Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2014, Síða 23
Fréttir 23Helgarblað 13.–16. júní 2014
Ræktaði
kannabis
Héraðsdómur Reykjavíkur hef-
ur dæmt karlmann á fimmtugs-
aldri í fimm mánaða skilorðs-
bundið fangelsi fyrir að hafa í
vörslum sínum 302 kannabis-
plöntur og tæp fimm grömm af
kannabislaufum. Efnin fund-
ust í bílskúr að Eldshöfða í mars
2009. Maðurinn játaði brot sitt
skýlaust fyrir dómi, en hann
hefur ekki áður sætt refsingu
svo kunnugt sé. Dómurinn yfir
manninum er skilorðsbundinn
til tveggja ára. Auk þess að sæta
fyrrgreindri refsingu var mann-
inum gert að greiða málsvarnar-
laun verjanda síns, 125.500
krónur, og annan sakarkostnað,
103 þúsund krónur.
Fundu safn
Sigmundar
Iðnaðarmenn rákust á hluta af
safni Sigmundar Davíðs Gunn-
laugssonar forsætisráðherra
undir gólffjölum í Útvarpshús-
inu í Efstaleiti. Um er að ræða
allnokkur skjöl og rit sem for-
sætisráðherra hafði komið fyrir
er hann starfaði hjá RÚV á árum
áður, en skjölin eru frá því að
RÚV var til húsa á Laugavegi.
Er RÚV var flutt upp í
Efstaleiti ákvað Sigmundur
að bjarga fimmtíu kössum af
„sögulegum verðmætum“, en
Sigmundur sagði frá málinu í
viðtali við DV árið 2012: „Kon-
unni minni finnst þessi söfn-
unarárátta fullmikið af því góða
en ég hef tilhneigingu til að
hirða hluti og geyma allt sem
mér finnst sögulegt og sérstakt.
Ég var að vinna á RÚV þegar
flutt var af Laugaveginum upp
í Efstaleiti og eins og oft í flutn-
ingum rann æði á menn að
henda og jafnvel því sem mér
þótti söguleg verðmæti,“ sagði
Sigmundur.
„Ég tók mig til og reyndi að
bjarga þessum minjum og hrúg-
aði í eina 50 kassa. Sumir þeirra
eru í geymslu en aðrir eru faldir
í húsi Ríkisútvarpsins þar sem
ég mun vísa á þá þegar menn
hafa komið sér upp aðstöðu til
að geyma þetta.“
Á vef RÚV er sagt frá fundin-
um en skjölin fundust er gólf-
fjalir voru rifnar upp á fimmtu-
dag. „Starfsmenn RÚV hafa nú
friðlýst svæðið og bíða þess að
Sigmundur Davíð komi og vitji
pappíranna. Þá vonast þeir til
að hann vísi á hvar afganginn af
safninu er að finna,“ segir í frétt
RÚV.
Harmleikur við
Bleiksárgljúfur
n Pino Becerra var 42 ára íþróttafræðingur n Enn leitað að íslensku konunni
K
onan sem lést í Bleiksárgljúfri
í Fljótshlíð hét Pino Becerra.
Hún var 42 ára gömul og
frá Kanaríeyjum. Hún var
íþróttafræðingur að mennt
og hafði mikla reynslu af þjálfun. Hún
flutti til Íslands í mars síðastliðnum.
Mikil leit hefur verið gerð að ís-
lenskri konu á fertugsaldri við gljúfrið
síðastliðna tvo daga. Konan var á
ferð með Pino. Samkvæmt upplýs-
ingum DV dvöldu konurnar í sum-
arbústað fjölskyldu þeirrar íslensku í
Fljótshlíðinni. Leitin hófst á þriðjudag
þegar haft var samband við Lands-
björg og lögreglu þar sem ekkert hafði
heyrst frá konunum frá laugardegi og
til þriðjudags. Til íslensku konunn-
ar hefur ekkert spurst fyrir utan spor
sem leitað var eftir á fimmtudag og
eru talin vera hennar.
