Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2014, Qupperneq 68
68 Menning
Blúshátíð í Reykjavík
Hvar: Hilton Reykjavík Nordica
Hvenær: 12. til 17. apríl
Þrennir stórtón-
leikar verða
haldnir á Blús-
hátíðinni í
Reykjavík.
Meðal þeirra
sem koma fram
eru Pálmi Gunnars-
son, KK og Egill Ólafsson. Þá
munu Victor Wainwright og fé-
lagar koma fram á miðvikudags-
kvöldinu. Victor er margverð-
launaður tónlistarmaður og ein
skærasta stjarnan í blúsheimin-
um um þessar mundir.
Kaleo
Hvar: Græni
Hatturinn,
Akureyri
Hvenær:
Miðvikudagur
16. apríl
Hljómsveitin Kaleo sló svo
sannarlega í gegn í fyrra með
laginu Vori í Vaglaskógi. Fyrir
jólin í fyrra sendi sveitin frá sér
sína fyrstu plötu sem hlaut góð-
ar viðtökur. Þá var hún kosin
bjartasta von tónlistarsenunnar á
Íslensku tónlistarverðlaununum.
Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands
Hvar: Menningarhúsið Hof,
Akureyri
Hvenær: Fimmtudagur 17. apríl
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
ætlar að fagna 20 ára afmæli
sínu með því að leika 6. sinfóníu
Mahlers í Hofi. Verkið er talið eitt
það magnaðasta sem hefur verið
samið en sagt er að Mahler hafi
með tónsmíðum sínum fullkomn-
að sinfóníuna. Rétt um 100 manns
verða á sviði og leika undir stjórn
Guðmundar Óla Gunnarssonar.
Aldrei fór ég suður
Hvar: Ísafirði
Hvenær: 18. til 19. apríl
Fjölmargir úrvals listamenn leika
á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég
suður. Retro Stefson, Highlands
og Mammút eru meðal hljóm-
sveita sem koma fram. Hátíðin
er vel sótt á ári hverju en hún var
stofnuð árið 2003 af tónlistar-
manninum Mugison.
Páskablað 15.–22. apríl 2014
Öskrað og grátið
n Segir Enter 4 eiga mikið inni n Kynntust öllum hliðum veikinda Högna
V
ið hugsum ekki um neitt
annað þessa dagana,“
segir Viktor Orri Árna-
son, fiðluleikari Hjaltalín,
spenntur fyrir stórtónleik-
um sveitarinnar sem kemur fram
í Eldborgarsal Hörpu á morgun,
miðvikudag. Hjaltalín verður þá
fyrsta hljómsveitin af yngri kyn-
slóðinni til að halda sína eigin tón-
leika í hinum tilkomumikla sal.
„Við ætlum að leggja mikið í sviðs-
myndina og höfum aldrei farið jafn
ítarlega yfir hana eins og núna.“
Ný lög leikin á tónleikunum
Megináhersla sveitarinnar í undir-
búningi fyrir tónleikana hefur ver-
ið lögð á að leggja lokahönd á ný
lög. „Við ætlum að spila mest af
Enter 4 og síðan frumflytja nokk-
ur ný lög,“ segir Viktor Orri. „Þetta
verða töluvert lengri tónleikar hjá
okkur en alla jafna,“ en sveitin hef-
ur haft nóg á sinni könnu á undan-
förnum mánuðum. Þau sömdu
tónlistina fyrir leikritið Engla al-
heimsins, sem sló í gegn á Stóra
sviði Þjóðleikhússins, og kvik-
myndina Days of Gray en þau
hlutu íslensku tónlistarverðlaunin
fyrir samnefnda plötu sem kom út
í fyrra. „Það mun hljóma eitthvað
af þeim lögum. Við þurfum þó að
hugsa um heildarmynd tónleik-
anna. Það er ákveðinn hljóðheim-
ur í gangi og lögin verða að passa
inn í hann.“
Hjaltalín hlaut einróma lof
gagnrýnenda fyrir plötuna Enter
4 sem kom út, eins og þruma úr
heiðskíru lofti, rétt fyrir jólin árið
2012. Kvað við nýjan tón í lög-
um sveitarinnar. Þau voru held-
ur þyngri og drungalegri en áður,
sem má rekja til þess að Högni
Egilsson, söngvari og gítarleikari
sveitarinnar, greindist með geð-
hvörf fyrr um árið. Viktor Orri segir
að veikindi Högna hefðu haft mikil
áhrif á sveitina. „Maður vissi ekki
alveg hvernig maður átti að bregð-
ast við þegar hann veiktist. Við
erum öll svo náin og fengum að
kynnast öllum hliðum sjúkdóms-
ins. Það var öskrað og grátið,“ segir
Viktor Orri.
Veikindi Högna
hristu hópinn saman
„Sveitin upplifði svo margt saman
og varð því enn þá sterkari fyrir
vikið. Það má segja að veikindi
Högna hafi hrist okkur saman og
breytt samskiptum okkar, neytt
okkur til að sýna hvert öðru meiri
skilning og veita hvert öðru meira
pláss,“ útskýrir Viktori Orri. „Það
getur þó verið erfitt þegar margir
plássfrekir karakterar eru saman-
komnir í einu bandi,“ bætir hann
við og hlær.
Viktor Orri segir meðlimi sveit-
arinnar byrjaða að hittast til að
leggja drög að nýrri plötu. Hann
segir að þeim liggi þó ekki lífið á
að senda frá sér nýtt efni. „Okkur
líður eins og Enter 4 eigi mikið inni
og því erum við ekki að flýta okk-
ur neitt. Við ætlum að gefa okkur
góðan tíma til þess að vinna að
næstu plötu,“ segir Viktor Orri að
lokum. n
Ingólfur Sigurðsson
ingolfur@dv.is
Frakkastíg 10 | Sími 551 3160 | gullkistan@vortex.is | www.thjodbuningasilfur.is
Verum
þjóðleg
um páskana
„Okkur líður
eins og Enter 4
eigi mikið inni
MyNd Facebook-Síða VIktorS orra
Sló í gegn Platan Enter 4 kom út fyrir
jólin 2012 og sló í gegn. Högni greindist með
geðhvörf fyrr um árið og var platan einhvers
konar uppgjör hans við veikindin.
Hvað er að
gerast?