Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2008, Page 10
Það var í desember í fyrra sem
fregnir bárust af því að tíu glæsi-
bílar hefðu brunnið til kaldra kola í
Vogum við Vatnsleysuströnd. Í ljós
kom að eigandi bílanna var maður
að nafni Ragnar Magnússon sem þá
var veitingamaður og rak skemmti-
staðina Oliver, Lídó, Barinn, Q-bar
og Iðusali. Lögreglan hóf rannsókn
á málinu og grunaði sterklega að
um íkveikju væri að ræða. Síðar
kom í ljós að bílarnir höfðu verið
í vörslu þjóðþekkts handrukkara,
Annþórs Karlssonar, og sögurn-
ar spruttu upp. Ragnar fékk við-
urnefnið Brunabíla-Ragnar. Síðar
kom í ljós að Ragnar átti í rekstrar-
erfiðleikum með skemmtistaðina.
Nú er svo komið að Ragnar hefur
kært fyrri eigendur staðanna fyrir
að beita handrukkunum í viðskipt-
um. Þá hefur hann eldað grátt silfur
við líkamsræktarþjálfarann Benja-
mín Þór Þorgrímsson.
Verðlaunaþáttur-
inn Kompás er
kominn í mál-
ið. Þeir hafa
undir hönd-
um mynd-
skeið sem sýn-
ir Benjamín
ganga í skrokk
á Ragnari. Hann
hefur óskað eftir
lögbanni á mynd-
skeiðið en ekki
fengið. Sam-
kvæmt heimild-
um DV er Ragn-
ar í felum þessa
dagana.
Ógeðfelldar hótanir
Upphaf málsins má rekja til bíla-
brunans en þá var Ragnar nýbúinn
að festa kaup á skemmtistöðunum
sem áður voru í eigu þeirra Arnars
Þórs Gíslasonar, Loga Helgasonar,
Níelsar Hafsteinssonar, Hafsteins
Egilssonar og Þórðar Ágústssonar.
Svo virðist sem Ragnar hafi lent í
rekstrarerfiðleikum með staðina og
að auki ekki getað staðið alfarið við
samning við fyrri eiganda. Um það
var þó deilt en hitt er ljóst að Ragn-
ar sakaði fimmmenningana um að
hafa kúgað sig til að skrifa undir
afsal fyrir stöðunum. Hann kærði
þá félaga auk Benjamíns Þórs og
Hilmars Leifssonar fyrir það. Þeir
neituðu þeir alfarið ásökunum
Ragnars.
„Ég var beinlínis neyddur til
þess að skrifa undir pappírana,“
sagði Ragnar Magnússon í viðtali
við DV í vor en sjálfur taldi hann
að beint tjón vegna undirskriftar-
innar hefði numið rúmlega hundr-
að milljónum króna. Hann sagði í
sama viðtali ástæðuna fyrir því að
hann skrifaði undir að lokum hafa
verið ógeðfelldar hótanir Hilmars
og Benjamíns þar sem honum var
meðal annars hótað limlestingum
og að tennur hans yrðu brotnar.
Þá þurfti fjölskylda Ragnars
einnig að þola ofsóknir af hálfu
mannanna tveggja að hans sögn.
Kærir fyrir falskar sakargiftir
Fáir tjáðu sig um ásakanir Ragn-
ars en þegar haft var samband við
líkamsræktarþjálfarann Benjamín
Þór brást hann ókvæða við. Hann
hafði kært Ragnar til baka fyrir
meiðyrði.
Í viðtali við DV í vor sagði hann:
„Það er alveg hrikalegt að lenda í
svona manni.“
Benjamín neitaði að hafa hótað
Ragnari á nokkurn hátt. Hann sagð-
ist hafa hitt Ragnar tvisvar og þá
hefðu fleiri verið með. Aldrei hefði
hann hótað neinum. Hann sakar
Ragnar um að hafa dreift óhróðri
um sig og kærði Ragnar fyrir falsk-
ar sakargiftir. Hann segir það ekki
rétt að hann sé handrukkari líkt og
Ragnar vill meina eða að hann hafi,
með hótunum, neytt hann til að af-
sala sér stöðunum með hjálp Hilm-
ars Leifssonar.
Kveikt í bíl
Það var síðan í vor sem óprútt-
inn aðili kveikti í bíl Benjamíns
Þórs fyrir utan heimili hans í
Bryggjuhverfinu við Grafarvoginn.
Benjamín var þá brattur í viðtölum
og taldi sig vita hver væri sökudólg-
urinn í málinu.
„Það er nú eiginlega bara einn
maður sem kemur til greina, jafn-
vel þótt hann sé farinn til Taílands,“
sagði Benjamín í viðtali við DV þá.
„Þetta er ekkert flókið,“ bætti hann
svo við.
