Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2014, Síða 51
Helgarblað 13.–16. júní 2014 Sport 51
HM-veislan fer á
fullt um helgina
N
ú reynir á allt liðið. Hand-
bolti er liðsíþrótt og það
er liðsheildin sem klár-
ar verkefnið.“ Þetta segir
íþróttafréttamaðurinn og
handboltamaðurinn fyrrverandi,
Guðjón Guðmundsson, í samtali
við DV. Íslendingar mæta á sunnu-
dag Bosníumönnum í síðari leikn-
um um laust sæti á HM í handbolta
í janúar. Liðin áttust við í Sarajevó
síðastliðinn laugardag þar sem
Bosníumenn höfðu eins marks
sigur. Sigurinn hefði getað orðið
stærri en Íslendingum tókst að
rétta úr kútnum á síðustu mínút-
um leiksins, eftir kaflaskiptan síð-
ari hálfleik.
Bosníumenn unnu síðasta
korterið í leiknum 10-5, þar sem
Íslendingum tókst ekki að finna
svör við framliggjandi vörn heima-
manna, sem klipptu leikstjórnand-
ann Snorra Stein Guðjónsson úr
umferð. Það er eitthvað sem Aron
og lærisveinar verða að búa sig bet-
ur undir fyrir síðari leikinn. Ísland
skoraði 32 mörk, sem er gott á úti-
velli, en liðið á ekki að þurfa að fá á
sig 33 mörk. Vörnin og markvarslan
var slök eins og 72 prósent skotnýt-
ing heimamanna ber vitni um. Sér-
staklega var varnarleikurinn slakur
í síðari hálfleik.
Þreyta?
Alexander Petersson er kom-
inn aftur í landsliðið og átti flott-
an leik í Bosníu. Hann skoraði sjö
mörk en Ásgeir Örn Hallgrímsson
og Guðjón Valur Sigurðsson skor-
uðu sex mörk hvor. Íslenska vörn-
in réði illa við skyttuna Nikola Prce,
sem skoraði 11 mörk úr 14 skot-
um. Hann þarf að stöðva fyrir leik-
inn í höllinni á sunnudag. Guðjón
segir að liðið hafi misst dampinn í
leiknum, og góða forystu, á örfáum
mínútum. „Hvers vegna? Líkleg-
asta skýringin er að menn hafi ver-
ið orðnir þreyttir. Þar af leiðandi er
einbeitingin ekki eins mikil,“ segir
hann.
Ekkert gefið
Guðjón segir að það vilji stund-
um loða við að íslenskir fjölmiðlar
gefi sér fyrirfram að andstæðingar
Íslands á handboltavellinum séu
slakari en þeir eru. Að sigrar eigi að
vinnast. „Þetta slævir oft hugann og
almenning og menn gera sér rang-
hugmyndir um andstæðingana.“
Hann bendir á að lið Bosníu sé afar
vel mannað; þar leiki menn sem
spili með nokkrum af öflugustu fé-
lagsliðum í Evrópu. Í þessu sé því
ekkert gefið. Hann vill þó meina að
íslenska liðið sé sterkara og eigi að
hafa betur í einvíginu, ef það leiki af
fullum styrk. Úrslitin í Sarajevó hafi
ekki verið eins slæm og ætla mætti.
Hann hefði getað farið mun verr.
Hann á von á því að Aron Pálmars-
son byrji leikinn að hluta en segir
að þátttaka hans muni engin úr-
slitaáhrif hafa. „Hann er hluti af
liðinu og það er liðið sem vinnur
eða tapar leiknum. Enginn einstak-
lingur gerir það.“
Stuðningur áhorfenda geti
ráðið úrslitum
Aron Kristjánsson mun að líkind-
um freista þess í vikunni að bæta
varnarleikinn, sem og að finna svör
við framliggjandi varnarafbrigði
Bosníumanna. Guðjón segir að
varnarleikurinn á sunnudag þurfi
að vera mun betri en úti í Sarajevó.
Hægara sé hins vegar um að tala en
í að komast. Ekkert gerist af sjálfu
sér. „Menn eru að ljúka erfiðri leik-
tíð og eru þreyttir. En það gildir líka
um Bosníumenn. Menn verða að
vakna til lífsins í varnarleiknum.“
Guðjón gengur svo langt að segja
að stuðningur áhorfenda, og það
andrúmsloft sem þeir skapi, geti
beinlínis ráðið úrslitum á sunnu-
dag. En hvernig heldur hann að
einvígið fari? „Ég spái íslenskum
sigri. Við vinnum Bosníumenn en
við þurfum líka að byrja leikinn vel.
