Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2014, Qupperneq 56
56 Menning Sjónvarp Helgarblað 13.–16. júní 2014
Sjónvarpsdagskrá
RÚV Stöð 2 SkjárEinn Stöð 2 Sport
Ú
rslitaeinvígi NBA-körfubolt-
ans stendur yfir þessa dagana.
Þar kljást kunnuglegir fjend-
ur, Miami Heat og San Anton-
io Spurs, en þessi lið léku einnig til
úrslita í fyrra. Einvígið er í járnum
en það lið sem fyrr vinnur fjóra leiki
hampar titlinum. Leikirnir eru allir
sýndir á Stöð 2 Sport.
Sem fyrr fer framherjinn LeBron
James fyrir Miami-liðinu en hann
hefur átt hvern stórleikinn á fætur
öðrum í þessari úrslitakeppni. Svo vel
hefur hann spilað að körfuknattleiks-
spekingar úti um allan heim eru
farnir að setja hann á sama stall og
Michael Jordan – og sumir telja hann
standa gamla meistaranum framar
hvað kraft og snilli á velli áhrærir.
Þessi árangur James hefur ekki
farið framhjá kvikmyndaframleið-
endum í Hollywood sem margir
hverjir eru ólmir í að fá hann á hvíta
tjaldið. Sjálfur er James mikill áhuga-
maður um kvikmyndalist og er
sagður viljugur til að bæta leiksigr-
um í glæsilegt safn sigra á vettvangi
íþrótta. Hann hefur þegar samþykkt
að leika í kvikmyndinni Trainwreck,
sem leikstýrt verður af verðlauna-
leikstjóranum Judd Aplatow. Auk
James munu stjörnur eins og Tilda
Swinton og Bill Hader fara með hlut-
verk í myndinni. n baldure@dv.is
LeBron James á hvíta tjaldið
Fjölhæfur James
Föstudagur 13. júní
Bíóstöðin
Gullstöðin
Stöð 3
ÍNN
11.45 HM í fótbolta
(Brasilía-Króatía)
13.30 Ástareldur
(Sturm der Liebe) e
14.20 Ástareldur
(Sturm der Liebe) e
15.10 Táknmálsfréttir
15.20 HM stofan Björn Bragi og
gestir fjalla um mál mál-
anna á HM í knattspyrnu
sem fram fer í Brasilíu.
15.50 HM í fótbolta
(Mexíkó - Kamerún) B
18.00 Fréttir
18.20 Veðurfréttir
18.25 Íþróttir Íþróttir dagsins í
máli og myndum.
18.30 HM stofan Björn Bragi og
gestir fjalla um mál mál-
anna á HM í knattspyrnu
sem fram fer í Brasilíu.
18.50 HM í fótbolta
(Spánn - Holland) B
20.50 HM stofan Björn Bragi og
gestir fjalla um mál mál-
anna á HM í knattspyrnu
sem fram fer í Brasilíu.
21.30 -------------
(21 Jump Street)
23.00 Pappírsmaður 6,7 (Paper
Man) Jeff Daniels, Emma
Stone, Ryan Reynolds
og Lisa Kudrow fara öll
með hlutverk í þessari
hjartnæmu gamanmynd
um vináttu tveggja ólíkra
einstaklinga að viðbættri
ímyndaðri ofurhetju sem
skiptir sér í sí og æ af lífi
þeirra. Leikstjórar Kieran og
Michele Mulroney. Atriði í
myndinni eru ekki við hæfi
ungra barna. e
00.50 HM fótbolta
(Chile - Ástralía)
Upptaka frá leik CHile og
Ástralíu á HM í fótbolta.
02.30 Útvarpsfréttir í dag-
skrárlok
07:00 Miami - San Antonio
13:05 IAAF Diamond League 2014
15:05 NBA- Final Game
(Miami - San Antonio)
16:55 Pepsí deildin 2014
(Stjarnan - KR)
18:45 Pepsímörkin 2014
20:00 NBA Special: Reggie Miller
20:50 Meistarad. í handb. - Final
Four (Flensburg - Kiel)
22:30 UFC Live Events
00:50 UFC Now 2014
07:00 HM 2014 (Brasilía - Króatía)
11:00 Premier League Legends
(Michael Owen)
11:30 Man. Utd. - Liverpool
13:10 HM 2010 (Úrúgæv - Þýskal.)
