Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2014, Qupperneq 4
4 Fréttir Helgarblað 13.–16. júní 2014
Fjölbreyttar vörur
í öllum litum fyrir
bæjarhátíðina!
FAXAFEN 11 • 108 REykjAvík • 534-0534
Útburðarmál höfðað gegn Ágústi
Deildarformaður lagadeildar Háskólans á Akureyri tekur til varna
F
yrirtaka í aðfararmáli Íbúða-
lánasjóðs gegn Ágústi Þór
Árnasyni, aðjúnkt og deildar-
formanni lagadeildar Háskól-
ans á Akureyri, hefst í dag, föstudag,
í Héraðsdómi Norðurlands eystra. Í
daglegu tali er um að ræða útburðar-
mál þar sem lán frá Íbúðalánasjóði
eru ávallt verðtryggð og er því um að
ræða beina aðför gegn Ágústi Þór.
Í samtali við DV segir Ágúst Þór að
umrædd eign sé heimili hans í mið-
bæ Akureyrar. „Það er ekkert komið í
ljós hvort þetta verði útburðarmál, ég
á eftir að taka til varna. Þessu er ekki
enn lokið, en þetta er nógu óþægilegt
fyrir svo ég vil ekki ræða þetta meira,“
segir hann. Auk þessa máls hefur
Arion banki höfðað skuldamál gegn
Ágústi. Aðalmeðferð í því máli verð-
ur við Héraðsdóm Reykjavíkur næst-
komandi septembermánuð.
Hefur Ágúst Þór komið víða við,
hann var einn aðalhöfunda skýr-
slu Hagfræðistofnunar Háskóla Ís-
lands um stöðu aðildarviðræðn-
anna við Evrópusambandið og
um tíma ritstjóri Tímans. Hann er
framkvæmdastjóri Heimskauta-
réttarstofnunar og var fyrsti fram-
kvæmdastjóri Mannréttindaskrif-
stofu Íslands. Hefur hann í seinni
tíð nokkuð tjáð sig um endurskoðun
stjórnarskrárinnar og var gagnrýninn
á tillögur stjórnlagaráðs í umsögn
sinni til stjórnskipunar- og eftirlits-
nefndar Alþingis. n
hjalmar@dv.is
Aðjúnkt Ágústi Þór verður
mögulega gert að víkja úr hús-
næði sínu í miðbæ Akureyrar.
Jón Snorri fær
vinnu á Bifröst
n Var dæmdur fyrir skilasvik í fyrra n Rektor líkir honum við Jordan Belfort
J
ón Snorri Snorrason, fyrrum
lektor við viðskiptafræðideild
Háskóla Íslands og forstöðu-
maður MBA-náms, mun hefja
störf við Háskólann á Bifröst
á komandi misserum. Vilhjálmur
Egils son, rektor Háskólans á Bifröst,
ber Jón Snorra saman við úlfinn á
Wall Street, Jordan Belfort, í samtali
við DV.
Jón Snorri var dæmdur í sex
mánaða skilorðsbundið fangelsi fyr-
ir skilasvik árið 2013 fyrir að hafa
sem eigandi og framkvæmdastjóri
einkahlutafélagsins Agli ehf. veðsett
Sparisjóð Mýrasýslu 33,33 prósent
vegna láns sparisjóðsins við iðnfyrir-
tækið Sigurplast sem var í eigu Agla,
þrátt fyrir að hafa hinn 14. júlí 2008
undirgengist kvöð um að veðsetja
ekki né selja hluti Agla í Sigurplasti.
Fyrsta kennsla í fimm ár
Er þetta í fyrsta skipti frá því hann var
fyrst ákærður sem hann sinnir al-
mennum kennslustörfum. Strax og
hann var ákærður fór hann í leyfi frá
kennslu við Háskóla Íslands meðan
sérstök nefnd skoðaði mál hans. Í
upphafi þessa árs staðfesti Daði Már
Kristófersson, deildarforseti félags-
vís- indasviðs Há-
skóla Íslands,
í samtali við
DV að Jón
Snorri
væri end-
anlega
hættur
kennslu
hjá skól-
anum.
Vil-
hjálmur
Egilsson
segir
enn
óvíst nákvæmlega hvað hann muni
kenna við háskólann. „Þetta er ekki
komið svo langt enn þá en það eru
pælingar varðandi símenntun. Það
má segja að það væri helst þróunar-
starf í því samhengi,“ segir hann. Tel-
ur hann ekki alls kostar óvíst að Jón
Snorri muni auk þessa kenna nám-
skeið við skólann, þótt óákveðið sé
hvaða námskeið það yrðu.
Umdeild ráðning
Segir Vilhjálmur að umræða hafi
farið fram innan skólans um hvort
æskilegt væri að ráða Jón Snorra.
„Hann er búinn að taka sinn dóm.
Það er spurning hvort það sé okkar
hlutverk að refsa honum. Við rædd-
um þetta hérna innandyra eftir að
hann fékk dóm og það varð mjög
víðtæk umræða um það. Spurn-
ingin er hvenær mönnum er refsað
og hver á að gera það. Eigum við að
taka það að okkur að halda áfram
að refsa viðkomandi?“ spyr rektor.
