Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2008, Side 4
föstudagur 15. ágúst 20084 Fréttir DV
Sandkorn
n Virtasta blað Íslands, Morgun-
blaðið, er ekki svipur hjá sjón
þetta sumarið. Leiðréttingar eftir
leiðréttingar birtast nú í blaði allra
landsmanna. „Ekki lýgur Mogg-
inn,“ er trú-
lega frasi sem
flestir hafa
heyrt. Nú er
svo komið
að ritstjórn
blaðsins
þekkir ekki
muninn á
þessum fugli
og hinum fuglinum. Leikmenn
í Landsbankadeild karla heita
annaðhvort Fjölnir Þorgeirsson
eða Fjalar Þorgeirsson og síðustu
mistök blaðsins voru að bæta
einu ári við aldur ofurbombunnar
Ásdísar Ránar. Ásdís varð 29 ára
í vikunni en Morgunblaðið bauð
lesendum sínum í þrítugsafmæli.
n Sýslumaðurinn, rollingurinn og
fagurkerinn Ólafur Helgi Kjart-
ansson skellti sér á tónleika Erics
Clapton ásamt fjórum prósent-
um af íslensku þjóðinni. Ólafur
skemmti sér að því er virtist alveg
gríðarlega vel og eins og flestir í
húsinu svitnaði hann þokkalega.
Höfðu reyndar einhverjir á orði
að sýslumaður ætti nú ekki að
haga sér svona. En á Clapton eru
allir jafnir og það er ekki hægt að
banna mönnum að upplifa Clap-
ton með sínu lagi.
n FH-ingar hafa farið mikinn
undanfarið í fjölmiðlum enda
léku þeir í gær við Aston Villa. Sú
ákvörðun KSÍ að breyta leiktíma
FH gegn Breiðablik hefur því fall-
ið í skuggann og lítið verið gagn-
rýnd. Vitað er að Heimir Guð-
jónsson og hans menn eru æfir
vegna þessarar ákvörðunar en
hafa lítið látið hafa eftir sér. FH-
ingar verða núna alltaf einum leik
á eftir Kefl-
víkingum og
Valsmönnum
og spila þrjá
leiki á sex
síðustu dög-
um mótsins.
Leiktíminn
við Breiða-
blik er einnig
athyglisverður en leikurinn mun
hefjast í Kaplakrika klukkan 16.30.
n Enska deildin hefst á morgun
með pompi og prakt. Stöð 2 Sport
hefur sýningarréttinn hér á landi
eins og síðustu ár. Glöggir áhorf-
endur Stöðvar 2 rásanna hafa
væntanlega ekki misst af auglýs-
ingum þess efnis að deildin sé
að fara hefjast. Hins vegar sakna
margir að
leiknar aug-
lýsingar séu
búnar til því
til kynning-
ar. Eins og
Sveppa og
Eiðs Smára
auglýsingin
sem heppn-
aðist gríðarlega vel. Svo virðist
sem aðeins ein auglýsing hafi ver-
ið búin til. Með klippum af síðasta
tímabili og tilheyrandi hrópum og
köllum íþróttafréttamanna stöðv-
arinnar.
Fyrrverandi starfsmenn verktakafyrirtækisins Ágúst og Flosi hafa verið tvískattaðir
vegna launagreiðslna úr Ábyrgðarsjóði launa. Þorsteinn J. Tómasson þarf að greiða
20.000 krónur til skattsins í fimm mánuði vegna mistaka kerfisins. Ábyrgðarsjóður-
inn og skattayfirvöld segja ábyrgðina liggja hjá hinum almenna borgara. Svifaseint
kerfi bitnar á fólkinu, segir Helgi Ólafsson, starfsmaður Verkalýðsfélags Vestfjarða.
TvískaTTaður efTir
gjaldþroT
„Það er verið að tvískatta launin okk-
ar. Þar fjúka mjólkurpeningarnir,“
segir Þorsteinn J. Tómasson, fyrrver-
andi starfsmaður verktakafyrirtækis-
ins Ágúst og Flosi ehf. Þorsteinn átti
inni orlof hjá fyrirtækinu þegar það
fór á hausinn árið 2006 og fékk það
greitt í júní 2007 frá Ábyrgðarsjóði
launa. Þegar árið 2007 var gert upp
hjá skattinum kom í ljós að Þorsteinn
hafði ofnýtt persónuafslátt sinn á ár-
inu vegna þessara orlofsgreiðslna.
