. og 30. apríl. Úr-
slitaleikurinn verður í Lissabon
laugardaginn 24. maí.
Spánarslagur í Portúgal
DV fékk Kristján Guð-
mundsson, þjálf-
ara Keflavíkur, til
að spá í spilin
fyrir undan-
úrslitaleikina.
Hann á von á
hörkuleikj-
um, sem
eðlilegt er,
og reikn-
ar með að
Real Madrid
og Atletico
Madrid
mætist í úr-
slitum. Það
verði því
spænskur
slagur í Portúgal í maí.
Bale og Ronaldo
afgreiða Bayern
Aðspurður um ein-
vígi Real Madrid og FC
Bayern segir Kristján
að um æsispennandi
einvígi verði að ræða,
enda séu liðin ákaf-
lega vel mönnuð.
Sem kunn-
ugt er
stóðu
Bæj-
arar
uppi
sem
sigurvegarar í Meistaradeildinni síð-
asta vetur.
„Þessi rimma á milli Real og
Bayern verður svakaleg. Það er eitt-
hvað sem segir mér að Real slái þá út
og þeir standi jafnvel uppi sem sig-
urvegarar í keppninni,“ segir Krist-
ján. Hvorugt lið bauð upp á flugelda-
sýningu í 8-liða úrslitunum; Real
Madrid vann Dortmund, 3–2 saman-
lagt, á meðan Bayern sló Manchester
United úr keppni, 4–2 samanlagt.
Kristján segist hafa trú á því að
Real Madrid komist áfram þar sem
stórstjörnurnar Cristiano Ronaldo
og Gareth Bale geri gæfumuninn.
Hann tekur þó fram að lykilatriði sé
fyrir Madrid að Ronaldo verði búinn
að jafna sig á meiðslum sem hafa
hrjáð hann.
Sterkari liðsheild
Atletico Madrid og Chelsea mætast í
hinu undanúrslitaeinvíginu. Atletico
sló út Barcelona, 2–1 samanlagt, í
8-liða úrslitunum á meðan Chelsea
lagði PSG að velli. Bæði lið skor-
uðu 3 mörk í einvíginu en Chelsea
fór áfram þar sem því tókst að skora
mark á útivelli ólíkt PSG.
Kristján telur að Diego Simeone
og lærisveinar hans í Atletico Madrid
takist hið ómögulega og komist í úr-
slitaleikinn. „Ég held að Atletico fari
áfram og það muni engu breyta þó
Thibaut Courtois verði ekki í mark-
inu,“ segir Kristján en sem kunn-
ugt er er Courtois lánsmaður frá
Chelsea. Greint var frá því á dögun-
um að Atletico þurfi að reiða fram
fimm milljónir punda, tæpan millj-
arð króna, ef þeir tefla honum fram.
„Atletico er svo ofboðslega sterk liðs-
heild og það er mjög erfitt að skora
hjá þeim. Það hjálpar Chelsea að
eiga seinni leikinn á heimavelli en
Atletico gæti verið með góða forystu
eftir fyrri leikinn. Ég held, þegar á
heildina er litið, að Atletico sé sterk-
ari liðsheild,“ segir Kristján og bætir
við að vinnusemi Atletico í varnar-
leiknum geri það að verkum að erfitt
verði fyrir framherja Chelsea að
skora. n
Spánarslagur í
úrslitaleiknum
n Kristján Guðmundsson telur að Atletico fari í úrslit á liðsheildinni en Real á stórstjörnunum
n Bayern München
Leiðin í undanúrslit: Bæjarar eru feiknasterkir í ár, eins
og í fyrra. Liðið vann fimm af sex leikjum sínum í D-riðli,
eins og Manchester City (eina liðið sem þeir töpuðu fyr-
ir). Viktoria Plzen og CSKA Moskva stóðu þeim langt að
baki. Í 16-liða úrslitum mættu Bæjarar Arsenal og unnu
fyrri leikinn 2–0 í London. Heimaleiknum lyktaði með
jafntefli og sæti í 8-liða úrslitum tryggt. Annað enskt
lið, stórveldi Manchester United, var næst á dagskrá.
