Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2008, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2008, Side 30
Edda Heiðrún Backman tekur blíð- lega á móti viðskiptavinum sem ráfa inn í verslun hennar Súkkulaði og rósir á Hverfisgötunni. Þar geng- ur fólk ekki einungis inn til þess að kaupa eina rós eða gjafavöru, held- ur líka til að fræðast. Edda er uppfull af fróðleik um blómin sem umvefja hana og súkkulaðið – sérstaklega súkkulaðið. Er blaðakona gengur inn tek- ur Edda á móti henni og segir bros- andi: „Þetta var eitt sinn erótísk búlla þannig að hér inni er góð orka.“ Það er rétt rúmlega hálft ár síðan versl- unin var opnuð, í nóvember í fyrra, á fimmtugsafmæli Eddu. „Ég varð að finna mér eitthvað viðurværi eftir að sjúkdómurinn fór að setja mark sitt á mig. Ég bjó mér til fallegt umfjöllunarefni sem eru súkkulaði og rósir, eitthvað sem mér finnst nauðsynlegt að hafa í kringum mig og það hefur verið ákaflega gam- an,“ segir Edda. Hún segir einnig gott að aðstoða viðskiptavinina sem vilja oft á tíðum láta tilfinningar sínar í ljós eða tala undir rós. Gefur eiginmanninum blóm í hverri viku Edda er endalaus uppspretta fróðleiks þegar kemur að súkku- laði. „Súkkulaðibaunin er fyrirbæri sem lætur hafa mikið fyrir sér. Í fleiri hundruð ár var súkkulaðidrykkurinn aðeins framleiddur fyrir konunga. Það veit heldur enginn af hverju súkkulaði og kókossmjör bráðnar við 37 gráðu hita. Súkkulaði er leyndar- dómur og var álitið guðlegt fyrirbæri,“ útskýrir Edda og bætir við að heitt súkkulaði sé hinn eini sanni ástar- drykkur. Hvaðan kemur þessi óendanlegi áhugi? „Ég er súkkulaðifíkill, en mig lang- aði að vinna líka með blóm, tvinna þetta saman á einhvern hátt,“ segir Edda. Ástríða hennar á blómum kem- ur frá eiginmanni hennar, Jóni Axel Björnssyni listamanni. Edda segir hann hafa gefið sér mikið af blómum í gegnum tíðina. Þau hafa verið gift í 11 ár, verið saman í 13 og upplýsir Edda að hún hafi fengið blóm reglu- lega frá manni sínum í öll þessi ár. Í dag er komið að henni að gefa blóm- in þar sem hún er nú einu sinni orð- in blómaeigandi. „Í dag gef ég honum blóm. Ég reyni að muna eftir að gefa honum vikulega,“ segir hún og brosir. Prófar ný lyf Með haustinu bíður Eddu mikil vinna. Í september leikstýrir hún af- mælisdagskrá Atla Heimis Sveinsson- ar, sem fagnar sjötugsafmæli sínu þá. Þjóðleikhúsið hefur ákveðið að heiðra hann með pompi og pragt. Edda leik- stýrði síðast sýningunni Hjónabands- glæpir í fyrra en hún hefur hlotið mik- ið lof sem leikstjóri undanfarin ár fyrir sýningar á borð við Mýrarljós, Átta konur og Sölku Völku. Edda starfaði sem leikkona og leikstjóri í 25 ár, en vegna sjúkdómsins MND, sem er al- varlegur taugasjúkdómur, hefur hún dregið sig til baka. „Ég leyfi mér ekki að sakna. Þá væri ég búin að vera, “ segir Edda ein- læg. Hún segist hafa unun af því að fara í leikhús og gerir hún mikið af því. „Ég er stolt af öllu sem ég hef gert í leikhúsinu og hef átt fallegan og far- sælan feril. Leikhúsið á enn hug minn og hjarta, en ég hef verið í aðalhlut- verkum í 25 ár og ég get ekki annað en verið þakklát,“ segir hún. Föstudagur 15. ágúst 200830 Helgarblað DV Ég er að bíða eftir kraftaverki Edda Heiðrún Backman hef- ur verið ein farsælasta leik- kona landsins síðastliðin 25 ár. Í dag hefur Edda fundið sér nýja ástríðu í lífinu eftir að hún kvaddi leikhúsið vegna MND-sjúkdómsins. Hún hefur opnað fallega verlsun við Hverfisgötuna þar sem súkku- laði og rósir ráða ríkjum. „Ég leyfi mér ekki að sakna. Þá væri ég búin að vera.“ Verslunareigandi Edda Heiðrún Backman nýtur sín vel inn í verslun sinni súkkulaði og rósir – sem eru nýja ástríðan í lífi hennar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.