Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2014, Side 32
Helgarblað 13.–16. júní 201432 Fólk Viðtal
É
g ráðlegg engum að leggja þetta
fyrir sig – ekki nema ástríðan sé
til staðar því þetta er hugsan-
lega með erfiðari störfum sem
hægt er að velja sér. En svo,
þegar þetta fer að rúlla og þú verður
betri og stærri nöfn vilja vinna með
þér, verður þetta auðveldara – eins og
með flest annað,“ segir kvikmynda-
og sjónvarpsframleiðandinn Margret
Hrafnsdóttir sem er stödd hér á landi,
meðal annars við tökur á sjónvarps-
þáttum sem sýndir verða hér á landi
í haust.
Erfið meðganga
Margret og eiginmaður hennar, Jón
Óttar Ragnarsson, hafa búið í Banda-
ríkjunum síðustu 22 árin með stutt-
um hléum þar sem þau hafa unnið
hörðum höndum að því að koma sér
áfram í kvikmyndabransanum. Nú,
segir Margret, eru þau loksins far-
in að sjá fram á að uppskera árangur
sem erfiði. Mörg spennandi verkefni
eru fram undan. Þar á meðal stór-
myndirnar Terra Infirma sem þurfti
að endurfjármagna að hluta til aftur,
sem var að klárast, og Kill the Poet, en
bankahrunið setti stórt strik í reikn-
inginn með þá síðarnefndu.
„Meðgangan er búin að vera erfið
og fæðingin enn erfiðari. Við þurftum
að endurfjármagna eftir bankahrun.
Það hefur kostað gríðarlega mikið að
halda verkefninu áfram.
Ég mæli ekki með því að fólk sé
með of mörg stór gæluverkefni í gangi
í einu. Hins vegar er það á hreinu,
eins og Sherry Lansing hefur sagt, að
hennar reynsla var sú að allar bestu
myndirnar sem hún kom að voru
þær sem voru erfiðastar í meðgöngu
og fæðingu,“ segir hún en Lans-
ing var einhver farsælasti yfirmað-
ur framleiðslustúdíós í Hollywood
til margra ára og öflugur framleið-
andi mynda eins og Fatal Attraction
og The Accused og hafði yfirumsjón
með gerð Titanic og Forrest Gump
hjá Paramount-kvikmyndaverinu.
„Meðaltími stórmynda í fram-
leiðslu eru sex til átta ár. Við höfum
verið í átta ár með Kill the Poet þang-
að sem hún er stödd núna. Og það án
ríkisstyrkja. Við höfum þurft að koma
okkur þangað öðruvísi.“
Oft íhugað uppgjöf
Margret viðurkennir að starf fram-
leiðandans sé það slítandi að hún hafi
íhugað að snúa sér að öðru. „Margoft
hefur mig langað til þess en að mínu
mati er Kill the Poet meistaraverk.
Þegar þú hefur Hollywood-elítuna
með þér í verki veistu að þú ert með
eitthvað spennandi í höndunum. Við
erum viss um að myndin eigi eftir að
vekja mikla athygli, bæði á íslensk-
um listamönnum og Íslandi yfirhöf-
uð. Hún á svo marga stuðningsmenn
úti í heimi,“ segir hún og bætir við að
tökur hefjist vonandi í haust. „Það
er samt ekkert komið fyrr en það er
komið. Svoleiðis virkar þessi heim-
ur. Það skiptir ekki máli hversu öfl-
ugir fjárfestar eru á bak við verkefnin
– ekkert er klárt fyrr en það er klárt.“
Kill the Poet fjallar um skáldið
Stein Steinar og samband hans við
listakonurnar Nínu Tryggva og Lou-
isu Matthíasdóttur. Anita Briem og
Nína Dögg Filippusdóttir leika lista-
konurnar en myndin verður bæði á
íslensku og ensku og mun því eiga
möguleika á verðlaunahátíðum í
flokknum Besta erlenda myndin og
þangað stefnir Margrét. „Mér finnst
leiðinlegt að stefna lágt í lífinu og
miðað við það fólk sem hefur bor-
ið myndina á höndum sér er það vel
mögulegt. Það er einmitt út af svona
rullum sem menn fá tilnefningar.“
Stórfjölskyldur þeirra Jóns Óttars
Lifir ekki í lúxus
Margret Hrafnsdóttir lét ung að sér kveða þegar hún stjórnaði eigin
útvarpsþætti á Bylgjunni aðeins 17 ára. Nokkrum árum seinna hafði hún náð
sér í 25 árum eldri athafnamann og flutt með honum til Los Angeles til að láta
draumana rætast. Indíana Ása Hreinsdóttir ræddi við Margreti um sambandið
við Jón Óttar, aldursmuninn, fjölskylduna, frægðina, kjaftasögurnar, áfengis-
meðferðina sem bjargaði henni og kvikmyndabransann í Hollywood en þau Jón
Óttar eru loksins að uppskera árangur sem erfiði eftir áralanga þrotlausa vinnu.
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
„Þetta var
stórkostlega
skemmtilegur tími
en skuggahliðarnar
voru líka margar