Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2008, Side 67

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2008, Side 67
föstudagur 15. ágúst 2008DV Sviðsljós 67 Þrátt fyrir fréttir af því að Jennifer Aniston væri loksins búin að finna ástina með John Mayer og þau hefðu ákveðið að giftast og eignast börn hef- ur hann nú hætt með henni. Jennifer hefur ekki verið mjög heppin í ástum en parið hafði verið í sundur í einhvern tíma áður en tilkynningin um sambandsslitin barst til fjölmiðla vestanhafs fyrr í þessari viku. Ástarlífið hjá Jennifer hefur gengið á afturfótunum síðan hún skildi við Brad Pitt fyr- ir fjórum árum. Sambandsslitin við Mayer koma talsvert á óvart því allir héldu að þau væru að und- irbúa brúðkaup. Náinn vinur þeirra segir að mikil spenna hafi einkennt sambandið í einhvern tíma og þess vegna ákváðu þau upphaflega að taka hlé frá hvort öðru en nú er ljóst að þau verða ekki meira saman. John Mayer ákvað að enda sambandið því hann var ekki tilbúinn til að binda sig eins og Jennifer vildi. Jennifer vildi ekki giftast og eignast barn á þessu ári en hún vildi skipuleggja það fram í tímann. Hún vildi líka að hann yrði minna á tón- leikaferðalögum í framtíðinni þegar þau myndu eignast börn. Fyrst um sinn var Jennifer reið vegna ákvörðunar Mayers en nú er hún í ástarsorg. Glöð í sundi Jennifer og John þegar allt lék í lyndi John Mayer sagði Jennifer upp því hann vildi ekki binda sig strax, giftast og eignast börn. Ein og yfirgefin Þessi mynd náðist af Jennifer í fyrradag þar sem hún var ein á ferð og greinilega ekki í góðu skapi. Jennifer ein á ný TónlisTarmaðurinn John MayEr sagði Friends-sTjörnunni upp: Fyrr í mánuðinum komst Jessica Simpson í fjölmiðla þegar hún sagði í viðtali við tímaritið Elle að hún hefði verið misnotuð þegar hún var yngri, eða „abused“ eins og hún orð- aði það. Söngkonan vildi ekki tjá sig nánar um málið. Nú hefur ónefndur heimildarmaður stigið fram og sagt að misnotkunin hafi verið einelti. „Margir héldu að Jessica hefði verið misnotuð af gömlum kærasta en sannleikurinn er að hún varð fyr- ir einelti þegar hún var táningur í J.J. Pearce framhaldsskólanum í Texas,“ segir heimildarmaðurinn í tímarit- inu Enquirer. Ástæðuna segir heim- ildarmaðurinn vera þá að Jessica var líkamlega bráðþroska. „Jessi- ca var vel vaxin og falleg á þessum aldri og allir strákarnir í skólanum voru á eftir henni. Þetta þýddi að allar stelpurnar í skólanum hötuðu hana,“ en hópur stúlkna gerði hvað hann gat til að gera henni lífið leitt. Til dæmis að dreifa þeim sögum um allt að Jessica væri samkynhneigð en þetta fékk mikið á hana samkvæmt tímaritinu. asgeir@dv.is Lögð í eineLti Jessica Simpson Var strítt mikið þegar hún var yngri. Of gamaLL ÓLympíu- Leikar í kynLífi Britney opnar sig Britney Spears opnar sig í fyrsta skiptið í tvö ár í viðtali við tímarit- ið OK! sem nýlega kom út í Banda- ríkjunum. Söngkonan, sem er tut- tugu og sex ára gömul, talar um lífið undir harðri stjórn föður síns, frænkuhlutverkið og hvernig hún ver tíma með sonum sínum tveim- ur. Britney sem hefur verið að ganga í gegnum ljótan skilnað og mikla erfiðleika undanfarin tvö ár von- ar að synir hennar velji sér ekki að vinna við skemmtanaiðnaðinn eins og hún sjálf. „Ég elska þá skilyrðislaust og vil að þeir eigi heilbrigða og eðlilega barnæsku,“ segir söngkonan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.