Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2008, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2008, Side 17
DV Helgarblað föstudagur 15. ágúst 2008 17 RíkaRi þRátt fyRiR tapið að hafa greitt Bubba þrjú hundruð þúsund krónur fyrir að spila í allt að einn og hálfan tíma. Þeir töldu að kóngurinn hefði snuðað þá og aðeins spilað í 45 mínútur. Gestir höfðu greitt 2.900 krónur fyrir að- gangsmiðann en Bubbi vísaði gagn- rýninni á bug í samtali við dv.is. „Ég var ráðinn til að spila í 45 mínút- ur og spilaði í klukkutíma,“ sagði Bubbi. Ljóst er að Bubbi er með gott tímakaup, og má því vænta meiri spilamennsku frá honum á næst- unni í ljósi þrenginganna. Endaði í skelfingu Allt frá því að leitinni að söngv- ara fyrir Bandið hans Bubba lauk fyrr á þessu ári höfðu menn verið forvitnir um fjárhag Bubba, eftir að hann ráðlagði sigurvegara þátt- anna, Eyþóri Inga Gunnlaugssyni, að kaupa alls ekki hlutabréf fyrir milljónirnar þrjár sem hann hlaut í sigurlaun. Í viðtali við Morgun- blaðið á dögunum greindi Bubbi Morthens frá því að viðskipti hans á hlutabréfamarkaði hefðu end- að með skelfingu. Tiltók hann sér- staklega að hann hefði tapað háum fjárhæðum á viðskiptum sínum með bréf í FL Group, Exista og Eim- skipum. Bubbi sagðist taka ábyrgð á eigin gjörðum þó hann sendi fé- lögunum tóninn og sakaði þau um ekki hafa gætt nægjanlega vel að sér. Bubbi hafði tapað „gommu af milljónum“ eins og hann orðaði það sjálfur. Eftir tímabil þar sem tal- ið er að hann hafi þénað vel á ann- an milljarð króna, segist Bubbi eitt sinn hafa verið efnaðan en sé nú rétt á floti. Var allt unnið fyrir gýg? Einn viðmælandi sagðist hafa heyrt að svo væri. Lögin hans Bubba voru eign, sem hann hafi fengið lán út á. Hvatvísi Bubba hefði líka getað sent hann í örbirgð, hefði ekki verið fyrir íhlutun bankastarfsmanns sem réð honum frá því að taka 100 milljóna króna lán til að kaupa hlutabréf. „Ég fór að hans ráðum og þess vegna er ég ekki öreigi.“ segir Bubbi í Morg- unblaðinu, bankastarfsmanninum augljóslega þakklátur. Bubbi bissnessmaður? Bubbi hefur haft talsverðar áhyggjur af fjármálum þetta árið og tjáð sig talsvert um stöðu mála. Bubbi lýsti því yfir í apríl á þessu ári að hann og umboðsmaður hans væru að leggja drög að því að hon- um yrði greitt í evrum fyrir að koma fram. „Ég hef ekki lengur trú á krón- unni. Hún er ónýtur gjaldmiðill, og mun setja þúsundir manna á haus- inn á næstu misserum á Íslandi,“ var haft eftir Bubba á Vísi þann 21. apríl síðastliðinn. Yfirlýsing Bubba á síðum Morgunblaðsins þurfti því kannski ekki að koma mörgum á óvart. Fyrirtæki á Íslandi hafa átt und- ir högg að sækja undanfarið og eft- ir öll þessi ár á toppnum og í sviðs- ljósinu þá er Bubbi orðinn sitt eigið fyrirtæki. Veltir fyrir sér að gera upp í evrum, orðinn Evrópusinni, og skilar tapi á tilteknum ársfjórðungi. Hann hefur selt manna mest af plötum hér á landi og verið dugleg- ur við að koma sér á framfæri á hin- um ýmsum vettvangi á margvíslega vegu. Viðmælendur DV vilja þó ekki beinlínis meina að Bubbi sé mikill kaupsýslumaður sem slíkur. Hann er sagður maður sem bjargar sér, en sumum hann stundum taka nið- ur í þeim verkefnum sem hann hef- ur tekið að sér utan tónlistarinnar. Menn þurfa að lifa, og ef hann héti ekki Bubbi Morthens myndi enginn