Liðin gerðu 1–1 jafntefli á Old Trafford en Bayern vann
öruggan 3–1 sig á heimavelli. Englandsmeistararnir
reyndust ekki mikil hindrun.
Evrópumeistaratitlar: 5 (1973–74, 1974–75, 1975–76,
2000–01, 2012–13)
Staða í deild: 1. sæti
Markahæstur: Thomas Müller (5 mörk)
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Spennandi
leikir Kristján á
ekki von á öðru en
undanúrslitaleikirnir
verði spennandi.
Hann telur þó að
spænsku liðin leiki til
úrslita. Mynd SigtRygguR ARi
n Chelsea
Leiðin í undanúrslit: Chelsea vann E-riðil nokkuð
örugglega í vetur. Liðið tapaði báðum leikjunum gegn
Basel en vann Schalke og Steua Bucarest tvívegis hvort.
Í 16-liða úrslitum mætti liðið Galatasaray. Chelsea vann
2–0 á Brúnni í seinni leiknum eftir að liðin höfðu gert
jafntefli, 1–1 í Tyrklandi. Zlatan og félagar í Paris Saint
Germain voru verðugir andstæðingar í 8-liða úrslitum.
Chelsea tókst á ögurstundu í síðari leiknum að skora
annað markið í leiknum, sem nægði til að bæta fyrir 3–1
tap í París. Kænska Mourinho og fjarvera Zlatan, sem
meiddist í fyrri leiknum, skipti þar sköpum.
Evrópumeistaratitlar: 1 (2011–2012)
Markahæstur: Demba Ba (3 mörk)
Staða í deild: 2. sæti
n Atletico Madrid
Leiðin í undanúrslit: „Litla“ liðið í Madrid hefur heldur
betur slegið í gegn. Liðið fór taplaust í gegn um G-riðil
og varð tíu stigum á undan næsta liði. Í 16-liða úrslitum
mætti Atletico stórveldi AC Milan. Liðið gerði sér
lítið fyrir og vann báða leikina, samtals 5–1. Risarnir í
Barcelona voru næstir á dagskrá, í 8-liða úrslitum. Jafn-
tefli á Nývangi voru frábær úrslit fyrir Atletico sem vann
síðari leikinn 1–0 heima. Óhætt er að segja að Atletico
Madrid hafi stolið senunni á yfirstandandi leiktíð, enda
trónir liðið á toppi spænsku deildarinnar. Lærisveinar
Diego Simeone eru til alls líklegir.
Evrópumeistaratitlar: 0
Staða í deild: 1. sæti
Markahæstur: Diego Costa (7 mörk)
n Real Madrid
Leiðin í undanúrslit: Madrid bar höfuð og herðar yfir
önnur lið í B-riðli. Liðið fékk 16 stig af 18 mögulegum,
gegn Galatasaray, Juventus og FC København. Eina
jafnteflið kom á útivelli í Kaupmannahöfn. Madrid hefur
farið mikinn í útsláttarkeppninni. Liðið náði fádæma
úrslitum í Þýskalandi þegar það vann 6–1 sigur í fyrri
leiknum gegn Schalke. Samtals vann Real einvígið
9–2. Í 8-liða úrslitum voru silfurverðlaunahafarnir frá
því í fyrra, Dortmund, í veginum. Segja má að liðið hafi
sloppið með skrekkinn eftir slakan seinni leik. Litlu
mátti muna að 3–0 sigurinn í fyrri leiknum nægði ekki.
En Madrid slapp fyrir horn.
Evrópumeistaratitlar: 9 (1955–56, 1956–57, 1957–58
1958–59, 1959–60, 1965–66, 1997–98, 1999–2000,
2001–02.
Staða í deild: 2. sæti
Markahæstur: Cristiano Ronaldo (14 mörk)
„Ég held að Atletico
fari áfram og það
muni engu breyta þó Thi-
baut Courtois verði ekki í
markinu.
„Þessi rimma á
milli Real og
Bayern verður svakaleg.
Ekki aftur Ef spá Kristjáns rætist mun Bayern ekki verða fyrsta liðið til að verja Meistaradeildartitil sinn. Þeir unnu sem kunnugt er
Borussia Dortmund í úrslitum í fyrra.