Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2014, Side 11
Helgarblað 13.–16. júní 2014 Fréttir 11
VATNSHELDAR TÖSKUR OG SJÓPOKAR
margar gerðir, stærðir og l itir
í húsi Hirzlunnar, Smiðsbúð 6,
Garðabæ, s ími : 564 5040
Duffle
Big Zip
Rack-Pack
X-tremer
PS 10
Moto dry bag
PD 350
Sölustaðir:
Ellingsen
Útilíf Smáralind og Glæsibæ
PD 350
SyStur og dætur
voru „off limitS“
n Hells Angels glímdu við fjárhagsvandræði n Var ráðlagt að hafa sig hæga árið 2012 af „kallinum“
Á hjólunum
Mikilvægt var að
hjólin yrðu komin
í lag fyrir 1. maí.
Hells angels
Dagbækurnar
– 3. hluti –
S
tjórnvöldum ber að grípa
til aðgerða gegn súrnun
sjávar vegna sívaxandi los-
unar koltvísýrings í and-
rúmsloftið. Súrnun sjávar norð-
ur af Íslandi mælist nú tvöfalt
hraðari en sunnar í Atlantshafi.
Þetta kemur fram í ályktun sem
samþykkt var á aðalfundi Nátt-
úruverndarsamtaka Íslands sem
haldinn var á miðvikudag. Í álykt-
uninni kemur fram að slíkar að-
gerðir gegn súrnun sjávar kalli á
alþjóðlegt samstarf. „Þær þjóðir
sem standa Íslendingum næst í
baráttunni við loftslagsbreytingar
eru þær sem byggja láglendar
eyjar á borð við Seychelles-eyj-
ar og Kiribati. Súrnun sjávar ógn-
ar efnahag Íslands ekki síður en
hækkun sjávaryfirborðs ógnar til-
veru þeirra sem byggja láglend
eyríki í Kyrrahafi, Indlandshafi
og Karíbahafi,“ segir í ályktun-
inni. Þar segir enn fremur að kalk-
myndandi lífríki, kórallar og skel-
dýr, séu í mestri hættu við súrnun
hafsins. „Vísindamenn hér heima,
milliríkjanefnd Sameinuðu þjóð-
anna um loftslagsbreytingar og á
vegum Norðurskautsráðsins hafa
bent á að afleiðingarnar fyrir fjöl-
breytni lífríkis í hafinu og fæðu-
keðju nytjastofna geta orðið afar
neikvæðar.“ Þá skiptir ekki síður
máli, samkvæmt Náttúruverndar-
samtökum Íslands, að við aukna
súrnun missi hafið hæfileika sinn
til kolefnisbindingar, sem eyk-
ur enn á loftslagsvandann. Mik-
ilvægt sé að efla rannsóknir á
þessu sviði, bæði á alþjóðavísu
og á hafsvæðinu í kringum Ísland.
„Til að Íslendingar geti beitt sér
í alþjóðasamstarfi gegn súrnun
sjávar verður þjóðin að hafa trú-
verðugleika á sviði loftslagsmála.
Áform um olíuvinnslu á Dreka-
svæðinu ganga þvert á fyrri stefnu
Íslands í loftslagsmálum og rýra
traust á Íslandi sem forystuafli
gegn loftslagsbreytingum. Aðal-
fundur Náttúruverndarsamtak-
anna beinir því til stjórnvalda að
leggja af áform sín um olíuvinnslu
á Drekasvæðinu.“ n
Áhyggjur af
súrnun sjávar
Vilja leggja af áform um olíuvinnslu á Drekasvæðinu
Áhyggjuefni Náttúru-
verndarsamtök Íslands segja
að stjórnvöld verði að grípa
til aðgerða vegna súrnunar
sjávar norður af Íslandi.
Þ
að er mjög stutt í að við
gerumst fullgildir meðlim-
ir. Það er sama hvað verð-
ur reynt, þá verðum við ekki
stöðvaðir,“ sagði Einar Ingi Mart-
einsson, betur þekktur sem Einar
Boom, í viðtali við DV vorið 2010.
Þá hétu Vítisenglar MC Prospect
of Hells Angels Iceland og byggð-
ist félagsskapurinn upp af aðil-
um sem áður höfðu verið í vél-
hjólaklúbbnum Fáfni. Einar Ingi
varð formaður hópsins þegar Jón
Trausti Lúthersson hætti í klúbbn-
um, en það var áður en Fáfnir varð
að stuðningshópi Hells Angels.
Árið 2007 gaf ríkislögreglustjóri
út skýrslu þar sem hann lýsti því
yfir að tengsl Fáfnis við Hells Ang-
els væri ógn við þjóðaröryggi Ís-
lendinga enda væru Hells Angels
skilgreind sem alþjóðleg glæpa-
samtök sem stunduðu skipulagða
glæpastarfsemi.
Ferðuðust
Meðlimir MC Iceland ferðuðust
víða á þessum tíma til að heim-
sækja Hells Angels-hópa erlend-
is. Það var eitt af skilyrðunum fyrir
því að þeir fengju aðgang að hópn-
um, að kynna sér aðra hópa og gefa
þeim færi á að kynnast þeim. Þeir
voru það sem kallað er áhangend-
ur Hells Angels og gátu því tekið
upp nafnið með hliðsjón af því að
þeir væru „prospect“ eða verðandi
meðlimir. Á þessum tíma voru
meðlimir vélhjólaklúbbsins sýni-
legir og mikið var rætt um samtök-
in bæði í fjölmiðlum og almennt.