15:00 HM 2010 (Holland - Spánn)
16:50 Destination Brazil
(Netherlands, Sao Paulo, Chile)
17:20 HM 2014 (Brasilía - Króatía)
19:00 Destination Brazil
(Spain, Curitiba and Australia)
19:30 HM 2014 (Mexíkó - Kamerún)
21:10 HM Messan
21:50 HM 2014 (Chile - Ástralía) B
00:00 HM 2014 (Spánn - Holland)
01:40 HM Messan
02:25 HM 2014 (Chile - Ástralía)
10:40 Crooked Arrows
12:25 Joyful Noise
14:20 There's Something About
Mary
16:20 Crooked Arrows
18:05 Joyful Noise
20:00 There's Something About
Mary
22:00 Grown Ups 2
23:40 Hitchcock
01:15 Wanderlust
02:50 Grown Ups 2
17:30 Jamie's 30 Minute Meals
17:55 Raising Hope (17:22)
18:15 The Neighbors (7:22)
18:35 Up All Night (8:11)
19:00 Top 20 Funniest (3:18)
19:45 Britain's Got Talent (1:18)
20:45 The Secret Circle (4:22)
21:30 Free Agents (7:8)
21:55 Community (12:24)
22:15 True Blood (8:12)
23:10 Sons of Anarchy (11:13)
00:00 Memphis Beat (2:10)
00:45 Top 20 Funniest (3:18)
01:30 Britain's Got Talent (1:18)
02:30 The Cougar (3:8)
03:15 The Secret Circle (4:22)
04:00 Free Agents (7:8)
04:25 Community (12:24)
04:50 Tónlistarmyndb.Popptíví
18:10 Strákarnir
18:40 Friends (14:24)
19:05 Seinfeld (21:21)
19:30 Modern Family
19:50 Two and a Half Men
20:10 Spurningabomban (1:21)
21:00 The Killing (9:12)
21:45 Boss (3:8)
22:40 It's Always Sunny In
Philadelphia
23:00 Spurningabomban (1:21)
23:50 Footballer's Wives (8:8)
00:40 The Killing (9:12) Þriðja
þáttaröðin af þessum
æsispennandi sakamála-
þáttum, sem byggja á
dönsku verðlaunaþáttun-
um Forbrydelsen.
01:25 Boss (3:8) Stórbrotin
verðlaunaþáttaröð með
Kelsey Grammer í hlutverki
borgarstjóra Chicago sem
svífst einskis til að halda
völdum.
02:20 It's Always Sunny In
Philadelphia
02:45 Tónlistarmyndbönd frá
Popptíví
20:00 Kling klang Íslenska
poppflóran 4:6
21:00 Harmonikkumenn Nikkan
þanin í nóttlausri voraldar
veröld.
21:30 Eldað með HoltaÚlfar og
Holtakræsingar
07:00 Barnatími Stöðvar 2
08:05 Hundagengið
08:25 Drop Dead Diva (2:13)
09:15 Bold and the Beautiful
09:40 Doctors (95:175)
10:25 Fairly Legal (13:13)
11:10 Last Man Standing (7:24)
11:35 Heimsókn
11:55 Hið blómlega bú
12:35 Nágrannar
13:00 Spy Next Door
15:10 Young Justice
15:35 Hundagengið
16:00 Frasier (7:24)
16:25 The Big Bang Theory
16:45 How I Met Your Mother
17:10 Bold and the Beautiful
17:32 Nágrannar
17:57 Simpson-fjölskyldan
18:23 Veður
18:30 Fréttir Stöðvar 2
18:47 Íþróttir
18:54 Ísland í dag
19:06 Veður
19:15 Super Fun Night (2:17)
Gamanþáttaröð um þrjár
frekar klaufalegar vinkonur
sem eru staðráðnar í að láta
ekkert stoppa sig í leita að
fjöri á föstudagskvöldum.
Ástralska gamanleikkonan
Rebel Wilson úr Pitch
Perfect og Bridesmades er í
einu aðalhlutverkanna.
19:35 Impractical Jokers
(2:8) Sprenghlægilegir
bandarískir þættir þar sem
fjórir vinir skiptast á að vera
þáttakendur í hrekk í falinni
myndavél.
