Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2008, Qupperneq 62

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2008, Qupperneq 62
Helgarblað DVföstudagur 15. ágúst 200862 Wall-E Það er frábært að sjá hvernig meiripartur myndarinnar líður frábærlega fram án orða. sýnd í flestum kvikmyndahúsum. Dísa frábær frumraun. dísa er komin til að vera. Áður en ég dey Knýr mann til að meta það dýrmætasta sem maður á og það er heilsan. Í þokunni Illsku mannskepnunnar eru engin tak- mörk sett og tekst Philippe að gefa ný- stárlega sýn á hver er í raun vondur. mælir með... n DJ ERPUR OG ATLI Á 800BAR SELFOSSI Það verður sjóðandi heitt kvöld á 800bar á selfossi á föstudagskvöldið. Plötusnúðarn- ir Erpur og atli mæta á svæðið og lofa góðu fjöri. Það kostar þúsund krónur inn á herlegheitin en frítt er inn til miðnættis. fjörið á 800bar hefur verið gríðarlegt í sumar og ætla þeir félagar að halda því áfram og koma fólkinu á dansgólfið. Þegar þeir félagar mæta saman er gleðin alltaf í hámarki. Því mátt þú ekki láta þetta framhjá þér fara. n ALFONS X Á KAFFIBARNUM alfons X mætir í búrið á Kaffibarnum. Það verður sannkölluð Kaffibarsstemning langt fram eftir nóttu. Því ekki að mæta í nýju fötunum og sýna sína bestu takta á dansgólfinu. gott er að mæta í ekki of háum skóm svo hægt sé að dansa frá sér allt vit. n HERA Á GRÆNA HATTINUM söngkonan Hera Hjartardóttir hefur verið á tónleikaferðalagi um landið frá því um miðjan júlí. á föstudeginum mætir hún á græna hattinn á akureyri. Í sumar heldur hún alls þrettán tónleika og hafa þeir gengið vel og fengið góðar viðtökur. tónleikarnir hefjast klukkan níu en húsið opnar klukkan hálf níu. Miðaverð er einungis fimmtán hundruð krónur. n DALTON Á PLAYERS Hljómsveitin dalton hefur verið mjög virkir að halda böll í sumar og hefur stemningin á hverjum stað verið alveg gríðarleg. Þegar strákarnir mæta í Kópavoginn verður engin breyting á. um þessar mundir er hljómsveitin í óða önn að útsetja og taka upp lög sem eiga að fara á breiðskífu sveitarinnar í vor. dansskórnir og fjörið á eftir að koma sér vel á ballinu. n TÓNLISTARHÁTÍÐIN BERJADAGAR tónlistarhátíðin Berjadagar eru haldin í tíunda sinn nú um helgina. á dögunum er flutt aðgengileg kammertónlist auk þess sem gestir úr öðrum listgreinum taka þátt. á föstudags- kvöldinu verða haldnir hátíðartónleikar í tilefni tíu ára afmælis Berjadaga. tónleikarnir verða haldnir í tjarnarborg klukkan hálf níu og mun strengjasveit Berjadaga flytja árstíðir Vivaldis ásamt Elfu rún Kristinsdóttur fiðluleikara. guðmundur Ólafsson, leikari með meiru, les sonnettur árstíðanna. n SEAN DANKE Á DÁTANUM Cargo á dátanum er yfirskriftin á dátanum akureyri á föstudagskvöldið. Cargokvöldið verður í hönnum grétars g. sem er betur þekktur sem sean danke. Þegar mannskapurinn hittist á dátanum undir stjórn seans danke verður stemningin alveg ólýsanleg. Miðaverð er aðeins fimm hundruð krónur eftir klukkan eitt. Það er lítið sem hindrar þig í að fara og taka nokkrar sveiflur. n SÁLIN Í ÞORLÁKSHÖFN sálin treður upp á tónleikum í Versölum Þorlákshöfn. Það má segja að tónleikarnir séu sögulegir því það eru komin tuttugu ár síðan þeir spiluðu þar síðast. Þegar sálin kemur saman má búast við mörgu fólki og verður Ver- salir sameinaðir ráðhús- kaffi og því verður nóg pláss fyrir alla sálarþyrsta til að dansa. aldurstakmark verður átján ár og verður húsið opnað klukkan ellefu. n Á MÓTI SÓL Í HVERAGERÐI Hljómsveitin á móti sól treður upp í íþróttahúsi í Hveragerði á laugardag. Í Hveragerði eru svokallaðir Blómstrandi dagar og má búast við blómstrandi stemningu á ball- inu. Þar sem ballið verður haldið í íþróttahúsinu má búast við smá sveitaballastemningu og eru á móti sól þekktastir fyrir það. á móti sól hefur verið að gera góða hluti í sumar á