Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2008, Blaðsíða 13
Magnússon borgarstjóri hefði tjáð
honum í morgun að hann hefði verið
reiðubúinn að hætta í borgarstjórn til
að Tjarnarkvartettinn gæti tekið aft-
ur við meirihlutastjórn. Á þetta hefði
hins vegar ekki reynt þar sem Óskar
Bergsson og Framsóknarflokkurinn
hefðu valið að semja frekar við sjálf-
stæðismenn.
Lýkur þar með stormasömu sam-
starfi Ólafs F. Magnússonar við sjálf-
stæðismenn. Sjálfstæðismönnum
leiddist pólitískur einsöngur Ólafs
F. en ráðning Gunnars Smára Egils-
sonar, tímabundins upplýsingaráðu-
nautar, var kornið sem fyllti mæli
Sjálfstæðisflokksins. Mannaráðning-
ar og brottrekstrar Ólafs auk deilna
um skipulags- og virkjunarmál voru
meira en sjálfstæðismenn voru
reiðubúnir að sætta sig við.
Ólafur vildi ekki Óskar
Ólafur F. Magnússon hafn-
aði sjálfstæðismönnum þegar þeir
sögðust vilja fá Óskar Bergsson inn
í meirihlutann og að Hanna Birna
Kristjánsdóttir tæki strax við borg-
arstjórastólnum. Samkvæmt samn-
ingi Ólafs og sjálfstæðismanna frá í
janúar átti hann að vera borgarstjóri
fram á næsta ár.
Samkvæmt heimildum DV var
Óskar Bergsson tilbúinn að koma
inn í meirihlutann með því skilyrði
að Ólafur F. Magnússon stigi úr borg-
arstjórastólnum. Sjálfstæðismenn
voru tilbúnir að taka tilboði Óskars
en Ólafur hafnaði því.
Talið er að Sjálfstæðisflokkurinn
hafi ekki séð sér fært að halda áfram
meirihlutasamstarfinu við Ólaf og
hafi í kjölfarið slitið samstarfinu,
tæpum sjö mánuðum eftir að það
hófst.
Tveir kostir Óskars
Svo virðist sem Óskar Bergsson
hafi haft tvo kosti í stöðunni í gær.
Ljóst var að sjálfstæðismenn vildu fá
hann til samstarfs við sig um borgar-
stjórnarmeirihluta. Þannig væri að
vissu marki endurnýjaður meirihlut-
inn sem tók við í Reykjavík eftir síð-
ustu kosningar. Það sem er breytt er
að oddvitar beggja flokka hafa hrak-
ist úr leiðtogastöðum sínum vegna
þeirra umbrota sem hafa verið á
kjörtímabilinu, Björn Ingi Hrafns-
son hætti í stjórnmálum eftir mikla
gagnrýni innan flokks og Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson gaf eftir oddvitastöð-
una þegar ljóst var að ekki væri sátt
um hann.
Hinn kosturinn er að sögn endur-
vakning Tjarnarkvartettsins, meiri-
hlutasamstarfs Samfylkingarinnar,
vinstri-grænna, Framsóknarflokks-
ins og F-lista Frjálslyndra og óháðra.
Þannig herma heimildir innan borg-
arstjórnarminnihlutans að Ólafur
F. hafi boðist til að hætta í borgar-
stjórn ef það kynni að verða til þess
að Tjarnarkvartettinn kæmist aft-
ur til valda frekar en að Framsókn
og Sjálfstæðisflokkur mynduðu nýj-
an meirihluta. Þetta báru hins vegar
samstarfsmenn Ólafs til baka. Ljóst
er að hvernig sem þau mál þróuðust
valdi Óskar frekar að ræða við sjálf-
stæðismenn.
Afrifarík ráðning aðstoðar-
manns
Stefán Á. Magnússon, bróðir Ól-
afs, fráfarandi borgarstjóra, er ekki í
nokkrum vafa um hvers vegna meiri-
hlutinn sprakk núna. „Ástæðan fyrir
slitunum voru þau að Sjálfstæðis-
menn sökuðu Ólaf um að vera ráða
aðstoðarmenn án samráðs, en hvað
kemur þeim það við? Gunnar Smári
er öflugur og ópólitískur maður,“ seg-
ir Stefán og heldur því fram að eng-
inn málefnalegur ágreiningur hafi
verið fyrir slitunum, heldur hafi það
verið Gunnar Smári Egilsson, upp-
lýsingaráðanautur, sem allt strand-
aði á. Sjálfur segist Stefán verið í góðu
sambandi við Ólaf F. og bætir við að
hann sé vel haldinn og líði vel.
Deilur Óskars og Ólafs
Ólafur F. Magnússon og Óskar
Bergsson elduðu grátt silfur í borgar-
stjórn í vetur. Skemmst er að minn-
ast þess þegar Ólafur sagði í mars að
borgarstjórn setti niður með nær-
veru Óskars. Var það í kjölfar þess
að Óskar spurði um aðkomu aðstoð-
armanns borgarstjóra að vinnu við
deiliskipulag við Laugaveg. Ólafur
dró þessi ummæli síðar til baka. Í
apríl spruttu aftur upp deilur þeirra
á milli vegna þeirra orða Ólafs að
DV Helgarblað föstudagur 15. ágúst 2008 13
Xxxxxxxxx
hanna birna í hásætið
2006
2007
Reykjavíkurlisti
(Alþýðuflokkur, Alþýðu-
bandalag, Kvennalisti,
Framsóknarflokkur,
Samfylking og vinstri-græn)
2007
2008
Tjarnarkvartettinn
(Samfylkingin,
vinstri-græn,
Framsóknarflokkur
og F-listi)
2008
Sjálfstæðisflokkur Sjálfstæðis-
flokkur og
Framsóknar-
flokkur
Sjálfstæðis-
flokkur
og hluti
F-lista
2008 - ?
