Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2014, Síða 40
Helgarblað 13.–16. júní 201440 Skrýtið
Milljón deyja vegna
reykinga Kínverjar hafa um langt
skeið verið miklir reykingamenn og er talið að
reykingar dragi um milljón einstaklinga til
dauða á hverju ári. Til að setja fjöldann í
samhengi er þetta rúmlega allur íbúafjöldi
Kýpur og þrefaldur íbúafjöldi Íslands.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, hefur
gefið það út að fyrir árið 2050 muni reykingar
draga um þrjár milljónir íbúa til dauða.
Fimmtán ótrúlegar
staðreyndir um Kína
n Milljón deyja vegna reykinga n 30 milljónir búa í hellum n Borða allra þjóða mest af svínakjöti
K
ína er eins og flestir vita fjöl
mennasta ríki heims og eru
þeir rúmlega fjögur þúsund
sinnum fleiri en íbúar Ís
lands. Eins og gefur að skilja
er allt talsvert stærra og meira í Kína
en gengur og gerist í öðrum meðal
stórum ríkjum, hvað þá Íslandi.
Business Insider tók á dögunum
saman nokkrar ótrúlegar staðreyndir
um þetta fjölmennasta ríki heims. n
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Milljónir trjáa
í matprjóna Talið er að
Kínverjar noti um 80 milljarða para af
einnota matprjónum á ári. Prjónarnir eru
alla jafna tuttugu sentímetrar að lengd og
til að búa alla þessa prjóna til eru tuttugu
milljónir trjáa felld á hverju ári. Flest trén
sem felld eru vegna þessarar risavöxnu
framleiðslu eru um tuttugu ára gömul.
Nota mest af sementi af öllum Kínverjar hafa byggt og byggt
á undanförnum árum og framleiða allra þjóða mest af sementi. Svo mikil var framleiðslan árin
2011 og 2012 að þeir framleiddu meira magn en Bandaríkjamenn gerðu alla 20. öldina. Talið er að
Kínverjar framleiði og noti um 60 prósent alls sements sem framleitt er á jörðinni.
30 milljónir búa í hellum Fjölmargir Kínverjar verða að gera sér að
góðu að búa í hellum. Talið er að fjöldinn nemi um 30 milljónum og eru þeir flestir í Shaanxi-
héraði sem er inni í miðju landi. Fjöldinn jafngildir öllum íbúum Sádi-Arabíu. Margir merkir
menn hafa búið í hellum. Þannig var greint frá því að Xi Jinping, forseti landsins, hafi neyðst til
að búa í helli um tíma þegar hann var sendur í útlegð í menningarbyltingunni árin 1966 til 1969.
Umhverfis jörðina
– tvisvar Járnbrautarkerfi Kína
hefur verið til lengi og enn eru nýjar brautir
lagðar til að koma til móts við þarfir íbúa.
Lengd þeirra jánbrautarteina sem eru í
notkun í Kína er 93.000 kílómetrar. Til
samanburðar er hringvegurinn, eða
Þjóðvegur 1, samtals 1.332 kílómetrar að
lengd. Teinarnir eru svo langir að þeir myndu
ná rúmlega tvo hringi umhverfis jörðina.
Ótrúlegar kolabirgðir
Kína býr yfir miklum kolabirgðum, eða þeim
þriðju stærstu í heimi. Talið er að magnið nemi
samtals 115 milljörðum tonna. Til samanburð-
ar má geta þess að stærsta spendýr jarðar,
steypireyðurin, er um það bil 200 tonn að
þyngd. Þetta þýðir að kolabirgðir Kínverja eru
álíka þungar og 575 milljónir steypireyða.
Talið er að Kínverjar noti 49 prósent af öllum
kolum sem unnin eru í heiminum.
Eyða meira og meira Sem fyrr segir hefur mikill uppgangur verið í
efnahagslífinu í Kína á undanförnum árum og hafa margir íbúar nú meira á milli handanna
en áður. Þetta mun ekki breytast ef marka má spár greiningaraðila. Talið er að einkaneysla
muni aukast úr 2,03 billjónum (milljón milljónum) í 6,18 billjónir árið 2020.
Elska svínakjöt Já,
Kínverjar borða um 52 milljónir tonna af
svínakjöti á ári og neyta allra þjóða mest af
því. Talið er að í Kína séu 475 milljónir svína,
eða helmingur allra svína í heiminum.
Sjálfsvíg eru algeng
Því miður eru sjálfsvíg býsna algeng í Kína
og svipta 22,2 íbúar sig lífi af hverjum
hundrað þúsund á ári hverju. Til saman-
burðar er tíðnin 10,3 á hverja hundrað
þúsund íbúa í Bandaríkjunum.
5.000 Eiffel-turnar
af svínakjöti Kínverjar borða
ekki núðlur í öll mál því svínakjöt á upp á
pallborðið hjá þeim einnig. Árið 2012 var
neyslan 52 milljónir tonna. Til samanburðar
er Eiffel-turninn, eitt helsta kennileiti
Parísar, tíu þúsund tonn. Magnið af
svínakjöti sem Kínverjar láta ofan í sig
jafngildir því þyngd um 5.200 Eiffel-turna.
Elska núðlur Árleg neysla
Kínverja á núðlum er talsverð, en talið er að
þeir hafi borðað 42,5 milljarða pakka árið
2011. Magnið myndi duga öllum íbúum Alsír í
þrjár núðlumáltíðir á dag, allan ársins hring,
en íbúar Alsír eru 38,7 milljónir talsins.
Jarðgas í bílförmum
Nokkuð mörgum bílförmum meira að segja.
Kína býr yfir ótrúlegu magni af jarðgasi þótt
þeir séu að vísu aðeins í 13. sæti meðal þjóða
hvað það varðar. Jarðgasið myndi duga til að
fylla 1,24 milljarða sundlauga í ólympíustærð.
Bara eitt tímabelti
Þó að Kína teygi sig yfir ansi stórt svæði er
bara eitt tímabelti í landinu. Áður en Maó
formaður ákvað árið 1949 að hafa bara eitt
tímabelti voru þau fimm talsins. Þetta þýðir
að í vissum landshlutum kemur sólin ekki
upp fyrr en um klukkan tíu að morgni.
Sokkaborgin
Datang Borgina Datang þekkja
eflaust ekki margir, nema þeir séu sérlegir
áhugamenn um sokka og uppruna þeirra. Í
borginni eru framleidd átta milljarðar para
af sokkum á hverju ári. Framleiðslan hefði
árið 2011 dugað í eitt par fyrir alla jarðarbúa.
Ríkir eru býsna ríkir
Milljarðamæringum hefur fjölgað ár frá ári í
Kína en uppgangur í landinu hefur verið
mikill. Tuttugu ríkustu Kínverjarnir eiga
samtals um 145 milljarða Bandaríkjadala. Til
samanburðar má geta þess að landsfram-
leiðsla Ungverjalands er 124 milljarðar dala.