„Nú hafa þeir sett á mig 100.000
króna aukaskatt til 1. desember. Ég
þarf að greiða 20.000 í hverjum mán-
uði fyrir þessi mistök þeirra. Skattur-
inn hérna á Vestfjörðum er ekki að
gera góða hluti og þeir hafa meira að
segja viðurkennt þessi mistök fyrir
mér,“ segir hann.
Svifasein kerfi
Ágúst og Flosi varð gjaldþrota
7. janúar 2006 en um þrjátíu starfs-
menn unnu hjá fyrirtækinu og marg-
ir þeirra hafa lent í töfum á greiðslu
launa sem þeir áttu inni og tvískött-
un á þær greiðslur sem þeir fengu.
Verkalýðsfélag Vestfjarða fékk
ábendingu um að starfsfólk ætti eft-
ir að fá greitt orlof sem það átti inni
þegar fyrirtækið varð gjaldþrota og
sendi Ábyrgðarsjóði launa ábend-
ingu þess efnis. „Í henni tók ég fram
að það væri búið að greiða skatt af
þessu orlofi. Það vita hins vegar allir
að skatturinn er stór og mikil stofn-
un og öll svona ferli eru innbyggð í
ákveðin kerfi. Starfsfólkið hjá skatt-
inum er mjög almennilegt en það
eru bara kerfin sem eru svifasein og
reynast fólki erfið,“ segir Helgi Ól-
afsson, starfsmaður Verkalýðsfélags
Vestfjarða. Þetta er ekki í fyrsta skipt-
ið sem kerfið bendir á einhvern ann-
an sem ábyrgðarmann en Helgi hef-
ur áður staðið í svipuðum málum.
„Þessi mistök í kerfinu raska veru-
lega högum fólks, sérstaklega ef um
tiltölulega háar upphæðir er að ræða
eins og í þessu tilfelli,“ segir Helgi.
Ábyrgðin er launþegans
Hjá skattinum fengust þau svör
að fólk yrði sjálft að hafa gætur á að
upplýsingar í skattaskýrslu væru rétt-
ar. „Auðvitað eru einhverjir sem átta
sig ekki á þessu. Hugsanlega gætum
við bent á þetta en ábyrgðin er alltaf
launamannsins. Við greiðum kröfu
eins og henni er lýst,“ segir Rósa Ing-
ólfsdóttir, skattstjóri á Vestfjörðum,
og Helgi hjá Verkalýðsfélaginu tek-
ur í sama streng. „Þó ég láti vita að
búið sé að taka skatt af orlofsgreiðsl-
um eins og í þessu tilfelli, þá er lang-
best að einstaklingur sem við áramót
á inni ógreidd laun taki það fram í
skattaskýrslunni. Hinum almenna
launþega virðist hins vegar vera afar
illa við þá skýrslu,“ segir Helgi. Það
flækir hins vegar málið enn frek-
ar að Ábyrgðarsjóður launa þarf að
taka staðgreiðslu af öllu sem berst til
þeirra.
Hefur gögnin undir höndum
Þorsteinn hefur launaseðla og
bankaupplýsingar sem staðfesta
fullyrðingar hans um að þegar
hafi verið búið að taka skatt af or-
lofinu. Það ætti því að vera auð-
sótt að fá þessa peninga til baka.
„Skattayfirvöld skila væntanlega
þeim peningum sem launþeginn
á inni hjá stofnuninni þegar þeim
berast þessar upplýsingar. Fólk
verður að kæra ef það telur rang-
lega lagt á sín laun,“ segir Björgvin
Steingrímsson hjá Ábyrgðarsjóði
launa.
„Þó að ég fái þessa peninga ef-
laust einhvern tíma til baka breyt-
ir það ekki þeirri staðreynd að
þetta kemur illa við mig núna,“
segir Þorsteinn.
ÓLEI-ÓLEI-ÓLEI!