Sjálfstæðis-
flokkur og
Framsóknar-
flokkur
1994
2006
MAí 2006
Fjörleg STjÓrnArMynDun
Í annað skipti í sögu reykjavíkur
þurfti að hefja stjórnarmyndunar-
viðræður eftir kosningar. fram að
því höfðu sjálfstæðisflokkur eða
reykjavíkurlisti
haft meirihluta í
borgarstjórn og
því legið ljóst fyrir
hverjir væru við
völd, ef undan er
skilið kjörtímabil-
ið 1978 til 1982
þegar vinstri-
flokkarnir
mynduðu meirihluta eftir kosningar.
fulltrúar allra flokka nema
sjálfstæðisflokks ræddu saman um
vinstristjórn eftir kosningar 2006.
skömmu síðar var Ólafur f.
Magnússon, borgarfulltrúi f-lista,
kominn í viðræður við sjálfstæðis-
menn og taldi sig hafa pálmann í
höndunum. sjálfstæðismenn og
framsóknarmaðurinn Björn Ingi
Hrafnsson luku hins vegar óvænt
stjórnarmyndun og því urðu vonir
Ólafs að engu.
OkTÓber 2007
MeirihluTinn
Springur í FyrSTA Sinn
Miklar og harðar deilur um
málsmeðferð og framtíð rEI,
dótturfélags Orkuveitunnar, enduðu
með því að borgarstjórnarmeirihluti
klofnaði í fyrsta
skipti í sögu
reykjavíkur.
Meðan Óskar
Bergsson,
varaborgarfulltrúi
framsóknar-
flokksins, fundaði
með sjálfstæðis-
mönnum um
fjárhagsáætlun reykjavíkurborgar,
samdi Björn Ingi við fulltrúa
samfylkingar, vinstri-grænna og f-
lista um myndun nýs meirihluta.
fulltrúi f-lista í þeim viðræðum var
varaborgarfulltrúinn Margrét K.
sverrisdóttir en sagt var að þetta
hefði verið gert með samþykki og
stuðningi Ólafs, sem þá var í
veikindaleyfi.
jAnúAr 2008
ÓlAFur klýFur
fá ef nokkur teikn voru á lofti að
morgni mánudagsins 21. janúar um
að þann dag myndi draga til tíðinda.
Það átti þó heldur betur eftir að
gerast. Ólafur f. Magnússon, forseti
borgarstjórnar, samdi við sjálfstæð-
ismenn um
myndun nýs
borgarstjórnar-
meirihluta.
Breytingin kom
samherjum Ólafs í
fráfarandi
borgarstjórnar-
meirihluta í opna
skjöldu og þá
ekki síður Margréti K. sverrisdóttur,
varaborgarfulltrúa hans, sem lýsti
því yfir að hún myndi ekki styðja
nýja borgarstjórnarmeirihlutann. sú
staða var því komin upp að Ólafur
yrði að sitja alla fundi borgarstjórnar,
öllum stundum, til að tryggja
framtíð meirihlutasamstarfsins. Í ljós
kom á dögunum að það dygði ekki
til.
ÁgúST 2008
SjÁlFSTæðiSMenn kljúFA
sumarið reyndist sjálfstæðismönn-
um og Ólafi f. Magnússyni erfitt.
samstarfsfólkið í borgarstjórnar-
meirihlutanum deildi um hin ýmsu
mál, ekki síst Bitruhálsvirkjun og
byggingu Listaháskóla á Laugavegi.
Mannaráðningar
Ólafs og skipanir
í nefndir fóru fyrir
brjóstið á
honum. Þá
lögðust nýjar
skoðanakannanir
illa í meirihluta-
fólk en þær
sýndu algjört
fylgishrun sjálfstæðisflokks og f-
lista. á þriðjudag fór að spyrjast út
að sjálfstæðismenn vildu breyta
meirihlutasamstarfinu, fá framsókn
inn og að Hanna Birna Kristjáns-
dóttir yrði strax borgarstjóri. Það
gekk ekki eftir og á endanum
sögðu sjálfstæðismenn upp
samstarfi sínu við Ólaf borgarstjóra.
Fjórir meirihlutar
á 27 mánuðum
„Ég veit að ég tala fyrir
okkur bæði þegar ég
segi að við séum bjart-
sýn á framhaldið.“
nýjasti meirihlutinn í borginni
Hanna Birna Kristjánsdóttir og Óskar Bergsson
funduðu í ráðhúsi reykjavíkur í gærkvöldi og
komust að samkomulagi um að mynda nýjan
borgarstjórnarmeirihluta. Þessi verður sá fjórði á
kjörtímabilinu og sá þriðji á innan við einu ári.
Framhald á
næstu síðu
dV-MYNd sigtryggur