Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2008, Page 56

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2008, Page 56
Auk alls þess ruslpósts sem hrúgast inn í netpósthólf al- mennings dag hvern eru blogg- síður nú í auknum mæli að verða skotmark þeirra leiðigjörnu aðila er auglýsa Viagra og reðurstækk- anir með slíku offorsi að þeim er ekkert heilagt í þeim efnum, hvorki lagabókstafurinn eða frið- helgi einstaklingsins. Ástæðan er sú að margar blogg- síður eru í efstu sætum leitarvéla þegar ákveðin efnisorð eru slegin inn og auglýsingavægi þeirra því mikið. Þetta tækifæri vilja hinir ófyrirleitnu netkrimmar notfæra sér til að aug- lýsa vörur sem á engan hátt tengjast síðu hins ógæfusama bloggara. Kanadíski netráðgjafinn Barry Welford heldur úti vefsíðu fyrir fyrirtæki sitt og vinsælli bloggsíðu tengdri henni. Á dögunum var hann að fikta í innviðum Word- press-síðunnar þar sem bloggið er staðsett þegar hann rakst á kóða sem hann kannaðist ekkert við. Hlutverk kóðans var að láta Wordpress-vélina stofna aragrúa nýrra síðna sem allar innihéldu tengla sem vísuðu á aðrar síður sem auglýstu og seldu lyf. „Þetta var virkilega sniðug forritun,“ segir Welford. „Inn- an sólarhrings var komin í gang vefverksmiðja sem framleiddi nokkur þúsund nýjar síður. Í hvert skipti sem leitarvél skann- aði vefsvæðið bjó verksmiðjan til nýjan tengil.“ Welford tókst að hreinsa vef- svæðið að fullu innan tveggja sól- arhringa en sem dæmi um áhrif slíkrar netinnrásar lenti bloggið hans í fyrsta til þriðja sæti leitar- véla næstu tvær vikurnar þegar sum lyfjaheitin voru slegin inn. Ekki bara Viagra En hinir leiðigjörnu hakkarar beina fólki ekki eingöngu að Vi- agra-síðum. Mörg dæmi eru um að kóða sé komið fyrir á bloggsíðu sem hafi það hlutverk að lauma forritl- ingi á tölvur þeirra sem heimsækja síðuna. Í flestum tilvikum er um að ræða forritlinga sem leita uppi öll lykilorð og persónuupplýsingar sem vistaðar eru eða slegnar inn á lyklaborð viðkomandi tölvu. Sophos vírusvarnafyrirtæk- ið finnur að meðaltali um sex- tán þúsund vefsíður dag hvern sem innihalda slíkan kóða og um níutíu prósent þeirra eru ósköp venjulegar vefsíður sem hafa verið sýktar. Bloggsíður á hinu vinsæla bloggvefsvæði Google- risans, blogspot.com, eru aðal- skotmark hakkara þessa dagana og vefsvæðið komið í fyrsta sæti í framleiðslu sýktra vefsíðna. Hvað er til ráða? Sýking bloggsíðna hefur færst mikið í vöxt síðastliðið eitt og hálft ár og sér ekki fyrir endann þar á. Almenningur getur þó brugðist við með því að uppfæra blogg- kerfi sín í nýjustu útgáfu og sem dæmi hefur nýjasta útgáfa Word- press lokað flestum ef ekki öll- um glufum sem gerði hökkurum kleift að komast í innviði kerfis- ins áður. Einnig má verða sér úti um forrit sem fylgist stöðugt með bloggsíðu viðkomandi og gerir viðvart ef einhverjar breytingar verða sem notandinn hefur ekki framkvæmt sjálfur. palli@dv.is Síðastliðið eitt og hálft ár hefur færst í vöxt að bloggsíður verði fyrir innrás- um hakkara sem koma þar fyrir kóða. Hinar sýktu síður eru síðan notaðar í auglýs- ingaskyni fyrir Viagra eða til að