Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2014, Qupperneq 80
Páskablað 15.–22. apríl 2014
30. tölublað 104. árgangur Leiðbeinandi verð 659 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Egill myndi án
efa massa
þetta!
Egill leysi Gísla af
n Þeir voru fjölmargir sem ósk-
uðu Gísla Marteini Baldurssyni
dagskrárgerðamanni til ham-
ingju með skólavist í borgar-
fræðum við Harvard-háskóla um
helgina. Ljóst er að Gísli mun
því ekki stýra þættinum Sunnu-
dagsmorgni næsta vetur. Egill
Helgason óskar arftaka sínum
hjá RÚV innilega til hamingju
með námið á Facebook og segir:
Meiriháttar að fara til Harvard.
Þegar Gísli spyr glettinn hvort
Egill sé nokkuð laus á sunnu-
dagsmorgun svarar Egill um hæl:
„Jamm, þegar stórt er spurt. Má
ég ekki frekar fara til Cambridge
Mass?“ Harvard-há-
skóli er einmitt
í Cambridge í
Massachusetts-
ríki í Bandaríkj-
unum.
Von Jóns Gnarr
n Jón Gnarr, borgarstjóri
Reykjavíkur, á sér þá von að vís-
indamenn, hönnuðir, listamenn,
frumkvöðlar og aðrir draumóra-
menn flykkist til Íslands. „Ég vil
gera Ísland að heimili vonar fyrir
mannkynið,“ segir hann í stöðu-
uppfærslu á Facebook-síðu
sinni. Þá segir hann að tækifæri
landsins séu óendanleg og læt-
ur sig meðal annars dreyma um
að hér verði komið á fót Friðar-
háskóla á vegum Sameinuðu
þjóðanna. Jón viðurkennir að
mögulega séu hugmyndir hans
barnalegar en
tekur fram að
hann verði
einfaldlega að
deila þeim
með Face-
book-vinum.
Tískumógúll
keypti fornbíl
n „Breski sveitabíllinn fékk að
víkja fyrir þrítugri þýzkri techno
dívu,“ skrifar fatahönnuðurinn
Guðmundur Jörundsson undir
mynd af sér og nýjum bíl sínum
á samskiptamiðlinum Instagram.
Bíllinn er framleiddur af þýska bif-
reiðaframleiðandanum Mercedez
Benz og er af árgerðinni 1983.
Guðmundur Jörundsson hefur
getið sér gott orð í tískuheimin-
um á undanförnum mánuðum en
hann stofnaði fata-
merkið JÖR fyrir
rúmu ári. Fata-
hönnuðurinn
kynnti nýja fata-
línu á RFF í lok
mars sem féll vel í
kramið hjá gestum
hátíðinnar.
„Okkur finnst þetta mikill heiður“
Boðið á virta ungmennalistahátíð í Bayreuth
O
kkur finnst þetta mikill heiður,“
segir Hrafnhildur Blomster-
berg, stjórnandi Flensborgar-
kórsins. Kórinn hefur feng-
ið boð á virta ungmennalistahátíð,
Festival Junger Künstler Bayreuth, í
Bayreuth í Þýskalandi í ágúst á þessu
ári.
Raunar er kórnum boðið sem sér-
stökum gesti á hátíðina og er meðlim-
um hans boðin gisting og uppihald í
Bayreuth í þær tvær vikur sem hátíðin
varir. Í ár verða um 120 kórsöngvarar
sem munu æfa og halda þrenna tón-
leika undir stjórn sænska kórstjórans
Fred Sjöberg og halda svo sína eigin
tónleika. „ Flensborgarkórinn
mun síðan halda þrenna til
ferna tónleika með eigin efn-
isskrá, sem samanstendur
að stærstum hluta af kórlög-
um frá Skandinavíu,“ segir
Hrafnhildur.
Hátíðin var stofnuð árið
1950 en þar koma saman
ungir listamenn, starfa
saman og læra hver af öðr-
um. Í ár verða á hátíðinni ungmenna-
kórar alls staðar að úr heiminum sem
þykja hafa skarað fram úr. Flensborgar-
kórinn er einn þeirra, en hann hef-
ur til að mynda unnið til fyrstu verð-
launa í tveimur kórakeppnum erlendis
á undanförnum árum. „Flensborgar-
skólinn er mjög ungur kór, en við höf-
um farið í tvær keppnir þar sem við
unnum til gullverðlauna. Í kórnum eru
núverandi og fyrrverandi
nemendur Flensborgar-
skólans. Sumir þeirra hafa
sungið sleitulaust með
mér í tíu eða tólf ár. Þetta
er skemmtilegur hópur,
vel samstilltur og á breiðu
aldursbili,“ segir Hrafnhild-
ur sem segir mikla eftir-
væntingu ríkja meðal kórfé-
laga vegna hátíðarinnar.
„Ég er svo lánsöm að
ég er í skemmtilegasta
starfi sem til er og hlakka til að fara í
vinnuna á hverjum degi. Ég hef einnig
fengið þann meðbyr sem við höfum
þurft til að halda þessu starfi gangandi
og það hefur gengið mjög vel.“ n
Ungur kór Í kórnum er hópur sem hefur sungið saman lengi og þekkist vel, segir Hrafnhildur. Mynd HrafnHildUr BloMstErBErG
Apple TV
Tilboð: 15.990.-*
Fullt verð: 18.990.-
FERMINGARTILBOÐ
iPad
hvar sem er, hvenær sem er
iPad
Verð frá: 49.990.-
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r o
g
ve
rð
br
ey
tin
ga
r.
Ti
lb
oð
g
ild
ir
til
2
1.
a
pr
íl
20
14
.
Smáralind
Skírdagur 13-18 | Laugardagur 11-18
Lokað föstudaginn langa, páskadag og annan í páskum
Sími 512 1330 Nýtt kortatímabil í Smáralind frá 17. apríl