20:00 Mike & Molly (12:23)
Gamanþáttaröð um
turtildúfurnar Mike Biggs og
Molly Flynn. Það skiptast á
skin og skúrir í sambandinu
og ástin tekur á sig ýmsar
myndir.
20:20 NCIS: Los Angeles (2:24)
21:05 Damsels in Distress 5,8
22:45 Love Ranch
00:40 Triage
02:15 Chasing Mavericks
Dramatísk og skemmtileg
mynd frá 2012 með Gerard
Butler, Jonny Weston og
Elisabeth Shue í aðalhlut-
verkum. Myndin er byggð á
sönnum atburðum og segir
frá unglingspiltinum Jay
Moriarity sem dreymir um
að prófa að standa á brim-
bretti í risaöldu. Leikstjórar
myndarinnar eru Michael
Apted og Curtis Hanson.
04:10 The Expendables Mögnuð
spennumynd með einvala
liði stórleikara og segir
frá hópi málaliða sem er
ráðinn til að koma illum
einræðisherra frá völdum
í Suður - Ameríku. Þegar
leiðangurinn byrjar, þá átta
mennirnir sig fljótlega á því
að hlutirnir eru ekki alveg
eins og þeir bjuggust við og
eru nú sjálfir lentir í miklum
og stórhættulegum svika-
vef sem reynir á samheldni
hópsins. Með aðalhlutverk
fara Arnold Schwarznegger,
Bruce Willis, Dolph Lund-
gren, Eric Roberts, Mickey
Rourke, Silvester Stallone,
Jason Statham, Jet Li og
David Zayas.
05:50 Fréttir og Ísland í dag
06:00 Pepsi MAX tónlist
08:00 Everybody Loves
Raymond (12:26)
08:25 Dr. Phil
09:05 Pepsi MAX tónlist
14:20 The Voice (3:26)
15:50 The Voice (4:26)
16:30 Necessary Roughness
(8:16) Bráðskemmtilegur
þáttur um sálfræðinginn
Danielle og frumleg
meðferðarúrræði hennar.
Dani aðstoðar mann sem
hefur atvinnu af ótemjureið
með miður skemmtilegum
afleiðingum.
17:15 90210 (21:22) Bandarísk
þáttaröð um ástir og átök
ungmennanna í Beverly
Hills þar sem ástin er aldrei
langt undan.
18:00 Dr. Phil
18:40 Minute To Win It Einstak-
ur skemmtiþáttur undir
stjórn þúsundþjalasmiðsins
Guy Fieri. Þátttakendur fá
tækifæri til að vinna milljón
dollara með því að leysa
þrautir sem í fyrstu virðast
einfaldar. Það eru konur
sem eru í aðalhlutverkum í
þætti kvöldsins.
19:25 Men at Work (4:10) Þræl-
skemmtilegir gamanþættir
sem fjalla um hóp vina sem
allir vinna saman á tímariti
í New York borg. Þeir lenda í
ýmiskonar ævintýrum sem
aðallega snúast um að ná
sambandi við hitt kynið.
19:50 Secret Street Crew (6:6)
Ofurdansarinn Ashley
Banjo stjórnar þessum
frumlega þætti þar sem
hann æfir flóknar dans-
rútínur með ólíklegasta
fólki.
20:35 America's Funniest
Home Videos (35:44)
21:00 Survior (3:15) Það er komið
að 25. þáttaröðinni af
Survivor með kynninn Jeff
Probst í fararbroddi og í
þetta sinn er stefnan tekin
á Filippseyjar. Keppendur
eru átján talsins að þessu
sinni. Fimmtán þeirra
eru nýliðar en þrír eru að
spreyta sig í annað sinn
eftir að hafa dottið út á
sínum tíma sökum veikinda
eða meiðsla.
21:45 Death at a Funeral 5,6
Frábær gamanmynd um
farsakennda jarðarför þar
sem allt fer á versta veg.
23:15 The Tonight Show
00:00 Royal Pains (9:16)
00:45 The Good Wife (18:22)
01:30 Leverage (6:15)
02:15 Survior (3:15)
03:00 The Tonight Show
03:45 The Tonight Show
04:30 Pepsi MAX tónlist
Clooney og Brolin til
liðs við Coen-bræður
Hail, Caesar! að komast upp úr startholunum
N
ýjasta kvikmynd Coen-
bræðranna er að taka á
sig mynd en bræðurn-
ir hafa fengið staðfestan
framleiðsluréttinn á
kvikmyndinni Hail, Caesar! Þeir
Joel og Ethan Coen munu bæði
frumsemja kvikmyndahandritið
og leikstýra myndinni.
