Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2008, Side 49

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2008, Side 49
DV Helgarblað föstudagur 15. ágúst 2008 49 Norrænir menn settust að á Grænlandi skömmu fyrir árið 1000. Þaðan gerðu þeir tilraunir til að nema land í Ameríku. Grænlend- ingar hurfu úr sögunni eins og jörðin hefði gleypt þá. Margar og mismunandi kenningar eru uppi um örlög þeirra. íbúa sem þeir nefndu skrælingja. Skinnavörur frá Grænlandi voru líka eftirsóttar og hinn drifhvíti Græn- landsfálki varð stáss konunga og að- alsmanna. Aðeins nokkur þúsund íbúar Grænlendingar tóku fljótlega kristni, enda gerðust þau bæði krist- in, Þjóðhildur kona Eiríks rauða og Leifur heppni sonur þeirra. Bisk- upsstóli var komið á fót í Görðum við Einarsfjörð, í næsta nágrenni við höfuðból Eiríks í Brattahlíð við Ei- ríksfjörð. Í nokkrar aldir virðast Grænlend- ingar hafa lifað bara býsna góðu lífi. Þeir töldu sig að minnsta kosti ekki hafa þörf á að nema Ameríku þótt þeir hefðu fljótlega fundið hana. Rit- aðar heimildir Grænlendinga sjálfra hafa engar fundist en menntir voru þó stundaðar þar; eitt Eddukvæð- anna á uppruna sinn á Grænlandi – Atlakviða hin grænlenska. Grænlendingar undirgengust vald Noregskonungs á sama tíma og Íslendingar upp úr miðri 13. öld og samfélag Grænlendinga var byggt upp svipað hinu íslenska, eftir því sem best er vitað. Grænlendingar urðu hins vegar aldrei mjög margir. Umfangsmikill fornleifauppgröftur hefur farið fram á rústum norrænu byggðanna og út frá niðurstöðum hans hefur verið giskað á að íbúar Vestribyggðar hafi verið 500-1.000 en í Eystribyggð hafi búið 3.000-5.000 manns þegar mest var. Þegar leið að lokum mið- alda fór hins vegar að halla undan fæti. Rostungs- tennur hröpuðu í verði þegar fílabein varð aftur fáanlegt. Um miðja 14. öld gekk erfitt kuldaskeið yfir og þá virð- ist Vestribyggð hafa lagst snögglega í eyði. Um sama leyti gekk Svartidauði í Noregi og má vera að plágan hafi borist með skipi til Vestribyggðar. Engin ummerki eru hins vegar um fjöldadauða íbúa, þvert á móti virðist brottflutningurinn hafa verið undir- búinn og samkvæmt Grænlandslýs- ingu Ívars Bárðarsonar vissu íbúar í Eystribyggð ekki af brotthvarfi hinna vestrænu landa sinna. Engin ummerki eru hins vegar um fjöldadauða íbúa, þvert á móti virð- ist brottflutningurinn hafa verið undirbúinn. Sex daga róður var milli Eystri- byggðar og Vestribyggðar. Framhald á næstu síðu SÍÐASTI GRÆNLENDINGURINN Vantar þig fjármálaráðgjöf? Þarftu að ná áttum í peningamálunum? lVið gerum heildar yfirlit yfir fjárhagsstöðuna lVið semjum við kröfuhafa um gjaldfallnar skuldir lVið aðstoðum þig við fasteignaviðskipti lVið gerum verðmat á fasteigninni þinni lVið bendum þér á hvar má spara og minnka útgjöld Hringdu núna! Það er auðveldara að taka á vandanum strax! GH Ráðgjöf Sóleyjargötu 17, 101 Reykjavík Sími 510-3500 og 615-1020 Guðrún Hulda Ólafsdóttir hdl Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali Geymdu þessa auglýsingu – Hún getur komið sér vel

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.