Hurfu á sunnudag
Í fyrstu var talið að konurnar hefðu
farið frá bústaðnum á laugardags-
kvöldinu, en nú er talið líklegt að
konurnar hafi farið út á sunnudags-
morgninum. Föt sem fundust við hyl
í gljúfrinu eru líklega af konunum, þó
það hafi enn ekki verið full staðfest
að sögn lögreglu. Allar líkur eru þó á
því þar sem borin hafa verið kennsl á
hluta fatnaðarins. Þykir líklegt að kon-
urnar hafi ætlað að synda inni í gljúfr-
inu. Samkvæmt upplýsingum DV er
hitastig vatnsins í gljúfrinu um tvær
gráður, 2°C. Vatnið er því mjög kalt
og erfitt að synda í því til lengri tíma
og auðvelt að ofkælast. Þá eru margir
hylir í gljúfrinu sem eru varhugaverð-
ir. Gljúfrið er bæði skuggsælt og ansi
bratt. Dánarorsök Pino er ekki þekkt,
en það er ekki talið að hana hafi bor-
ið að með saknæmum hætti. Sveinn
Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn
á Hvolsvelli, segir lögreglu ekki enn
hafa náð að móta atburðarás sem gæti
líklega útskýrt hvarf kvennanna. „Nei,
ég get ekki sagt það. Þetta er mjög
óljóst því það er enginn til frásagnar.“
Mikill viðbúnaður
Viðbúnaðurinn hefur verið mik-
ill og leitarsvæðið er nú um 6,5 km
radíus frá Bleiksárgljúfri. Þegar ljós-
myndara DV bar að garði á fimmtu-
dag hafði leitarsvæðinu verið lok-
að af enda höfðu fundist fótspor eftir
berfætta manneskju. Tilraunir voru
gerðar til að staðfesta að sporin væru
eftir íslensku konuna sem enn er leit-
að að. „Þau eru innan leitarsvæð-
isins sem við vorum með í gær og í
nótt. Þetta er rúmum þremur kíló-
metrum fyrir austan gljúfrið,“ sagði
Sveinn. Sporin fundust við Marðar-
árgljúfur sem er í útjaðri leitarsvæð-
isins og í um 400 metra hæð yfir sjáv-
armáli. Sporin voru fremur óljós sem
gerði allar mælingar mjög erfiðar, en
þó var unnið eftir þeim á fimmtudag.
Leitinni var haldið áfram á öllu svæð-
inu, en sérstakri athygli beint að þess-
um sporum.
Seinnipart fimmtudags streymdu
björgunarsveitarmenn að leitarsvæð-
inu og um klukkan þrjú voru margir
að búa sig undir að hefja leit en voru
ekki lagðir af stað. Leitarmenn höfðu
þá leitað frá þriðjudagskvöldi og eru
allt að 90 björgunarsveitarmenn sem
taka þátt í leitinni. Þeir höfðu margir
hverjir aðeins fengið um tveggja
klukkutíma svefn á fimmtudags-
morgun þegar leit hófst að nýju. Mat
björgunarsveita er að fullleitað sé í
Bleiksárgljúfri, en seinnipart fimmtu-
dags var unnið að því að stífla aðra
reinina í fossinum í Bleiksárgljúfri.
Með því var vonast til þess að hægt
sé að leita í skúta bak við fossinn. Þar
höfðu köfunarhópar verið að störfum
í sólarhring auk sérhæfðra leitarhópa
og leitarhunda. Þegar DV náði tali af
Sveini rétt áður en blaðið fór í prentun
kom fram að leita átti áfram fram eft-
ir kvöldi. Þá hafði leitin að konunni
engan árangur borið en leitinni var
fram haldið af fullum þunga. n
Bleiksárgljúfur
Bleiksárgljúfur er í Fljótshlíð. Það
þykir mjög fallegt og er kjarri vaxið. Inn
gljúfrið rennur Bleiksá og hár foss er inni
í gljúfrinu. Hægt er að ganga að því bæði
úr austurátt og vestur.
Þegar ofar kemur í gljúfrið er það þver-
hnípt, hyldjúpt og örmjótt. Það hefur
fallið saman enn ofar í gilinu en hægt
er að fara yfir og niður hinum megin við
það, segir á vef Kötlu Geopark.
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is „Þetta er mjög
óljóst því það er
enginn til frásagnar.
Við svæðisstjórn Björgunarsveitir og lögregla stjórnuðu leitinni frá Emstruafleggjara.
Umfangsmikil leit Björgunarsveitir hafa fínkembt svæðið jafnt á láglendi sem upp til fjalla. Myndir SigtryggUr Ari
Við Fljótsdal Fótspor eftir berfætta manneskju fundust í grennd við þennan foss ofan
við bæinn Fljótsdal.
Leitarsvæðið Hér má sjá leitarsvæðið sem unnið er eftir. Það er um sex kílómetrar og nær því
að Marðará, en við Marðarárgljúfur fundust fótsporin. Bleiksá rennur inn í Bleiksárgljúfur. Ætla
má að leitarsvæðið nái í sex kílómetra radíus frá Bleiksárgljúfri samkvæmt upplýsingum DV.
Fannst látin Pino Becerra var 42 ára
gömul og frá Kanaríeyjum. Hún flutti til
Íslands í mars síðastliðnum.