Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2008, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2008, Qupperneq 32
Föstudagur 15. ágúst 200832 Helgarblað DV EllismEllasumarið 2009 Tónleikasumarið 2008 á Íslandi hefur verið sumar ellismellanna. Bob Dylan, Paul Simon, John Fogerty og Eric Clapton, svo ekki sé talað hljómsveitina sem er með hærri meðalaldur en heimilisfólkið í álmu E á Grund, Bu- ena Vista Social Club. Kappar eins og Kris Kristofferson, Elton John og James Brown hafa einnig heimsótt sker- ið á síðastliðnum árum. DV veltir hér fyrir sér hvaða ellismellum landsmenn mega eiga von á næsta sumar. Tina Turner Það yrði stiginn trylltur dans í Laugardalshöllinni ef tina nokkur turner héldi tónleika á þar. söngkonan er þekkt fyrir líflega sviðsframkomu þrátt fyrir að vera komin hátt að áttræðisaldri, en tina verður sjötug á næsta ári. Eftir að frú turner sagði skilið við fyrrverandi eiginmann sinn, Ike turner, blómstraði hún sem sólosöngkonan. Ekki minnkuðu vinsældir hennar er kvikmyndin What‘s Love got to do With It með angelu Bassett í aðalhlutverki. Það er ekki til sú manneskja sem ekki kann textann við lög á borð við Private dancer og We don‘t Need another Hero, einnig fer aldrei úr tísku að taka Proud Mary í útgáfu Ike og tinu. Það er alveg á hreinu að Bryndís ásmunds, tina turner Íslands og sigga Beinteins yrðu fengnar til þess að hita áheyrendur upp áður en að drottningin sjálf stigi á svið. Willie Nelson án efa yrði þröngt á þingi í Laugardalshöllinni ef kántríkempan Willie Nelson héldi tónleika á Íslandi. Kappinn sem hefur verið að í rúmlega fimmtíu ár og hefur boðið upp á smelli á borð við On the road again og to all the girls I‘ve Loved Before. Kappinn hefur einnig samið klassísk lög á borð við Crazy sem Patsy Cline gerði vinsælt um árið. Það yrði áhugavert að sjá hvort að Willie karlinn kveikti sér ekki bara í einni jónu á sviðinu, en hann er þekktur fyrir að vera mikill grasreykingamaður sem og talsmaður þess að gras og hass verði lögleitt í Bandaríkjunum. unga kynslóðin myndi án efa flykkjast á tónleikana, en Willie bregður oft fyrir í hinum ýmsu kvikmyndum. annars myndu allir gömlu hipparnir kaupa sér miða á Willie. Bjartmar gunnlaugs og rúnni Júl myndu kannski kíkja saman. Nancy Sinatra Hún er ekki beint vinsælasta söngkonan á meðal þjóðarinnar en á sér án efa sinn aðdáendahóp, þó ekki væri nema bara fyrir lögin these Boots are M ade For Walking og Bang Bang. Fjöls kyldu- tengslin eru líka til þess fallin að sumir myndu hugsanlega kíkja á tó nleika með kellu, bara til að sjá dóttur Fr anks gamla í eigin persónu. af þeim sem nefndir eru til leiks hér á opnunni eru tó nleikar með Nancy þeir einu sem eru svo gott sem í hendi. Eða er það ekki annar s, geir? Barbra Streisand dramatíkin myndi taka öll völd í Höllinni er Barbra streisand stigi á stokk. Hún er með einstaka rödd, einkennilegt nef, en er alveg ótrúlega sjarmerandi á einhvern undarlegan hátt. Barbra er alltaf jafn glæsileg óháð aldri. Hún hefur líka samið ein skemmtilegustu lög fyrr og síðar og allir þekkja lagið the Way We Were úr samnefndri bkvikmynd. annars er lagið Woman In Love, eitt besta ástarlag fyrr og síðar. allar konur á Íslandi myndu skella sér á tónleika með frú streisand, ekki bara stúlkurnar á Létt Bylgjunni. Ekki væri ólíklegt að glitta myndi í ballöðukóngana Björgvin Halldórsson og stefán Hilmars á þessum tónleikum. Bruce Springsteen Hvort sem þið trúið því eða ekki er Brúsari nn að detta inn á sjötugsaldurinn á næsta ári. Hann fær því h iklaust að vera með hérna í ellideildinni. Má leiða að því líkur a ð gamla Laugardals- höllin yrði of lítil fyrir stórstjörnuna og því yrði sú nýja, Egilshöllin, notuð undir geimið. Maður sér alveg fyrir sér múginn stíga trylltan dans við dancing In the dark og Born to run og taka svo kveikjarann á þetta þegar lög eins og Philadelphia ómuðu um húsið. áheyrendu r á springsteen- tónleikum yrðu örugglega nokkuð breiður hópur. Magni, andrea Jóns og rúnar Þór eru þó einna lík legust til að mæta. Dolly Parton ameríska sveitasöngkonan dolly Parton er svo sannarlega ellismellur sem mætti fá til landsins. Þrátt fyrir að halda sér unglegri með bótoxi, sílíkoni og túperuðu hári er Parton orðin sextíu og tveggja ára gömul og er án efa allra heitasta kántrísöngkona í heimi. Eftir að hafa náð tuttugu og sex lögum á toppinn á vinsældarlistum og komið fjörutíu og tveimur plötum inn á topp tíu vinsældarlista ætti barmmikla söngkonan svo sannarlega að geta skemmt Íslendingum og troðfyllt Egilshöllina. Kántrýstjarna Íslands, Hallbjörn Hjartarson yrði án efa fremstur á tónleikunum, jafnvel að „crowd-surfa“ ef hann væri í stuði. Einnig er nokkuð líklegt að dóra takefúsa myndi fljúga heim frá Kaupmannahöfn þar sem hún rekur barinn Jolene sem heitir í höfuðið á einu frægasta lagi dolly Parton. Billy Idol árið 1955 fæddist William Michael albert Broad betur þekktur undir nafninu Billy Idol. Billy er einn heitasti rokkari fyrr og síðar. Mörg þekkt lög hafa komið frá Billy en þar má helst nefna lögin Mony Mony og White Wedding. Billy hefur og mun alltaf vera rokkari þó það séu tæp þrjátíu ár síðan hann kom með sína bestu slagara. rokkarar á borð við dr. gunna og Ellý úr Q4u myndu ekki láta sig vanta.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.