Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2014, Qupperneq 46
Helgarblað 13.–16. júní 201446 Lífsstíll
Þetta skaltu ekki
geyma í ísskápnum
V
issar matartegundir
geymast betur í kulda
en aðrar. Oft gætir líka
ákveðins misskilnings um
hvaða tegundir geymist
best í kæli. Þessar til dæmis gera
það ekki:
Tómatar
Flestir geyma tómata í ísskáp. Það
er hins vegar alls ekki besti staður
inn því tómatar elska hita en hata
kulda. Í ísskáp verða þeir fljótt lin
ir en halda sér mun lengur ef þeir
eru geymdir fyrir utan ísskápinn.
Best er að geyma þá til dæmis í
skúffu eða skáp þar sem sólin skín
ekki beint á þá.
Basilika
Basilika hefur svipaðar geymslu
þarfir og tómaturinn. Hann má
ekki vera í of miklum hita og held
ur ekki of miklum kulda. Sama og
með tómatinn þá veldur kuldinn
því að basilikan helst ekki ferskt
jafn lengi. Þess vegna er betra að
geyma hana á heitum stað. Hægt
er að geyma hana í glasi með vatni
í og setja smá plast yfir en passa
samt að þekja það ekki alveg því
það verður að komast loft inn.
Laukur
Laukur á frekar til að mygla í ís
skáp heldur en utan hans. Hann á
samt að geyma á köldum stað og
í burtu frá sólarljósi. Kjósir þú að
geyma hann í ísskápnum passaðu
þá að hafa hann ekki nálægt kart
öflunum því séu þessar tegundir
geymdar saman þá skemmast þær
hraðar. Það sama á við um hvítlauk
en vor, gras og blaðlaukar geym
ast vel í ísskáp og er það vegna þess
að vatnsmagnið er meira í þeim.
Ólífuolía
Olían geymist ekki vel í ísskáp.
Þar harðnar hún og því á ekki að
geyma hana þar. Hún endist lang
best ef hún er geymd inni í skáp
þar sem er ekki of heitt og ekki of
kalt.
Brauð
Brauð geymist afar illa í ísskáp.
Það þurrkast mjög fljótt upp. Það
er hins vegar í góðu lagi að geyma
brauð í frysti, þar geymist það
nefnilega vel sé passað upp á að
það sé í lokuðum og góðum um
búðum. Brauð geymist best í plast
poka í venjulegum stofuhita.
Kaffi
Því er oft haldið fram að kaffi
geymist betur í ísskáp og þurrk
ist síður. Það er þó ekki raunin.
Sé kaffi geymt í ísskáp tapar það
nefnilega fljótt bragðgæðum sín
um. Besti staðurinn til að geyma
kaffi er á köldum og dimmum
stað. Þess vegna henta álkrukkur
til dæmis vel til geymslu þess.
Lárpera
Lárperu, eða avokadó, er ekki
sniðugt að geyma í ísskáp. Hún
skemmist mun fyrr. Hins vegar, sé
búið að opna hana og rífa af henni
börkinn er í lagi að geyma hana í
ísskápnum. n
Tómatar, laukur og brauð eru meðal þess sem geymist illa í ísskápnum heima eða í vinnunni
Viktoría Hermannsdóttir
viktoria@dv.is
Bestu matar-
bloggin
Saveur velur á hverju ári bestu
matar og vínbloggin í nokkrum
flokkum. Hér má sjá þau blogg
sem unnu verðlaunin í ár.
iamafoodblog.com/
Stephanie heldur úti matar
blogginu iamafoodblog.com.
Hún hefur unun af því að elda
og deilir ástríðunni með lesend
um sínum. Bloggið hennar hefur
slegið í gegn og hún á fjölmarga
fylgjendur. Stephanie tekur fal
legar myndir af réttunum og er
með sniðugar hugmyndir. Sjón er
sögu ríkari.
Love and lemons
Jeanine er með bloggsíðuna Love
and Lemons. Flestar uppskrift
irnar sem hún deilir með lesend
um myndu líklega flokkast sem
hollustuuppskriftir enda hefur
Jeanine unun af því að fá fólk til
þess að nota grænmeti á skap
andi og skemmtilegan hátt. Hún
ferðast líka mikið ásamt eigin
manni sínum og uppskriftirnar
eru í takt við það.
www.loveandlemons.com/
Top with cinnamon
Hin 18 ára gamla Izy heldur úti
bloggsíðunni Top with cinna
mon. Izy býr í London og hefur
frá blautu barnsbeini haft mik
inn áhuga á bakstri enda þrátt
fyrir ungan aldur er hún gríðar
lega fær í því. Hún lærði listina
að baka frá mömmu sinni sem
er bandarísk en ættuð frá Ítalíu.
Aðaláherslan er á bakstur en hún
birtir þó stundum matarupp
skriftir líka.
www.topwithcinnamon.com/
The Vanilla Bean
Það er einlægur ástríðubakari
sem heldur úti þessari síðu. Mik
ið af skemmtilegum og öðruvísi
bakstursuppskriftum og bloggar
inn tengir uppskriftirnar gjarnan
fjölskyldu sinni og deilir sögum
með lesendum.
http://thevanillabeanblog.com/
Mikilvægt að bera sólarvörn á augnsvæði
Orsakavaldur 10 prósenta húðkrabbameinstilvika
V
issirðu að það má rekja tíu
prósent tilvika húðkrabba
meins til augnsvæðis
ins? Julie Woodward, sér
fræðingur hjá Duke University
Medical Center greinir frá þessu í
Cosmopolitantímaritinu en hún
segir að gjarnan gleymist að vernda
augnsvæðið þegar fólk setur á sig
sólarvörn.
Mörg tilvik húðkrabbameins eiga
uppruna sinn í húð augnlokanna og
svæðisins fyrir neðan augun vegna
þess að fólk ber síður sólarvörn á þau
svæði af ótta um að sólarvörnin fari
í augun sjálf. Húðsvæðið í kringum
augun er mun næmara fyrir útfjólu
bláum geislum og er húðin á því
svæði tíu sinnum þynnri en önnur
húð sem gerir skaða vegna útfjólu
blárra geisla mun líklegri þar en
annars staðar á líkamanum. Þannig
að þrátt fyrir að augnsvæðið sé inn
an við eitt prósent af húðinni eru tíu
prósent tilvika húðkrabbameins af
leiðing skorts á vörn á því svæði.
Hægt er að slá á áhyggjur um að
sólarvörnin leiti inn í augun með
því að kaupa sólarvörn sem er sér
staklega ætluð augnsvæðinu. Hún er
ekki skaðleg augunum ef svo vill til
að hún leki þangað.
Sólgleraugu eru einnig fyrir
byggjandi í þessu samhengi en þau
þurfa að innihalda gler með vörn
fyrir útfjólubláum geislum til þess
að gera gagn. n
Viðkvæmt svæði Augnlokin og
húðsvæðið undir augunum er næmara
fyrir útfjólubláum geislum.