Á sama tíma var Ragnar í fríi úti
á Taílandi og segist ekki hafa komið
nálægt brunanum. Engu að síður
var þetta bókstaflega olía á eldinn
þeirra á milli.
Lögreglan rannsakaði málið.
Benjamín auglýsti hálfrar milljón-
ar króna verðlaun fyrir hvern þann
sem gæti upplýst hann um það hver
kveikti í bílnum. Engar upplýsingar
fengust og málinu er enn ólokið.
Laminn við höfnina
Samkvæmt heimildum kom
Kompás inn í málið nokkuð
snemma. Þá mun Ragnar hafa tek-
ið upp mikið af samskiptum sín-
um við fyrri eigendur skemmti-
staðanna og lét Kompás fá í heild
sinni. Að lokum var líkamsárásin
tekin upp þar sem Benjamín Þór
gekk í skrokk á Ragnari við höfnina
í Hafnarfirði, nálægt hafnarvog-
inni. Þá var Ragnar það illa útleik-
inn að kalla þurfti á sjúkrabíl. Í ljós
kom að hann var rifbeinsbrotinn
og marinn. Hann kærði Benjamín
til lögreglunnar í kjölfarið fyrir lík-
amsárás en yfirlögregluþjónn sagði
í viðtali við DV að óskað hefði verið
eftir myndskeiði Kompáss.
Lögfræðingur Benjamíns, Vil-
hjálmur H. Vilhjálmsson, óskaði
eftir lögbanni á myndskeið Komp-
áss hjá sýslumanninum í Reykjavík
stuttu eftir verslunarmannahelg-
ina. Sýslumaður hafnaði beiðn-
inni. Þeirri ákvörðun var síðan
áfrýjað og er beðið eftir niður-
stöðu vegna þess.
Ragnar í felum
Málið er hið forvitni-
legasta. Ragnar held-
ur sig í felum af ótta
við Benjamín og því
næst ekki samband
við hann. Ástæðan
fyrir því að Benja-
mín lamdi Ragn-
ar, auk fyrri mála,
var sú að Ragnar
sakaði Benjamín
um að vera hand-
rukkari. Í kjölfarið
á hann að hafa sektað
Ragnar um fimm milljónir
króna vegna ummæla sem hann lét
falla um Benjamín í fjölmiðlum. Að
auki segja heimildir að Ragnar hafi
undir höndum samtöl við fyrri eig-
endur skemmtistaðanna þar sem
honum er hótað handrukkun. Það
er þó ekki ljóst hvað leynist í upp-
tökum Ragnars en Kompás mun
hafa þær undir höndum.
Kærur Ragnars eru í rannsókn
hjá lögreglunni á höf- uð-
borgarsvæð-
inu. Ekki
hefur ver-
ið gefin
út ákæra
vegna
þeirra.
föstudagur 15. ágúst 200810 Helgarblað DV
Veitingamaðurinn Ragnar Magnússon heldur sig í felum af ótta við handrukkara að eigin sögn. Á einu ári
hefur hann farið úr því að vera stóreignamaður yfir í að kæra mann og annan vegna meintra handrukkana
og ofbeldisverka. Líkamsræktarþjálfarinn Benjamín Þór Þorgrímsson hefur eldað grátt silfur við Ragnar
en Kompás hefur undir höndum óhugnanlegt myndskeið af líkamsárás þar sem Benjamín lemur Ragnar.
vaLuR gRettisson
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
BílaBrenna og
handrukkarar
Ragnar Magnússon
Lifir í ótta við handrukk-
ara og heldur sig í felum.
Jóhannes Kristjánsson ritstjóri
Kompáss hefur undir höndum
myndband sem sýnir Benjamín ganga í
skrokk á ragnari. Lögreglan hefur óskað
eftir að fá myndbandið.
Benjamín Þór Þorgrímsson Hefur
meðal annars keppt í vaxtarrækt en
ragnar sakar hann um að vera
handrukkari. Því neitar Benjamín og
hefur kært ragnar fyrir falskar
sakargiftir.
Dularfullur bílabruni Kveikt var í
lúxusbílum ragnars á síðasta ári. Það voru
fyrstu teiknin um að allt væri að fara í háaloft.
„Það er alveg hrika-
legt að lenda í svona
manni.“
Mánudagur 11. ágúst 20084
Fréttir
InnlendarFréttIrritstjorn@dv.is
Bróðir stúlkunnar einnig yfirheyrður
Kynferðisbrotadeild lögreglunn-
ar á höfuðborgarsvæðinu hefur yfir-
heyrt bróður stúlku sem kærði fóstra
sinn fyrir kynferðisofbeldi. Systkinin
voru vistuð hjá hjónum í Kópavogi á
grundvelli samnings við Félagsþjón-
ustuna eftir að þau voru metin hæf til
að taka börn í fóstur.
