Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2008, Blaðsíða 20
föstudagur 15. ágúst 200820 Umræða DV
Augnsamband við hrefnu
„Það sem bar hæst hjá mér fréttalega
var að skyndilega voru Rússar konmnir
í stríð við Georgíumenn. Það finnst mér
merkilegt, skrítið, leiðinlegt og afskaplega
sorglegt. Mér finnst hins vegar mjög gleði-
legt að handboltalandsliðið okkar hefur
unnið svona glæsilega sigra, það er samt
allt í lagi þó þeir hafi tapað í gærmorgun.
Persónulega bar það hæst að ég horfðist í
augu við hrefnu á Faxaflóa. Ég er nefnilega
búin að vera svolítið mikið þar, um borð
í báti, og það er svolítið merkilegt að sjá
hvali með eigin augum. Ég hef séð þetta í
sjónvarpinu en aldrei með eigin augum.
Þetta er mjög magnað, þetta eru svakaleg
dýr og alveg stórglæsileg. Það er líka alveg
ofboðslegur hellingur af þeim. Faxaflóinn
er fullur af hval, það kom mér skemmtilega
á óvart. Á sunnudaginn var líka afskaplega
gaman úti í Viðey, það var barnadagur sem
heppnaðist alveg rosalega vel. Ég var alveg
alsæl með daginn og ég held að sú hafi
verið raunin með flesta sem þar voru. Það
var dásamlegt veður og fullt af börnum og
ofboðslega gaman.“
Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir leikkona
Fyrsta sinn á Gay Pride
„Það sem bar hæst hjá mér var þegar
við Friðrik vorum að spila á Gay Pride.
Arnarhóll var troðfullur og mér fannst
þetta skemmtilegra en á 17. júní. Ég fór
í fyrsta skipti með dóttur minni, ég hef
aldrei komist hingað til, hef alltaf verið
að vinna. Dóttirin er svolítið lík mömmu
sinni, finnst gaman að sjá svona glamúr,
liti og gleði. Þannig að við klæddum okkur
upp mæðgurnar og enduðum svo loks-
ins niðri í bæ þar sem við Friðrik komum
fram. Svo fórum við í Voga og skemmtum
þar á fjölskyldudegi. Það var svona smærra
í sniðunum en ofboðslega skemmtileg,
góður andi og krakkarnir tóku okkur rosa-
lega vel. Nú stendur yfir undirbúningur
fyrir Söngskólann sem ég er með og ég er
á fullu í honum. Ég er að taka niður skrán-
ingar og skipta niður í hópa þannig að það
er brjálað að gera hjá mér. Ég fór til Akur-
eyrar og var í fellihýsi, netlaus, og það var
notalegt, rosalega góð afslöppun. í fréttum
ber hæst sirkusinn niðri í Ráðhúsi þar sem
ég er sammála Agli Helga um að fólk nenni
ekki að setja sig inn í þetta þar sem það er
alltaf verið að breyta. Svo eru það náttúru-
lega Ólympíuleikarnir, þar sem „strákarnir
okkar“ hafa staðið sig vel.“
Regína Ósk Óskarsdóttir söngkona
Hrærist í boltanum
„Maður hrærist mikið í boltanum þessa
stundina og hæst bar sigur okkar á KR á
sunnudaginn og í kjölfarið tók við undir-
búningur fyrir leikinn sem var í gærkvöldi
gegn Aston Villa. Það má segja að það hafi
stigmagnast spennan vegna leiksins gegn
Aston Villa eftir KR leikinn. Leikurinn gegn
Aston Villa var að sjálfsögðu stórkostleg
reynsla, en við fórum í hann eins og hvern
annan leik og létum hann ekki raska ein-
beitingunni að nokkru leyti. Vikan hefur
snúist meira eeða minna um knattspyrnu
og og leikurinn gegn KR var stærsti leikur-
inn í Landsbankadeildinni í síðustu um-
ferð. Við unnum þá með tveimur mörkum
gegn einu í Vesturbænum. Ég heyrði nú
eitthvað síðustu daga um borgarstjórnar-
meirihlutann, en það er bæði gömul saga
og ný. Sagan endalausa. Ég veit ekki hvort
þetta er grín eða ekki, en hef ekki gefið mér
tíma til að fá einhvern botn í það. Svo er ég
búinn að fylgjast með Ólympíuleikunum og
„strákarnir okkar“ búnir að standa sig vel,
það fer minna fyrir sundfólkinu. Einn sund-
kappinn var að bæta Íslandsmet í sundi en
það var ekki nóg, þannig að ég spyr hvar við
stöndum í þessu blessaða sundi.“
Tryggvi Guðmundson fótboltamaður
Íbúafundur Borgarbyggðar
„Það sem vakti athygli mína var fundur
sem ég var á síðastliðið miðvikudagskvöld í
Borgarnesi þar sem íbúar Borgarfjarðarhér-
aðs mættu afar vel. Þar var rætt um málefni
Sparisjóðs Mýrasýslu og stóð upp úr á þess-
um fundi að þeir væru að tapa eignarráðum
á mjög merkilegri stofnun sem er Sparisjóð-
ur Mýrasýslu. Það var þungur andi á þess-
um fundi en menn stóðu frammi fyrir því
að þetta fé væri tapað og þá er spurning um
vörnina. Ég hef ekki áður setið fund þar sem
jafnþungur andi svífur yfir vötnunum þrátt
fyrir að ekki sé mikið sagt. Það er greini-
legt að héraðsmönnum hefur þótt vænt um
þessa stofnun og hún hefur náttúrulega
verið bakhjarl, mönnum er greinilega mjög
brugðið vegna þess hvernig þetta hefur
þróast á mjög skömmum tíma. Þetta er ein
birtingarmynd þess sem má kalla fjárfest-
ingaræði okkar á síðustu árum. Þessi mikli
hvati sem var í þjóðfélaginu um að allir
ættu að fjárfesta og vera í útrás, engin væri
maður með mönnum nema hann væri með
mikil umsvif og mikið af lánum. Það er búið
að gjörbylta viðhorfum almenns fólks og
yfirstéttarinnar.“
Guðjón Arnar Kristjánsson þingmaður
HVAÐ BAR HÆST í Vikunni?