Kvikmyndin á að gerast á sjötta
áratugnum og fjallar um reddar-
ann Eddie Mannix sem vinnur í
kvikmyndaverum í Hollywood.
George Clooney mun sem áður
leika í mynd Coen-bræðranna
en hann er þeim ekki ókunnug-
ur. Clooney hefur leikið í mynd-
um þeirra á borð við O Brother
Where Art Thou? og Intolerable
Cruelty.
Nú hefur Josh Brolin, leikari í
myndum á borð við No Country
for Old Men og True Grit, einnig
bæst í hóp leikara. Ekki er vitað
hvenær myndin verður frumsýnd
en myndin virðist vera að komast
upp úr startholunum.
Joel og Ethan Coen eru
sömuleiðis að vinna að verk-
efni með Steven Spielberg og
Tom Hanks en þeir munu koma
að skrifum á kvikmyndahand-
riti myndar um James Donov-
an, lögmann sem leiddist inn í
miðju kalda stríðsins þegar hann
átti í samningaviðræðum við
rússnesku leyniþjónustuna um
að leysa úr haldi flugumanninn
og njósnarann Gary Powers.n
salka@dv.is
dv.is/blogg/skaklandid
Stefán Bergsson skrifar
Skáklandið
Þ
essar línur eru ritaðar á
ítölsku eyjunni Sardiníu
þar sem undirritaður
unir hag sínum vel þessi
misserin við skákiðkun
og sólböð. Hér fer fram hið árlega
Porto Mannu skákmót við frá-
bærar aðstæður. Mótið er nokk-
uð sterkt og meða annars einn af
sterkari skákmönnum Kínverja
með. Hann heitir Ni Hua og leið-
ir mótið nú þegar sex umferðum
af níu er lokið. Fjórir Íslendingar
eru með í mótinu. Heimi Páli
Ragnarssyni 12 ára hefur geng-
ið ágætlega og lagt stigahærri
andstæðinga að velli. Gunnari
Björnssyni og Þresti Þórhalls-
syni hefur gengið misjafnlega og
treysta á góðan endasprett. Stef-
án Bergsson hefur átt ágætt mót
og náð að tefla frísklega. Það má
með sanni segja að hér séu að-
stæður allar afar góðar og má
tvímælalaust mæla með mótinu
fyrir skákferðalanga. Sérstaklega
fyrir fjölskyldufólk sem vilja sam-
eina taflmennsku og frí.
Eilítið nyrðra, í Stavangri í
Noregi, fer nú fram eitt sterkasta
skákmót ársins: Norway Chess
2014. Þegar sjö umferðum er lok-
ið af níu má segja að mótið sé allt
í einni bendu: þeir sem eru efstir
hafa fjóra vinninga en neðstu
menn hafa þrjá vinninga. Efstir
eru: Carlsen, Kramnik, Karjakin
og Caruana. Síðustu umferðirnar
verða afar spennandi.
Meistaramót Skákskóla Ís-
lands fór fram síðustu helgi. Það
mót má segja að klári skákvertíð-
ina hjá ungu kynslóðinni og yf-
irleitt allir þeir bestu með, enda
verðlaun góð í formi flugmiða á
skákmót. Dagur Ragnarsson varð
hlutskarpastur og leyfði aðeins
eitt jafntefli en vann aðrar skák-
ir. Það jafntefli kom gegn félaga
hans úr Fjölni, Oliver Aron Jó-
hannessyni. Oliver varð annar.
Sigur Dags stóð reyndar tæpt þar
sem hann rétt marði Felix Stein-
þórsson í síðustu umferð í skák
sem var lengi jafnteflisleg. n
Skák á Sardiníu!
Stöð 2 Sport 2
Óskarsverð-
launahafar
Coen-bræður
njóta mikillar
virðingar í
kvikmynda-
bransanum.
Áframhaldandi samstarf George
Clooney og Josh Brolin munu leika í nýrri
mynd Coen-bræðra, Hail, Caesar!
Sá besti? LeBron James hefur unnið ótal
sigra á körfuknattleiksvellinum. Nær hann
að sigra Hollywood? MYND REUTERS