„Það eru nú margir sem hafa hætt
í öðrum skólum sem hafa kom-
ið til okkar, það er ekki bara hann.
Fólk fer nú á milli skóla,“ segir Vil-
hjálmur spurður um hvort það sé
ekki óheppilegt fyrir orðstír Háskól-
ans á Bifröst að maður sem hafi ver-
ið látinn fara frá Háskóla Íslands fari
beint til þeirra.
Nemendur geta lært af mistökum
Segir Vilhjálmur að sakaferill Jóns
Snorra geti mögulega komið sér vel
fyrir nemendur og þeir lært af hans
mistökum. „Það gæti verið mjög eðli-
legt að hann yrði spurður um þetta í
tímum. Var ekki hérna einhver mað-
ur sem búin var til um heil bíómynd
sem kom hérna og hélt erindi? Það var
mikil umræða um það í samfélaginu
og fyllti hann ekki bíóið? Spurningin
er hvort eitthvað sé að sækja til við-
komandi einstaklings. Sá var dæmdur
með stæl en hann fer um heiminn og
fólk hlustar á hann,“ segir Vilhjálmur.
„Hvar liggja mörkin?“
„Væri betra að hafa dæmdan nauð-
gara hérna?“ svarar Vilhjálmur spurð-
ur um hvort helsti munurinn á Jóni
Snorra og öðrum afbrotamönnum
snúi ekki fyrst og fremst að því að hans
brot voru innan þeirrar greinar sem
hann mun nú kenna. „Nei, en fyrst
þú spyrð að þessu þá er hægt að spá í
það hvaða refsibrot væru tæk að þínu
mati?“ spyr Vilhjálmur. Spyr blaða-
maður þá á móti hvort ekki væri best
að hafa kennara með hreina sakaskrá.
„Það eru nú allir sammála um það.
Svo er það spurning um það hvenær
á að afskrifa viðkomandi talent. Hvar
liggja mörkin?“ n
„Væri betra
að hafa
dæmdan nauðg
ara hérna?
Dæmdir fyrir
umfjöllun
Fréttastjóri DV, Ingi Freyr Vilhjálmsson,
ásamt ritstjórum DV, þeim Jóni Trausta
Reynissyni og Reyni Traustasyni,
voru dæmdir í Hæstarétti til þess að
greiða Jóni Snorra miskabætur vegna
umfjöllunar DV um að Jón Snorri sætti
lögreglurannsókn. Þá höfðu þrjár kærur
á hendur honum verið sendar lögreglu
og voru þar til skoðunar. Þeir voru því
dæmdir fyrir að segja að verið væri að
„rannsaka“ Jón Snorra en ekki að mál
hans væru til „skoðunar“. Hæstiréttur
taldi að með notkun orðsins væri „gerð
atlaga að mannorði stefnda“.
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
Rektor Vilhjálmur
Egilsson segir að
mikið hafi verið rætt
innanhúss hvort
skólinn ætti að ráða
Jón Snorra.
Nýr starfskraftur
Jón Snorri tekur til
starfa við Háskólann
á Bifröst. Líklegt er
að hann taki að sér
þróunarvinnu við
símenntun.
MyNd SigtRyggUR ARi
Viltu vinna
miða?
Ljósmyndasamkeppni DV
DV efnir um helgina til ljós-
myndasamkeppni á DV.is.
Í verðlaun eru tveir miðar á
Secret Soltice-hátíðina sem
fram fer í Laugardalnum í
Reykjavík helgina 20. til 22. júní.
Verðmæti vinningsins er um 40
þúsund krónur.
Ljósmyndarar DV velja á
mánudagsmorgun tíu bestu
sumarmyndirnar sem berast á
netfangið sumarmyndir@dv.is
um helgina og efna í kjölfarið til
Facebook-kosningar á DV.is á
vefnum. Sú mynd sem fær flest
atkvæði vinnur. Sigurvegarinn
verður tilkynntur næstkomandi
föstudag, í helgarblaði DV.
Dæmdur í 10
ára fangelsi
Hæstiréttur hefur þyngt dóm
yfir Stefáni Reyni Heimissyni,
34 ára karlmanni sem nam tíu
ára stúlku á brott og nauðgaði
henni. Stefán nam stúlkuna á
brott í Vesturbænum í maí í fyrra
og ók með hana í Heiðmörk þar
sem hann nauðgaði henni. Hér-
aðsdómur Reykjavíkur hafði
dæmt hann í sjö ára fangelsi en
Hæstiréttur þyngdi dóminn í tíu
ára fangelsi. Í dómsorði Hæsta-
réttar segir að brotin hafi verið
„þaulskipulögð“ og að þau lýsi
„styrkum og einbeittum brota-
vilja hans“. Þá var kynferðisbrotið
framið á „sérstaklega meiðandi
hátt“, og á „varnarlausu barni,
sem átti sér einskis ills von“.