Ég á von á því að leikurinn verði
spennandi framan af en ég held að
við séum með sterkara lið og við
munum landa sigri.“ n
Einum leik frá HM
n Íslendingar mega ekki misstíga sig n Áhorfendur geta ráðið úrslitum
Þokkalega bjartsýnn Guðjón hefur
trú á íslenskum sigri en segir að stuðningur
áhorfenda geti ráðið úrslitum.
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
„Þetta slævir oft
hugann og al-
menning og menn gera
sér ranghugmyndir um
andstæðingana.
Mikilvægur í sókninni
Sóknarleikur Íslands riðlaðist
þegar Snorri Steinn Guðjónsson
var klipptur út úr spilinu. Finna
þarf lausnir við því.
Æsispennandi viðureignir
Stórþjóð í handbolta missir af HM
Sex af átta einvígum um laus sæti á
HM í handbolta í Katar á næsta ári eru
æsispennandi. Í fyrri umferðinni voru að-
eins tvenn afgerandi úrslit, þar sem segja
má að úrslitin séu svo gott sem ráðin.
Ungverjar unnu Slóvena með þremur
mörkum á heimavelli í hörkuleik í
Vesprém í Ungverjalandi. Slóvenar gætu
vel gert Ungverjum skráveifu á sínum
heimavelli í síðari leiknum.
Svartfellingar unnu nauman eins
marks heimasigur á Hvít-Rússum og eiga
eftir að fara til Minsk. Siarhei Rutenka
skoraði níu mörk fyrir Hvít-Rússa. Svart-
fellingar þurfa að stoppa hann ef þeir
ætla að komast áfram.
Patrekur Jóhannesson stýrði Austurrík-
ismönnum til sigurs gegn Noregi í fyrri leik
liðanna á laugardag. Liðin eigast aftur
við í Noregi og þar þurfa heimamenn að
vinna upp tveggja marka tap. Búast má
við háspennuleik.
Grikkir og Makedóníumenn áttust við
í Grikklandi. Makedóníumenn unnu með
tveimur mörkum. Þeir eru alla jafna mjög
erfiðir heim að sækja. Það verður því
að teljast ólíklegt að Grikkir spili á HM í
janúar.
Athyglisverðasta viðureignin í þessu
umspili eru leikir Póllands og Þýskalands.
Pólverjar unnu með eins marks mun á
heimavelli og munu leggja allt í sölurnar
í Þýskalandi. Það verður mikið áfall fyrir
þá þjóð sem ekki kemst áfram úr þessu
einvígi, enda báðar stórþjóðir á hand-
boltavellinum.
Serbar unnu átta marka sigur á
Tékkum á heimavelli; 23:15. Á sama tíma
unnu Rússar Litháen með sama mun. Það
verður erfitt fyrir þessar þjóðir að snúa
við taflinu.
Sigur gegn Noregi
Patrekur Jóhannesson og lærisveinar hans
í austurríska landsliðinu unnu nauman
tveggja marka sigur gegn Noregi. Liðin
mætast að nýju um helgina í Noregi þar
sem seinni leikurinn fer fram.
Hörkuleikir Freyr spáir því að
jafntefli verði niðurstaðan í stórleikjum
Spánverja og Hollendinga og Ítala og
Englendinga. MyNd SiGtryGGur Ari
Næstu leikir:
17. júní
Þriðjudagur
H-riðill Belgía – Alsír 16.00
A-riðill Brasilía – Mexíkó 19.00
H-riðill Rússland – Suður-Kórea 21.00
18. júní
Miðvikudagur
B-riðill Ástralía – Holland 16.00
B-riðill Spánn – Chile 19.00
A-riðill Kamerún – Króatía 21.00
19. júní
Fimmtudagur
C-riðill Kólumbía – Fílab.strönd 16.00
D-riðill Úrúgvæ – England 19.00
C-riðill Japan – Grikkland 22.00
20. júní
Föstudagur
D-riðill Ítalía – Kosta Ríka 16.00
E-riðill Sviss – Frakkland 19.00
E-riðill Hondúras – Ekvador 21.00