Þær upplýsingar hafa fengist hjá
lögreglunni undanfarnar tvær vikur
að rannsóknin sé á lokastigi. Hins
vegar hefur málið enn ekki ver-
ið sent til ríkissaksóknara. Björgvin
Björgvinsson, yfirmaður kynferðis-
brotadeildarinnar, segir að hluti af
skýringunni sé sumarfrí rannsókn-
armanna en hann vonast til að rann-
sókn ljúki sem allra fyrst enda kyn-
ferðisbrotamál alltaf sett í sérstakan
forgang.
Stúlkan sem lagði fram kæruna
er nú sextán ára gömul en kærð brot
voru framin þegar hún var átta til tólf
ára, á árunum 2000 til 2004.
Yngri bróðir stúlkunnar var einn-
ig vistaður á heimilinu. Hann var
enn hjá hjónunum þegar systir hans
greindi frá brotunum fyrr í sumar en
hún hafði þá um nokkurn tíma búið
annars staðar. Félagsþjónustan rifti í
kjölfarið samningnum við hjónin og
eru nú engin börn hjá þeim á vegum
barnaverndaryfirvalda.
Björgvin vill hvorki játa því né
neita hvort maðurinn sé grunað-
ur um að hafa brotið gegn bróður
stúlkunnar en staðfestir að hann hafi
einnig verið yfirheyrður í tengslum
við málið.
Fóstrinn er ekki á sakaskrá en afar
strangar kröfur eru gerðar til þeirra
sem fá að taka börn til sín í fóstur á
vegum barnaverndaryfirvalda.
Eftir að málið er sent til ríkissak-
sóknara tekur hann ákvörðun um
hvort gefin verður út ákæra, hvort
afla þarf frekari gagna til að taka af-
stöðu eða hvort málið verður látið
niður falla.
erla@dv.is
Fóstrinn sviptur börnunum Lögreglan hefu
r yfirheyrt
bróður stúlku sem lagði fram kæru vegna
kynferðisofbeldis
fóstra þeirra. Börnin voru bæði tekin af hei
mili fóstrans og
konu hans eftir að stúlkan lagði fram kæru
.
Benjamín Þ. Þorgrímsson hefur
samkvæmt heimildum DV óskað eft-
ir lögbanni á Kompásþátt sem verð-
ur sýndur í september. Ástæðan fyrir
lögbannskröfunni er sú að Kompás
náði myndum af Benjamín þar sem
hann gekk í skrokk á Ragnari Magn-
ússyni veitingamanni. Benjamín hef-
ur sakað Ragnar um að hafa kveikt í
bíl Benjamíns fyrr í sumar.
Hvorki Jóhannes Kristjánsson,
umsjónarmaður Kompáss, né Benja-
mín hafa viljað tjá sig efnislega um
málið en lögbannskrafan hefur verið
sett fram.
Hótanir um limlestingar
Málið á sér talsvert langan að-
draganda. Ragnar sakar Benjamín,
sem er oft kallaður Benni Ólsari,
um að vera handrukkari og að hafa
haft í hótunum við sig. Ragnar segir
Benjamín hafa hótað sér vegna veit-
ingahúsakaupa.
Ragnar vildi meina að Benjamín
hefði í slagtogi við Hilmar Leifsson
haft uppi ógeðfelldar hótanir um
limlestingar og að tennur hans yrðu
brotnar skrifaði hann ekki undir af-
sal af staðnum. Ragnar segist hafa
skrifað undir undir plöggin til-
neydd-
ur
með
þeim afleiðingum að hann hafi orð-
ið af hundrað milljónum króna.
Hrikalegt að lenda í svona
manni
Ragnar talaði við fjölmiðla í kjöl-
farið og sagði frá hremmingum sín-
um og að auki lagði hann fram kæru
þar sem hann sakaði Benjamín um
að vera handrukkari. Benjamín brást
ókvæða við og kærði Ragnar á móti
og sakaði um að bera út róg um sig.
Benjamín vann þá sem líkamsrækt-
arþjálfari og gerir enn.
„Það er alveg hrikalegt að lenda í
svona manni,“ sagði Benjamín í við-
tali við DV í mars síðastliðnum og
neitaði alfarið ásökunum Ragnars.
Kveikt í jeppa
Það var svo í apríl sem lúxus-
jeppi Benjamíns stóð í ljósum
logum við heimili hans. Í við-
tölum var Benjamín fullviss
um að Ragnar hefði
kveikt í bílnum þó
það hafi aldrei ver-
ið sannað. Hann
lýsti eftir vitn-
um gegn hálfr-
ar milljón króna greiðslu en enginn
gaf sig fram. Ragnar neitaði þó full-
um fetum ásökunum um íkveikju
en hann var staddur í Tælandi þegar
atvikið átti sér stað. Hitt var þó ljóst
að samskiptin þeirra á milli fóru
versnandi.
Tóku upp slagsmál
Það var síðan fyrr í sumar sem
Ragnar á að hafa beðið Benjamín um
að hitta sig. Benjamín þáði boðið en
vissi ekki að Kompás var með Ragn-
ari í ráðum en sjálfur mun Ragnar
hafa verið vopnaður upptökutæki.
Þegar þeir hittust á að hafa soðið
upp úr í samskiptum þeirra og þeir
lent í átökum. Kompás náði því öllu
á myndband og er verið að undir-
búa þátt um handrukkara sem verð-
ur á dagskrá í september. Þegar leit-
að var eftir viðbrögðum Jóhannesar í
Kompási vegna málsins sagðist hann
ekki tjá sig um málefni sem varða
þáttinn. Hann sagði aðeins að sýn-
ingar hæfust um miðjan september.
Lögbannskrafan hefur ekki ver-
ið samþykkt en lögfræðingur Benja-
míns hefur óskað eftir því við sýslu-
mann og er beðið eftir niðurstöðu.
Benjamín Þ. Þorgrímsson Ragnar Magnússon
Vill lögbann
á Kompás
Það var síðan fyrr í sum-
ar sem ragnar á að hafa
beðið Benjamín um að
hitta sig.
valuR gReTTisson
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Ragnar Magnússon
á að hafa verið laminn
af Benjamín á meðan
Kompás tók það upp.
Jóhannes Kristjánsson
Vill ekki tjá sig efnislega
um málið.
Bílabrenna í vogum ragnar átti
lúxusbílana sem urðu eldi að bráð í
Vogunum undir lok síðasta árs og lék
grunur á að um íkveikju væri að ræða.
Benjamín Þ. Þorgríms-
son Hefur óskað eftir
lögbanni á Kompásþátt.
skorinn á háls
með glerflösku
Óttast var um líf manns
sem var skorinn í hálsinn með
brotinni flösku á Lækjargötu
í Reykjavík aðfaranótt sunnu-
dags. Lögreglumenn sem komu
á vettvang sögðu aðkomuna afar
ljóta. Menn óttuðust um líf fórn-
arlambsins þar til kom í ljós að
slagæð í hálsi hafði ekki rofnað.
Maðurinn lifði árásina því af og
var færður á sjúkrahús. Þaðan
var hann útskrifaður í gær.
Talið er að tveir menn hafi
ráðist á fórnarlambið en þeir eru
ófundnir.
Sleginn af
flöskukastara
Maður var sleginn í
andlitið við Fógetagarðinn
í Lækjargötu í nótt. Hafði
fórnarlamb árásarinnar reynt
að fá tvo menn til að hætta
að kasta flöskum í gangandi
vegfarendur við leigubíla-
röðina. Eitthvað fór það illa í
annan gerandann sem veitt-
ist að manninum og sló hann
í andlitið. Flöskukastararn-
ir voru báðir handteknir af
lögreglu, þeir yfirheyrðir og
sleppt.
sextíu milljónir
í sjóstangveiði
Um 60 milljónir króna hafa
verið settar í að markaðssetja
sjóstangveiði í Bolungarvík að
undanförnu. Það hefur þegar
skilað árangri því samningar
hafa náðst við ferðaskrifstof-
ur í Póllandi, Svíþjóð, Tékk-
landi, Englandi og Þýskalandi.
Bæjarráð Bolungarvíkur hefur
úrskurðað að ekki verði hægt
að úthluta lóðum til ferðaþjón-
ustufyrirtækjanna Hvíldarkletts
og Sumarbyggðar í bráð, en
fyrirtækin hugðust byggja vist-
arverur fyrir sjóstangveiðimenn
fyrir árið 2010. Forsvarsmenn
beggja fyrirtækjanna segjast
ætla að bíða rólegir og vona að
það leysist fljótt úr skipulags-
málum, en þetta eru ákveðin
vonbrigði fyrir bæjarfélagið.
Dýrkeyptur
utanvegaakstur
Lögreglan á Hvolsvelli
fékk tilkynningu um tvö til-
felli þar sem utanvegaakst-
ur átti sér stað. Náðist annar
ökumaðurinn og var hann
sektaður um 200 þúsund
krónur. Um mjög gróft brot
var að ræða og er sektar-
ramminn 300 þúsund krón-
ur. Leit að hinni bifreiðinni
stendur yfir og má ökumað-
ur hennar búast við hárri
sekt þar sem um gróft brot
er að ræða. Landverðir hafa
tekið myndir af ökutækj-
um og skemmdunum sem
utanvegaaksturinn hefur
valdið. Þó að menn haldi sig
sloppna, þá verður haft sam-
band við þá síðar.
Dv 11. ágúst fjallað
hefur verið ítarlega um
erjur ragnars og
Benedikts í dV.