setja út á þó hann gerði auglýsinga- samninga og sjónvarpsþætti. Frá fátækt í ríkidæmi Tilhneigingin er sú að setja listamenn á vissan stall þar sem þeim er gert að vera ósnertir af markaðsöflum en Bubbi hefur sýnt gríðarlega sjálfsbjargarvið- leitni á því sviði. Einn viðmæl- andi DV vill eigna uppeldi hans það. Hann ólst upp við erfið- ar aðstæður sem krakki þar sem ekki var mikið til af peningum á heimilinu. Bubba er lýst sem þannig manni að hann vill þéna alla þá peninga sem hann getur, og eins og oft er með fólk sem alist hefur upp við krappan kost, þá vill hann aldrei þurfa að upplifa slíkt aftur. Bubbi þarf að lifa eins og aðrir og það er enginn sem slær hendinni á móti háum fjárhæð- um þegar þær bjóðast. Hann hef- ur efnast vel á sínum ferli, og fyr- ir tilstilli sinna eigin bjarga náð að lifa sem tónlistarmaður á sínum eigin verðleikum á agnarsmáum tónlistarmarkaði. Hann er öfund- aður jafn mikið og hann er dáður. Ríkari þrátt fyrir tapið Bubbi fór út í stóra fjárfestingu þegar hann ákvað að byggja sér glæsilegt einbýlishús við Meðal- fellsvatn í Kjós. Þar býr hann nú ásamt eiginkonu sinni Hrafnildi Hafsteinsdóttur, sem hann kvænt- ist í júní í fallegri athöfn, og fjöl- skyldu. Byggingaferlið tók sinn tíma en útkoman er gullfalleg glæsieign í sveitasælunni við Meðalfellsvatn. Nýjustu fregnir herma að þau hjón- in eigi nú von á sínu fyrsta barni saman og virðist því sem svo að Bubbi sé að verða enn ríkari, á tím- um þegar hann hefur, að eigin sögn, minna á milli handanna en oft áður. Fyrir Bubba eru börnin hans og ást- in í lífinu mesta ríkidæmið. Ham- ingjan skín úr augum hinna nýgiftu hjóna, og óhætt er að segja að óþarfi sé að hafa áhyggjur af því að Bubbi Morthens rísi ekki upp á nýjan leik tvíefldur eftir hremmingar undan- farið í fjármálaheiminum. Merkisberi á nýjan leik Bubbi Morthens hefur lagt mikið upp úr heiðarleikanum, bæði gagn- vart sjálfum sér og öðrum. Heiðar- leika er auðvelt að túlka sem hroka en eins og haft var eftir Bubba í við- tali við Mannlíf árið 2006: „Ef mað- ur er ekki heiðarlegur er engin von til þess að öðlast lífsfyllingu. Mað- ur stefnir í áttina að fullkomnun en það getur enginn náð því marki.“ Þegar Bubbi gekkst við því á dögun- um að hafa tapað gríðarlegum fjár- hæðum á hlutabréfamarkaðnum var hann einfaldlega hann sjálfur. Þegar aðrir hafa hvorki þor né kjark til að viðurkenna ósigur í ólgusjó, stelur Bubbi enn á ný sviðsljós- inu með því að vera hann sjálfur. Kannski báru orð hans vott af þeirri hvatvísi sem hann er svo þekktur fyrir, að tala áður en hann hugsar, en hann gekkst við orðum sínum. Allt í einu er Bubbi Morthens orðinn merk- isberi enn á ný. En í þetta skiptið er það ekki verkalýðsins sem þrælar í gúanóverk- smiðjum, heldur þeirra þúsunda Íslendinga sem gullæði íslenskra stórfyrirtækja kippti fótunum undan þeg- ar harðna fór í ári. Þrátt fyrir að hafa tapað pening- um á pappír, þá stendur Bubbi Morthens engu að síður einhvern veginn, enn eina ferðina, uppi sem sigurvegari. mikael@dv.is Opinskár, hreinn og beinn Bubbi hræðist ekki að að taka 180 gráðu snúning í skoðunum sínum. „Eftir að hafa selt hundruð þúsunda plötueintaka í gegnum árin tald- ist Bubba til að brúttótekjur hans væru vel yfir milljarð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.