Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2014, Síða 78
Páskablað 15.–22. apríl 201478 Fólk
Á ferð um páskana:
Hjólreiðar, afslöppun og fitness
Þ
etta verður mikil áskorun
fyrir okkur,“ segir bæjar-
fulltrúinn Oddur Helgi
Halldórsson á Akureyri
sem er á leiðinni í átta daga
hjólaferð yfir páskana um Evrópu
með eiginkonu sinni, Margréti
Hörpu Þorsteinsdóttur.
Oddur Helgi, sem hefur verið
viðloðandi pólitíkina á Akureyri
síðustu 20 árin, tilkynnti nýlega
að hann ætli ekki að gefa kost á
sér í efstu sæti L-listans fyrir kosn-
ingarnar í vor. Hjólatúrinn ætti því
að verða fín leið til að hefja nýtt líf
utan stjórnmálanna.
Oddur, sem var frambærilegur
handboltamaður í denn, segist
hafa fengið hjóladellu eftir að þau
hjónin leigðu sér hjól þegar þau
voru stödd í Slóveníu í fyrra. „Við
urðum gjörsamlega ástfangin af
hjólreiðum og keyptum okkur hjól
þegar við komum heim. Í æsku
voru til hjól í fjölskyldunni en hvor-
ugt okkar hafði nokkurn tímann átt
hjól áður svo þetta eru okkar fyrstu
hjól. Síðan höfum við hjólað mikið
innanbæjar.“
Nennum ekki út í rigningu
Hjónin munu fljúga til München og
aka til Passau þar sem þau munu
hjóla meðfram Dóná alla til leið
Vínarborgar. „Þetta eru um 50 kíló-
metrar á dag. Þetta er tiltölulega
slétt og létt leið og líklega ein vin-
sælasta hjólaleið í Evrópu. Ef við
verðum þreytt og nennum ekki að
hjóla nema kannski 40 kílómetra
einn daginn þá getum við alltaf
hoppað upp í lest því það er hjólað
á milli bæja,“ segir Oddur Helgi og
bætir við að farangri þeirra verði
ekið á milli hótela sem þau gista á.
Oddur og Margrét Harpa hafa
verið dugleg að æfa sig fyrir átökin.
„Þetta verður erfitt. Við þorum ekki
að hjóla yfir veturinn en höfum æft
okkur á þrekhjóli. Okkar þrekhjól er
örugglega eitt af fáum þrekhjólum
í heimahúsum sem eru virkilega
notuð. Svo fyrir hálfum mánuði
gátum við loksins tekið hjólin út.
Við förum bara út að hjóla þegar
veðrið er gott. Við nennum ekki út í
rigningu,“ segir Oddur og bætir við
að þau hafi verið að hjóla allt upp
í 17 kílómetra á dag sem sé einn
þriðji af dagleiðinni.
Hann segist ekki búast við því að
verða svo forfallinn hjólreiðamað-
ur að næst muni hann skipuleggja
ferð þar sem bakpokinn verði á
bakinu með tjaldi og öllu tilheyr-
andi. „Ég er ekki viss um það en
ef þetta verður skemmtilegt efast
ég um að þetta verði okkar síðasta
hjólaferð.“ n
Fastar til
heiðurs Jesú
Helgi Jean Claessen,
ritstjóri Menn.is
„Ég eyði páskunum með fjöl-
skyldunni. Við föstum öll til
heiðurs Jesú – og „köttumst“ þar
af leiðandi mjög mikið niður. Það
endar á því að við höldum lítið
bikiní-fitness mót. Pabbi vann í
fyrra – en ég mér finnst hann vera
heldur „vatnaðri“ í ár. Þetta verður
spennandi.“
Á skíði eftir
margra ára hlé
Rúnar Freyr Gíslason leikari
„Ég ætla að fara norður á Akur-
eyri með alla fjölskylduna. Þar
ætlum við að slaka á, fara á skíði
og njóta frídaganna. Ég rifjaði upp
skíðakunnáttuna um daginn eftir
margra ára hlé og sá þá að ég hef
engu gleymt! Þetta er frábært sport
og ég er búinn að panta námskeið
fyrir börnin í Hlíðarfjalli, þannig að
við hlökkum öll til.“
„Mér finnst páskarnir alveg,
hreint út sagt, dásamlegir. Við
Finnur, maðurinn minn, ætlum
að fara vestur til Stykkishólms
þaðan sem hann er. Ég held ég
eigi bestu tengdaforeldra í heimi
því það er alltaf jafn yndislegt að
koma til þeirra. Við ætlum bara
að slaka á og hafa það huggulegt
– enda er ég komin á áttunda
mánuð með prinsinn okkar. Við
brunum svo í bæinn á páskadag
til þess að fara í matarboð til
mömmu minnar – það verð-
ur eitthvað geggjað. Ég get ekki
beðið!“
Helgi Sæmundur Guðmunds-
son úr hljómsveitinni Úlfur Úlfur
„Það fer eftir veðri hvort ég fari
norður í bústað með fjölskyldunni
minni eða loki mig af í stúdíóinu við
Klapparstíg og vinni að næstu plötu
Úlfur Úlfur.“
Unnsteinn Manuel Stefánsson,
söngvari í Retro Stefson:
„Ég verð á Ísafirði á Aldrei fór ég suður
og síðan held ég að ég kíki í Bjarnar-
fjörð á Ströndum eftir hátíðina.“
Kristján Hafþórsson leikari:
„Ég ætla að njóta páskanna í faðmi
fjölskyldu og vina. Ég ætla að kíkja í
sumarbústað, fá mér nokkur páska-
egg og nýta smá tíma í lærdóm.“
Sigurbjörn Örn Hreiðarsson,
þjálfari Hauka í knattspyrnu
„Við Haukarnir ætlum að vera í Berlín
frá skírdegi til þriðjudags. Tókum
okkur sjálfir til og pöntuðum ferð til
heimsborgarinnar og æfum þar með
menninguna og söguna í forgrunni.“
„Við förum bara
út að hjóla þegar
veðrið er gott. Við nennum
ekki út í rigningu.
Oddur Helgi og
Margrét Bæjarfull-
trúinn Oddur Helgi
Halldórsson á Akur-
eyri er á leiðinni í átta
daga hjólaferð yfir
páskana um Evrópu
með eiginkonu sinni.
MyNd BJaRNi EiRíKSSON
Beðið eftir prinsi
í afslöppun
Erla Tryggvadóttir viðskiptastjóri
Karin Sveinsdóttir, söngkona
í Highlands
„Ég mun spila á Aldrei fór ég suður
með Highlands og slaka á.“
andrea Röfn Jónasdóttir,
fyrirsæta
„Ég ætla að eyða páskunum með
vinkonu minni í Los Angeles. Ís-
lensku páskaeggin eru að sjálfsögðu
með í för.“
daníel Óliver, tónlistarmaður
„Ég fer nú bara á smá roadtrip með
vinunum! Ætlum að grilla, fara í
pottinn, verða svoldið full og njóta
lífsins.“