Skáldið Skrifar
kki hefur Ólympíuleikunum í Peking
tekist að fara framhjá mér. Enda er
ég rómaður íþróttafíkill þótt ég líti nú
yfirleitt, og einkum, á mig sem áhorf-
enda og þyki helst liðtækur við þau
tvö sundtök sem ég brúka til að komast á minn
stað í heita pottinum.
Já, það gerðist í nótt að mig dreymdi draum og
í framhaldinu ætla ég að gerast spámaður í föð-
urlandi mínu og lýsa því yfir að strákarnir okkar
munu örugglega koma heim með gullið þegar
upp verður staðið.
Bjartsýnn?
Ég hef alltaf verið frekar bjartsýnn og skamm-
ast mín ekkert fyrir alla þá drauma sem ennþá
hafa ekki náð að rætast. Koma tímar og koma
ráð.
Og þá kem ég útúr skápnum með það að í
heita pottinum tek ég þátt í íþróttaumræðunni
og segi: -Við möluðum þýskarana! Ég tala um
okkur, ég stimpla mig óhikað inní liðið og er
þá orðinn beinn þátttakandi í athöfnum eldlín-
unnar. Ég meina... Óli Stefáns kemur stundum
í pottinn til okkar og við Fúsi deildum eitt sinn
skammti af frönskum kartöflum. Guðjón Valur
stóð við hliðina á mér í biðröð og ég sat eitt sinn
við hliðina á Guðmundi þjálfara á skoðunarstöð
eða bílaverkstæði. Einhver af strákunum er son-
ur kunningja frænda míns. Einhver af strákun-
um er náskyldur mér og auk þess erum við allir
mæðrasynir.
Og auðvitað má aldrei gleyma því að sjálfur
var ég eitt sinn markmaður í HK og stóð jafnvel
á milli stanganna á meðan einn af fyrrverandi
landsliðsmarkvörðum varð að verma bekkinn.
(Og þá hefur mér tekist að koma því að).
Í dag ætla ég að verða fyrstur manna til að óska
strákunum okkar til hamingju með gullið. Ég er
svo sannfærður um það að núna sé þetta loks-
ins að bresta á. Núna er tíminn og mér er svo
nákvæmlega sama um alla þá sem fyrirlíta mig
vegna minnar óstjórnlegu og óhóflegu bjartsýni.
Strákar, við sigrum! TIL HAMINGJU!
Ég sé fyrir mér strákana þegar þeir koma í
gegnum Leifsstöð. Ég heyri fagnaðarlætin hing-
að heim í Skerjafjörðinn. Ég er svo glaður að mig
langar einna helst að stökkva útá götu og kyssa
póstinn sem raðar rukkununum samviskusam-
lega í póstkassann minn. Mig langar að öskra
af kæti, hjarta mitt er að springa af fögnuði og í
hugann kemur limra:
Hann var einstakur strákur hann Starkaður,
sterkur og svo var hann kjarkaður,
það fór á þá leið
að frægðin hans beið.
Það finnst ekki annar eins markmaður.
E
Leiðrétting
Ranglega var haft eftir Regínu Ást-
valdsdóttur, skrifstofustjóra borgar-
stjóra, að hún hefði sagt blaðamönn-
um sem voru á vettvangi í Ráðhúsinu
á miðvikudag að fundi Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur og Ólafs F. Magnús-
sonar væri lokið. Enn fremur kom
fram í greininni sem birtist í gær að
hún hefði sagt ósatt. Það er ekki rétt.
Hún sagði að fundur stæði enn og
myndi standa lengi yfir. DV biðst af-
sökunar á þessum rangfærslum.
„Í henni tók ég fram að það væri búið að
greiða skatt af þessu orlofi. Það vita hins veg-
ar allir að skatturinn er stór og mikil stofnun
og öll svona ferli eru innbyggð í ákveðin kerfi.“
lilJa guðmundSdÓTTir
blaðamaður skrifar lilja@dv.is
Tvísköttuð laun um 30
manns störfuðu hjá verktaka-
fyrirtækinu ágúst og flosi en
Þorsteinn var ekki sá eini sem
lenti veseni í kerfinu.
Þorsteinn J. Tómasson Ósáttur
við skattayfirvöld á Ísafirði.
Kristján Hreinsson sKáld sKrifar. „Ég heyri fagnaðarlætin hingað heim í Skerjafjörðinn.“