hinum ýmsum böllum og skemmtunum. dansskórnir og svitabandið gætu komið sér vel á þessu balli. n DJ JOHNNY OG DJ RIKKI G Á SÓLON Þeir félagar dj Johnny og dj rikki g halda uppi fjörinu á laugardags- kvöldið. strákarnir spila nýjustu og heitustu tónlistina í dag í bland við það gamla og góða. dansþyrstir einstaklingar mæta á sólon til að fá sína útrás. Því ekki að mæta með allan hópinn eftir samkvæmið og mynda góða stemmningu og skemmta sér fram undir morgun með þeim dj Johnny og dj rikka g. aldurstakmarkið er tuttugu og tveggja ára og er snyrtilegur klæðnaður áskilinn. n INGÓ OG VEÐURGUÐIRNIR Á KÁNTRýHÁTÍÐ- INNI Á SKAGASTRÖND Ingó ásamt sinni hljómsveit, betur þekktir sem Veðurguðirnir, ætla að leggja leið sína á hina sívinsælu Kántrýhátíð. strákarnir eru best þekktir fyrir að vera alltaf í stuði og Ingó á þeyting um allt sviðið. Hann er einn af þeim söngvurum á Íslandi sem elskar að vera á sviði og nýtur sín í botn um leið og tónlistin fer í gang. á böllum stoppar hann ekki fyrir en bandið er nánast tekið úr sambandi. Ballið byrjar klukkan ellefu og stendur til þrjú. n GEIR ÓLAFSSON Á GRÆNA HATTINUM Hvað er meiri stemning en að skella sér á svingball með geir Ólafssyni. Hann hefur lengi verið í tónlistinni og nær hann jafnt til unga sem og eldra. geir hefur heillað, þá aðallega, kvenþjóðina með sinni fallegri rödd og góðum danstöktum. geir Ólafs þykir einstaklega gaman af því að dansa og halda uppi góðu fjöri á böllum hjá sér. Enginn ætti að láta ball með geir Ólafs láta framhjá sér fara. n DJ MOONSHINE Á 22 á skemmtistaðnum 22 verður sannkölluð hip hop stemning á laugardagskvöldið. Þeir sem hlusta á hip hop ættu ekki að láta plötusnúð- inn Moonshine framhjá sér fara. að dilla sér í takt við góða tónlist er eitthvað sem flestum þykir nú skemmtilegt, en eins og fjöldinn er margur er tónlistarteg- undirnar margar. skelltu þér í góða gírinn og komdu og dillaðu þér við hip hop tónlistina sem plötusnúðurinn Moonshine spilar fyrir þig. FÖSTUDAGUR LAUGARDAGUR HHHHH HHHHH HHHHH HHHHH HHHHH HHHHH Hvaðeraðgerast mælir ekki með... The Mummy: Tomb of the Dragon Emperor allra slakasta Mummy-myndin. Ef þú ert að leita að illa leikinni ævintýramynd sem býður upp á fullt af bardagasen- um, sprengingum, skrímslum, lélegum bröndurum er þessi alveg málið. The Love Guru Hefðbundið Mike Myers-grín með dvergabröndurum og klassísku fyndnu svipum. Kúk- og piss-kímni getur hæg- lega verið frábær en kallar hér ekki fram nema einstaka glott. N ýt t í b íó THE X-FILES: I WANT TO BELIEVE Leikstjóri: Chris Carter Aðahlutverk: david duchovny, gillian anderson, amanda Peet, Billy Connolly, Xzibit. fox Mulder og dana scully snúa aftur eftir langa fjarveru. um er að ræða X-files mynd númer tvö en sú fyrri kom út árið 1998. Myndirnar eru að sjálfsögðu byggðar á samnefndum þáttum sem náðu gríðarlegum vinsældum á tíunda áratugnum. söguþráður myndarinnar hefst þegar hópi kvenna er rænt í Virginíu. Einu vísbend- ingarnar af hvarfi þeirra eru ógeðfelldar líkamsleifar við hraðbrautina. Málið er það undarlegt að gömlu brýnin Mulder og scully eru kölluð til. IMDb: 6,4/10 Rottentomatoes: 32/100% Metacritic: 47/100 GET SMART Leikstjóri: Peter segal Aðahlutverk: steve Carell, anne Hathaway, dwayne Johnson, alan arkin, terence stamp, terry Crews Maxwell smart hefur alltaf dreymt um að vera njósnari. Hann er hins vegar að verða of gamall og það sem verra er, hann er alveg vonlaus. Þegar ráðist er á höfuðstöðvar bandaríska njósnaráðsins og upplýsingum um alla njósnara stolið rætist loks draumur Maxwell. Vopnaður fáeinum njósnavopnum reynir Maxwell að bjarga heiminum á eins vandræðaleg- an og aulalegan hátt og hugsast getur. IMDb: 7,3/10 Rottentomatoes: 53/100% Metacritic: 54/100
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.