Þegar DV leitaði eftir svörum frá
Hells Angels í Noregi um það hvort
það gæti staðist að Hells Angels
væru að ná fótfestu á Íslandi voru
svörin eftirfarandi: „Ísland verð-
ur blessað með alþjóðlegum mót-
orhjólaklúbbi.“ Það var þó þvert á
það sem bæði ríkislögreglustjóri
og aðrir spáðu. Líkti prófessor í
félagsfræði slíkum samtökum við
krabbamein í samfélaginu enda
fylgdi þeim oftast skipulögð glæpa-
starfsemi. „Alls staðar þar sem
Hells Angels hafa náð að skjóta rót-
um hefur aukin skipulögð glæpa-
starfsemi fylgt í kjölfarið,“ sagði
ríkislögreglustjóri í ágúst 2009 og
benti á að tilraunir Hells Angels
til að ná fótfestu á Íslandi mætti
rekja ein sjö ár aftur í tímann, hið
minnsta, eða til ársins 2002.
MC Iceland kom sér upp stuðn-
ingsmannaneti annarra vélhjóla-
klúbba hér á landi, meðal annars
hópnum Souls of darkness.
Strangar reglur giltu um þá með-
limi líkt og aðra Hells Angels-með-
limi og kastaðist stundum í kekki
meðal þeirra.
Mikið eftirlit
Erlendir Hells Angels-meðlimir
reyndu að komast til Íslands en var
iðulega snúið við á Keflavíkurflug-
velli. Dagbækurnar gefa þó til kynna
að einhverjir aðilar hafi komist inn í
landið. Samtökin skipulögðu þar að
auki skemmtikvöld og veislur og líkt
og áður sagði ferðuðust þau víða.
Árið 2011 reyndist vera vendip-
unktur í starfi samtakanna. Þá voru
samtökin tengd við líkamsárás í
Hafnarfirði rétt fyrir jólin. Einar Ingi
var sagður tengjast árásinni, en var
síðar hreinsaður af öllum ásökun-
um á báðum dómstigum. Þegar
hann sat í gæsluvarðhaldi var hann
settur af sem formaður. Frá árinu
2012 hefur lítið borið á samtökun-
um og hefur lögreglan sagt að sam-
tökin glími við ákveðna leiðtoga-
krísu. Þó megi ekki slá af eftirliti
með samtökum á við Hells Angels,
enda ekki hægt að útiloka endur-
komu þeirra á Íslandi. n
„Ísland verður blessað með
alþjóðlegum mótorhjólaklúbbi“
Lögreglan fylgdist vel með Hells Angels
Vildu koma hingað Hells Angels höfðu hugsað sér að koma til Íslands frá árinu 2002
segir lögreglan. Hér má sjá gamla hús Fáfnis sem með tíð og tíma varð að Hells Angels.
í fyrsta og annað skiptið sem ein-
hver mætti ekki átti að greiða fimm
þúsund krónur í sekt til vítisengla.
Sá sem skrópaði í þriðja sinn missti
vestið sitt, það er einkennisbúning
vítisengla, og það sett í box.
Þeir sem ekki mættu á vaktir
máttu búast við sömu viðurlögum.
Þeir sem ekki höfðu komið hjólun-
um sínum í stand fyrir 1. maí þetta
árið urðu einnig sviptir vestinu
sínu, en þá í þrjá mánuði, eða allt
sumarið.
Þeir sem urðu uppvísir að lyg-
um eða svikum yrðu kosnir út í
„bad standing“ sem þýðir tafarlaus
brottvikning og getur þýtt enn fleiri
viðurlög. Þá var ákveðið að fimmta
regla klúbbsins væri sú að: Konur
dættur [sic] systur, fyrrverandi off
limit nema með leifi [sic] viðkom-
andi member“.
Þeir sem ætluðu svo að hætta
í Hells Angels þurftu að greiða sex
mánaða félagsgjöld, en þeir sem
voru verðandi meðlimir og vildu
hætta áttu að greiða þriggja mánaða
félagsgjöld.
Verndarsjóður
En peningavandræðin sem blöstu
við vítisenglum á þessum tíma
voru fleiri. Vildu þeir koma sér
upp svokölluðum „defence fund“
eða verndarsjóði sem nota átti fyrir
meðlimi. Þeir gátu sótt styrki þang-
að ef þeir þyrftu til dæmis á lög-
fræðingum að halda eða kæmust
í kast við lögin. Slíkir sjóðir eru vel
þekktir og því einkennilegt að slíkur
sjóður hafi ekki verið til frá upphafi.
„Defence found [sic] það þarf að
fara að gera eitthvað. Búa til pen-
ing,“ segir í fundargerðabókinni
hinn 19. janúar 2012. Ætla má að
samtökin hafi verið að búa sig und-
ir erfiða tíma, enda voru þau undir
miklu eftirliti lögreglunnar. n
„Óskar og Ingvar
hittu kallinn í
morgun og var hann rosa
jákvæður og nefndi að
gíra okkur niður og hætta
þessum stórkarlaleik.