Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2008, Blaðsíða 18
Mikillar reiði gætir nú á meðal Mex-
íkóbúa vegna morðs á fjórtán ára
dreng sem hafði verið rænt af mann-
ræningjum. Drengnum, Fernando
Marti, var rænt í júní, og ekkert vitað
um afdrif hans fyrr en í þessum mán-
uði er rotið lík hans fannst í farang-
ursrými bifreiðar í Mexíkó-borg.
Fjölskylda drengsins er sterkefn-
uð, á keðju íþróttavöruverslana og
ku hafa greitt lausnargjald sem kraf-
ist hafði verið.
Að mannræningjarnir hafi myrt
hinn fjórtán ára Fernando Marti
er skelfilegt út af fyrir sig, en til að
auka enn á áhrif þess hefur einhver
fjöldi lögreglumanna, þar á meðal
yfirmaður, verið handtekinn vegna
gruns um aðild að ódæðinu.
Mexíkó-borg hefur stundum verið
nefnd höfuðborg mannrána í heim-
inum, og ránið á Fernando Marti er
ekkert einsdæmi. Engu að síður hef-
ur það vakið mikla athygli. Fjölmiðl-
ar, hvort heldur sem er sjónvarp, út-
varp, dagblöð eða netið, hafa verið
uppfullir með viðbrögðum fólks við
morðinu á Fernando.
Innantóm loforð og spilling
Jose Antonio Ortega, formaður
samtakanna Ya Basta (Nóg er nóg),
sagði það sem margir hugsa: „Enn
og aftur [sjáum við] laganna verði
flækta í mannrán og aðra grimmi-
lega glæpi, viðurstyggilegar afsak-
anir og lygar frá opinberum emb-
ættismönnum og saksóknurum, og
uppgerðarundrun og innantóm lof-
orð frá ríkisstjórum og stórnmála-
mönnum.“
Skoðun Ortegas er ekkert nýnæmi
heldur endurspeglar hún skoðun
mikils fjölda fólks í Mexíkó; í fyrsta
lagi að glæpir séu landlægir í Mexíkó,
og í öðru lagi að ýmsar löggæslusveit-
ir í landinu séu mjög spilltar. Morðið
á Fernando er ekki aðeins harmleik-
ur fyrir fjölskyldu hans, heldur er það
orðið að pólitísku hitamáli.
Í ljósi hinna miklu viðbragða al-
mennings er Felipe Calderon, forseti
Mexíkó, kominn undir smásjá. Þegar
hann tók við embætti forseta lofaði
hann að koma skikk á lög og reglu í
landinu og að það yrði forgangsatriði
hjá honum.
Calderon og borgarstjóri Mexíkó-
borgar, Marcelo Ebrard, hafa báðir
neitað að mistök af hálfu ýmissa lög-
reglusveita og skortur á samhæfingu
séu ástæða þess að lyktir ránsins á
Fernardo Marti urðu sem raun ber
vitni. Þess má geta að Ebrard hefur
verið orðaður við forsetaembættið.
Deila um ágæti löggæslusveita
Almenningur í Mexíkó-borg gefur
ekki mikið fyrir fullyrðingar forsetans
og borgarstjórans, ekki síst vegna at-
burðar sem átti sér stað fyrir ekki margt
löngu. Í júní tróðust tólf manns til bana
í klúðurslegri aðgerð lögreglunnar í
næturklúbb í borginni.
Í ljósi þeirrar staðreyndar að hvorki
forsetinn né borgarstjórinn getur stát-
að af miklum árangri í baráttunni við
mannræningja skýtur skökku við að
þeir standi í hnútukasti um hvaða
deildir löggæslunnar séu best í stakk
búnar með tilliti til skipulags og árang-
urs í aðgerðum gegn þessari tegund
glæpa.
Samkvæmt tölum frá skrifstofu al-
mannaöryggis í Mexíkó hafa 8.416
mannrán átt sér stað stað frá 1994 fram
til mars í ár. Um mörg mannrán er
aldrei tilkynnt, þar sem fjölskyldur sem
lenda í mannráni kjósa að leysa það
með aðstoð einkasamningamanns, í
stað þess að leita til lögreglunnar.
Mannránum fjölgar
Opinberar tölur um fjölda mann-
rána á síðasta ári eru um eitthund-
rað þrjátíu og fjögur. Í sumum skýrsl-
um segir að fjöldinn sé allt að fjögur
hundruð þrjátíu og fimm. Ef sú tala
er rétt er um þrjátíu og fimm pró-
senta aukningu að ræða síðan árið
2006. Eins og það sé ekki nógu slæmt
þá hafa fimmtíu og níu manns ver-
ið drepnir af mannræningjum síðan
Felipe Calderon settist í forsetastól,
þeirra á meðal Fernando Marti.