nálgast upplýsingar í tölvum þeirra er heimsækja bloggið. Vinsæll á iPhone Á þeim eina mánuði sem liðinn er frá því Apple Store var opnað fyrir iPhone til að kaupa leiki hefur Super Monkey Ball rokselst. Á fjórum vikum hefur SMB selst í 300.000 eintökum og á rúmlega 800 krónur stykkið. Það gerir um 243 milljónir króna í tekjur sem verður að teljast mjög gott. Þessi góðu viðbrögð verða sennilega til þess að Apple mun setja mun meiri kraft í leikjaframleiðsluna fyrir símann vinsæla. Hátalarar fyrir iPod sem líkj- ast gömlu góðu Lego-kubbunum hafa náð þó nokkrum vinsældum undanfarið. Hægt er að fá nokkrar útgáfur þessara hátalar. Allt frá litl- um kubbum sem festast beint und- ir iPodinn og yfir í stærri kubbasamstæðu sem virka eins og hefð- bundnir iPod-hátal- arar. Meðal annars hefur unglingastjarn- an Miley Cyrus tekið ástfóstri við litlu kubbahátalarana og fer víst hvergi án þess að vera með eitt stykki með sér. Á slúðursíðum vestra segir frá því að söngkona haldi iðulega uppi stuð- inu í tónleikarútu sinni. Hátalarnir eru ekki framleiddir af Lego og ekki víst hvort fyrirtæk- ið samþykki fram- leiðslu þeirra en engu að síður hafa þeir náð miklum vinsældum. Hægt er að nálgast hátal- arana á ýmsum stöðum á netinu og er líklega hægt að finna þá á eBay. Ekki er vitað til þess að þessir gripir fáist hér heima. Áhugasömum er einnig bent á að leita að „lego speakers“ á google.com. asgeir@dv.is Lego-hátaLarar fyrir iPod ná vinsæLdum föstudagur 15. ágúst 200856 Helgarblað DV Tækni umsjón: PáLL sVanssOn palli@dv.is Fékk EdgE-VErðlAunin Halo 3 fékk hin virtu Edge-leikjaverðlaun sem besti leikurinn 2008. Blaðið hefur á fjór- tán ára líftíð sinni einungis gefið níu leikjum tíu í einkunn og þar af fjórum á síðustu tólf mánuðum. Það voru Halo 3, super mario galaxy, gta VI og the Orange Box. Það var því erfitt að spá fyrir um sigurvegara, en Halo 3 skaut þessum gríðarsterku keppi- nautum ref fyrir rass. sími og tónlist í útVarPið Venturi Mini síminn er góð lausn fyrir þá sem vilja losna við blátannartæki úr eyrunum og stafla af geisladiskum í aftursæti bílsins. Síminn getur „streymt“ tónlist í útvarpið og þau símtöl sem fara fram í gegnum símann heyrast í hátölurum bílsins. Síminn tengist beint við sígarettukveikjara bílsins og ræsist þegar bíllinn fer í gang. BLOGG- SÍÐUR SKOTMöRK HAKKARA Beam me uP, scotty! Óravíðáttur himingeimsins reyndust ekki verða síðasti áfangastaður „Scotty the engineer“ eða James doohan sem lék hann í hinum geysivin- sælu Star Trek þáttum. Brenndar leifar doohan og tvöhundruð og sjö annarra einstaklinga voru sendar upp með eldflaug fyrr í mánuðinum og áfangastaðurinn átti að verða sporbaugur jarðar. Tveimur mínútum eftir flugtakið kom hins vegar upp bilun í kerfum flaugarinnar sem varð til þess að geimflaugin komst aldrei á áfangastað. Þetta er þriðja tilraunin sem fer úrskeiðis hjá SpaceX, fyrirtækinu sem stendur á bak við geimskotin. litlir og sætir nógu öflugir fyrir iPodinn til að standa á og halda uppi stuðinu. Ýmsar gerðir Hægt er að fá mismunandi útgáfur hátalarana.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.