Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2014, Page 44
Helgarblað 13.–16. júní 201444 Lífsstíll
Hringur sýnir
hver hringir
Frumkvöðullinn Christina
Mercando átti við það vanda-
mál að stríða að erfitt var fyrir
fjölskyldu hennar og vini að ná
í hana.
Það var svo einn daginn sem
Mercando fékk hugmynd sem
hún taldi að gæti verið lausn á
vandamáli hennar. Hún taldi svar-
ið vera tískufylgihlut sem konur
bæru á sér. Úr varð snjallhringur-
inn Ringly, hringur sem breytir
um lit eftir því hvað gerist í snjall-
síma notandans.
Hringurinn verður til dæm-
is grænn þegar einhver hringir
eða blár þegar hún fær skilaboð
á Facebook. Ringly-hringurinn
er líka búinn mótor sem hrist-
ist léttilega þegar einhver hringir
eða sendir skilaboð. Með Ringly
fylgir svo app sem hægt er að
nota til að stjórna litabreytingum
á hringnum.
Böggull fylgir þó skammrifi og
þarf notandinn að sjálfsögðu að
hlaða hringinn á tveggja til þriggja
daga fresti. Það er því spurning
hvort það sé ekki nóg að þurfa sí-
fellt að hlaða símann og tölvuna
eða hvort notendur nenni að bæta
enn einu tækinu við sem þarf að
hlaða reglulega. Hringarnir kosta
líka skildinginn en stykkið kostar
um 15.000 krónur í forsölu en
kemur til með að kosta tæplega
tvöfalt meira í almennri sölu.
Mercando náði að afla yfir
einni milljón dala fyrir verkefninu
hjá fjárfestum og munu fyrstu hr-
ingarnir fara í sölu í haust.
Telur kaloríurnar
Tæki sem skannar mat og gefur upp næringargildi
Þ
etta hljómar kannski eins og
eitthvað úr Star Trek-þætti
en fyrirtækið SciO segist hafa
þróað tæki sem gerir notand-
anum kleift að skanna matvöru og fá
uppgefið hvað næringarinnihald hans
er. Í kynningarmyndbandi frá fyrir-
tækinu skannar notandinn til dæmis
epli og upplýsingarnar birtast innan
nokkurra sekúndna á snjallsíma hans.
Tækið er mjög handhægt og pass-
ar til dæmis vel á lyklakippu. Fram-
leiðandinn segir að tækið noti sömu
tækni og stjarneðlisfræðingar noti til
að greina úr hverju fjarlægar stjörnur
eru gerðar, aðferð sem kallast litrófs-
greining. Tækið nemur hvaða frum-
eindir maturinn inniheldur og ber
þær saman við þekktar matvörur úr
gagnagrunni til að finna réttar upp-
lýsingar um næringargildi.
Eins og svo mörg fyrirtæki í dag
safnar fyrirtækið fé fyrir verkefninu
á vefnum Kickstarter, en ekki virð-
ast þeir vera í vanda með fjármögn-
un þar sem að tæp þriðja hálf milljón
bandaríkjadala hefur safnast, sem er
fjórfalt það fjármagn sem fyrirtækið
falaðist eftir.
Tækið er þó takmarkað á vissan
hátt, til að mynda getur það bara
greint matvöru sem er þegar í gagna-
grunninum og auk þess skannar tæk-
ið bara hluta vörunnar, þannig að
ekki er víst hvort það geti greint allt
innihald. n
A
pple hélt sína árlegu ráð-
stefnu fyrir hugbúnaðar-
þróendur á dögunum. Þar
fékkst staðfest að Apple
hyggðist þróa hugbúnað fyr-
ir raftæki sín sem einblínir á heilsu
notandans. Forritið, eða appið eins
og það kallast, heitir Apple Health
og er tilgangur þess að safna saman
þeim gögnum sem forrit í símanum
eða spjaldtölvunni safna um not-
andann. Áður fyrr þurfti notandinn
að opna hvert forrit fyrir sig til að sjá
upplýsingarnar, en með Health-app-
inu getur notandinn séð allar upplýs-
ingarnar á einum stað, settar fram á
einfaldan máta.
Vilja að læknar noti tæknina
með sjúklingum sínum
Forritið sýnir ekki einungis gögn um
hversu langt notandinn hefur geng-
ið heldur mun forritið geta sýnt
hjartslátt, blóðsykur og kólesteról.
Sumt getur notandinn séð með því
að ganga með einhvers konar tæki,
til dæmis heilsuarmband, en ann-
að þarf að slá inn sjálfur. Svo virð-
ist sem Apple horfi til framtíðar hvað
varðar þessa byltingu í heilsutækni
sem undið hefur upp á sig síðustu ár.
Apple vill að notendur og ekki síð-
ur læknar byrji að nota tæknina að
staðaldri. Upplýsingarnar munu til
dæmis gagnast læknum til að fylgjast
með heilsu sjúklinga sinna.
Starfa með
rannsóknarstofnunum
Apple hefur unnið náið með lækna-
og rannsóknarstofnuninni Mayo Cl-
inic, sem er ein sú fremsta í heimi á
sínu sviði. Í mars tilkynnti stofnun-
in um niðurstöður rannsóknar sem
þeir gerðu á sjúklingum sem notuðu
tækni sér til aðstoðar.
Rannsóknin var framkvæmd á
sjúklingum sem voru að ná sér eft-
ir hjartaáfall. Hluti sjúklinganna not-
aði app til að fylgjast með heilsu
sinni, þeir slógu inn upplýsingar á
borð við þyngd og blóðþrýsting og
einnig hversu mikla hreyfingu þeir
stunduðu. Appið greindi svo gögnin
og kom með ráðgjöf varðandi hreyf-
ingu og mataræði sjúklinganna.
Niðurstöðurnar leiddu svo í ljós að
aðeins 20 prósent þátttakendanna
voru lagðir inn aftur eftir 90 daga en
60 prósent þeirra sem nutu engrar að-
stoðar gegnum appið voru lagðir inn
eftir sama tíma.
Fleiri sjá möguleika
Það eru fleiri fyrirtæki sem sjá
möguleika í að heilsuvæða snjall-
síma og önnur tæki. Samsung kynnti
til dæmis á dögunum til sögunnar
svipað forrit og einnig tæki sem ætlað
er að fylgjast með heilsu notandans.
Samsung segir að sitt tæki geti mælt
ýmislegt í líkama notandans og jafn-
vel einnig hvað er í loftinu í kringum
hann.
Það er spurning hvernig neytendur
komi til með að taka þessum nýjung-
um og hvort þær verði jafn algengar í
notkun og Apple vonar. Búist er við að
Apple hefji á árinu sölu á tæki svipuðu
og Simband, en ekkert hefur þó verið
staðfest í þeim efnum. n
jonsteinar@dv.is
Snjallsíminn mun
vakta heilsuna
Af hverju vilja fyrirtæki fylgjast með heilsu notenda sinna?
Apple Health Svona munu heilsugögn
birtast notandanum í iPhone.
Of hár blóðþrýstingur?
Apple sér fyrir sér að í fram-
tíðinni geti notandinn nýtt sér
snjallsímann til að fylgjast
með heilsunni.
Heilsuarmband frá Apple vænt-
anlegt? Margir telja að Apple vinni nú
að einhvers konar tæki sem snúi að heilsu
notandans og veðja flestir á að það verði
einhvers konar úr eða armband.
EyeSlices augnpúðar
Ferskari augu á 5 mínútum
Púðana má nota í 10 skipti
facebook.com/Eyeslices/IcelandUpplýsingar um sölustaði: