Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2008, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2008, Side 12
Allt er þegar þrennt er og fullreynt í fjórða segir máltækið. Það er spurn- ing hvort það eigi við í borgarstjórn en hitt er þó ljóst að þrír meirihlut- ar hafa geispað golunni á þessu kjör- tímabili. Reyndar er sú staða komin upp að þegar nýr meirihluti tekur við á næstu dögum hafa jafn margir meirihlutar verið við völd í Reykja- vík á þessu kjörtímabili og voru við völd í borginni síðustu 77 árin þar á undan, eða frá upphafi núverandi flokkakerfis. „Höldum áfram“ er heiti yfirlýs- ingar Framsóknarflokks og Sjálf- stæðisflokks um að taka aftur hönd- um saman um meirihlutasamstarf í borgarstjórn. Sú yfirlýsing kveður á um að samstarf flokkanna byggi á málefnasáttmála þeirra frá því við meirihlutamyndun vorið 2006 en að teknu tilliti til breyttra aðstæðna í efnahagslífi þjóðar og borgar. Bjartsýnir oddvitar „Þetta hafa verið viðburðaríkir dagar,“ sagði Óskar eftir að Hanna Birna las yfirlýsinguna upp. „Ég veit að ég tala fyrir okkur bæði þegar ég segi að við séum bjartsýn á fram- haldið.“ „Hann mun sannarlega halda út kjörtímabilið,“ sagði Hanna Birna þegar hún var spurð hvort borgar- búar hefðu ástæðu til að ætla að nýi meirihlutinn héldi til enda kjörtíma- bilsins. Hanna Birna sagði að hún, Óskar og aðrir borgarfulltrúar hefðu lært af því hvernig fyrra meirihluta- samstarfi flokkanna lauk með hvelli fyrir tæpu ári. Óskar sagði flokkana hafa útkljáð deilur sínar um Orkuveituna og REI en að það yrði ekki kynnt fyrr en á fimmtudag í næstu viku þegar nýr meirihluti tekur við völdum í borg- inni. Svo er að sjá að málefni Orku- veitunnar og REI annars vegar, og komandi vinna við gerð fjárhagsá- ætlunar fyrir næsta ár hins vegar hafi verið þau málefni sem bar hæst í við- ræðum Hönnu Birnu og Óskars. Þriðja skipti hjá báðum Sjálfstæðisflokkur er nú að mynda sinn þriðja meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur á 27 mánuðum. Fyrr í dag tilkynntu sjálfstæðismenn Ólafi F. að þeir myndu ekki vinna áfram með honum í borgarstjórn. Hanna Birna sagði að það væri miklu betra að slíta meirihlutasamstarfi við Ólaf F. Magnússon borgarstjóra núna og horfast þar með í augu við stað- reyndir en að halda áfram. Þetta væri því betra fyrir borgarbúa. Þetta er líka þriðji meirihlutinn sem framsóknarmenn eiga aðild að í borginni. Óskar var varamaður í fyrstu tveimur meirihlutunum en er nú aðalmaður í fyrsta sinn. Árni Þór Sigurðsson, þingmaður vinstri-grænna og fyrrverandi borg- arfulltrúi flokksins í Reykjavík, sagði í fréttum RÚV í kvöld að Ólafur F. föstudagur 15. ágúst 200812 Helgarblað DV hanna birna í hásætið Fjórði meirihlutinn tekur við völdum í Reykjavík nú þegar kjör- tímabilið er rétt rúmlega hálfnað. Sjálfstæðismenn hættu sam- starfi við Ólaf F. Magnússon borgarstjóra og tóku höndum sam- an við framsóknarmenn. Óskar Bergsson verður formaður borgarráðs og Hanna Birna Kristjánsdóttir tekur við embætti borgarstjóra af Ólafi F. Magnússyni. Óskar hafnaði boði um að taka þátt í að endurvekja Tjarnarkvartettinn sem meirihlutaafl í borgarstjórn Reykjavíkur. Vinstristjórn (Alþýðubandalag, Alþýðuflokkur og Framsóknar- flokkur) Sjálfstæðisflokkur Sjálfstæðisflokkur 1929 1978 1978 1982 1982 1994 Borgarstjórnarmeirihlutar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.