Flestir þeirra sem rænt er eru á
aldrinum sextán til þrítugs og lausn-
argjaldið sem krafist er svarar til eitt-
hundrað og tólf milljóna króna, að
meðaltali.
föstudagur 15. ágúst 200818 Helgarblað DV
Mannrán og spilltar löggur
Mannrán hafa löngum verið tíð í höfuðborg Mexíkó, sem og víðar
annars staðar í landinu. Þrátt fyrir loforð forseta landsins um að
koma skikk á löggæslu í landinu, hefur mannránum fjölgað frek-
ar en hitt. Mannrán og morð á fjórtán ára dreng skekur nú mex-
íkóskt samfélag og nokkrir lögreglumenn og yfirmenn hafa verið
handteknir vegna aðildar að því.
KolbeInn þorsteInsson
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Fernando Marti er eitt margra fórnarlamba mannræningja í Mexíkó.
Fernando Marti
Mexíkó-borg
Mannræningjar
fernando Marti litu út
eins og lögreglumenn.
Táningurinn Fernando Marti
var á ferð í bifreið með bílstjóra
og lífverði þegar honum var
rænt þann 4. júní. Bílstjórinn var
neyddur til að stöðva bifreiðina
af mönnum sem þóttust vera lög-
reglumenn á vegum mexíkósku al-
ríkislögreglunnar, AFI. Það er ein-
mitt AFI sem sér um rannsóknir á
mannránum í Mexíkó. Bílstjórinn
og lífvörðurinn voru umsvifalaust
skotnir og drengurinn numinn á
brott, en lífvörðurinn lifði af og gat
skýrt frá atburðarásinni..
Fjölskylda Fernandos gerði það
sem margir sem lenda í svipuð-
um hremmingum í Mexíkó gera;
hún hafði hvorki samband við lög-
reglu né fjölmiðla, en leitaði þess í
stað til einkaaðila til að hafa milli-
göngu í samskiptum við mann-
ræningjana. Fjölskyldan greiddi
lausnargjaldskröfuna og beið síð-
an eftir skilaboðum um að drengn-
um hefði verið sleppt. Sú bið varð
lengri en fjölskyldan vænti.
Fyrsta ágúst fannst sundur-
skotið lík hins fjórtán ára drengs í
farangursrými stolinnar Chevrol-
et-bifreiðar sem hafði verið skilin
eftir í verkamannahverfi í Mexíkó-
borg. Það var íbúi í hverfinu sem
hafði samband við lögreglu vegna
mikillar ólyktar sem barst frá bif-
reiðinni. Við líkið fannst orðsend-
ing sem á stóð: „Fyrir að borga
ekki, með kveðjum, Fjölskyld-
an“. Talið er að Fernando Marti
hafi verið dáinn í allt að mánuð.
En orðsending er ekki sannleik-
anum samkvæm, því Marti-fjöl-
skyldan hafði greitt lausnargjaldið,
sem samsvarar tæpum tvöhundr-
uð milljónum króna. Eftir að hafa
reitt féð af hendi og ekki heyrt neitt
frá mannræningjunum hafði fjöl-
skyldan fyrst samband við ríkis-
saksóknara og skrifstofu almanna-
öryggis.
Fernando Marti var borinn til
grafar 3. ágúst og á forsíðu dag-
blaðsins Reforma gat að líta ljós-
mynd sem sýndi svartklædda lík-
fylgd sem gekk fyrir flota svartra
eðalbifreiða. Fregnir herma að
blómakransarnir hafi verið svo
margir að það þurfti trukk til að
flytja þá til kirkjugarðsins.
Dagblöð höfuðborgarinnar
voru yfirfull af samúðarkveðjum
frá viðskiptafélögum og vinum
Marti-fjölskyldunnar, auk þess
sem bréfum frá reiðum almenn-
ingi rigndi inn á ritstjórnina.
þeIr seM lenDa í þeim hremmingum í
Mexíkó að fjölskyldumeðlimi er rænt og
lausnargjalds krafist ættu alla jafna að
leita til alríkislögreglunnar þar í landi.
alríkislögreglan, afI, hefur það verk með
höndum að rannsaka mannrán. Vegna
hins mikla fjölda alríkislögreglumanna
sem bendlaður hefur við spillingu og
glæpsamlegt athæfi reiða fáir borgarar sig
á hana í slíkum málum og hafa ekki mikla
trú á að hún sé í stakk búin til að vernda
þá.
fernando Marti var til dæmis rænt af
mönnum sem voru klæddir eins og
liðsmenn afI, í grennd við eftirlitsstöð á
vegum alríkisstofnunarinnar. sökum reiði
almennings vegna örlaga fernandos
Mexíkóska alríkislögreglan, AFI, sér um að rannsaka mannrán:
Spillingin liggur víða
Samkvæmt tölum frá
skrifstofu almanna-
öryggis í Mexíkó hafa
8.416 mannrán átt sér
stað stað frá 1994 fram
til mars í ár.
lögreglan í Mexíkó
Mikillar spillingar gætir
innan hinna ýmsu
löggæslusveita.