Lögmannablaðið - 01.12.2011, Blaðsíða 19
lögmaNNaBlaðið tBl 04/11 19
lMfÍ 100 ÁrA
25 ára afmæli málflutnings
mannafélags íslands
Í tilefni 25 ára afmælis félagsins var
haldið hóf í Oddfellowhúsinu og
ákveðið að rita sögu félagsins þar sem
fram kæmi stutt æviágrip 56 félags-
manna. Theodór Líndal hrm. var
formaður félagsins og skrifaði söguna
en í stjórn voru auk hans þeir einar b.
guðmundsson hrm., ritari og gunnar
Þorsteinsson hrm., gjaldkeri. Í varastjórn
voru eggert Claessen hrm. og Tómas
Jónsson borgarritari.17
Heiti félagsins í upphafi var málflutn-
ingsmannafélag Íslands og vísaði til þess
að um væri að ræða félag manna sem
stunduðu málflutning. ekki ríkti þó
einhugur um nafnið í byrjun og töldu
sumir fundarmenn á stofnfundinum að
félagið ætti frekar að heita lögmannafélag.
Frá og með ársbyrjun 1945 var nafni
félagsins breytt í Lögmannafélag Íslands
og var það gert í kjölfar lagasetningar
um málflytjendur nr. 61/1942 þar sem
ávallt var talað um málflytjendur sem
lögmenn.19
í Þá gömlu gÓðu daga
– at fatte sig kort
Í gamla og góða réttarfarinu var skrifuð
stefna og greinargerð. Þorvaldur
Þórarinsson hæstaréttarlögmaður sagði
að ef maður gæti ekki komið því að sem
þyrfti á tveimur síðum þá hefði maður
bara ekkert að segja. Í máli einu norður
á Sauðárkróki skrifaði Þorvaldur:
„Stefndu eru málavextir kunnir.“ Svo
stóð í greinargerð: „um málavexti vísast
í stefnu“ Það stóð ekkert í Jóhanni
Salberg sýslumanni að dæma efnislega
í málinu!
ekkert ÞjÓðfélag má áN Þeirra vera
„Góð málflutningsmanna stétt er þýðingarmikil í hverju þjóðfélagi, og veltur jafnvel meira á því en í öðrum stéttum, að valinn
maður sé í hverju rúmi. og þótt margt hafi misjafnt verið um málflutningsmenn sagt, bæði fyrr og síðar, þá hefir reyndin orðið
sú, að ekkert þjóðfélag má án þeirra vera. Þeir hafa sannað tilverurétt sinn, þrátt fyrir alla andúð - réttmæta og óréttmæta -, sem
þeim hefir verið sýnd í flestum löndum og á öllum öldum.“
theodór Líndal hrm. og formaður Málflutningsmannafélags Íslands í 25 ára afmælisriti.11
sumarið 1975 var fundur norrænu lögmanna félaganna haldinn í reykjavík.
lög málflutningsmannafélagsins voru gefin
út í litlu broti árið 1942 og aftur þegar nafni
félagsins var breytt árið 1945. Þá hétu þau
ekki lengur lög heldur samþykktir.
málflutningsmannafélag
breytist í lögmannafélag
Fram til ársins 1956 voru samskipti
félagsins við erlend systurfélög lítil sem
engin en það ár hóf LmFÍ þátttöku í
samtökum norrænna lögmanna. Síðan
þá hafa fulltrúar félagsins sótt fundi
norrænu félaganna og hefur samstarfið
verið afar gagnlegt. Árið 1990 gerðist
LmFÍ aðili að iba, international bar
association, og árið 1994 að CCbe,
Conseil des barreaux de la Communauté
européenne.18
erlend samskipti