Lögmannablaðið - 01.12.2011, Blaðsíða 62
62 lögmaNNaBlaðið tBl 04/11
lMfÍ 100 ÁrA
Brot úr sögu félags
vorþingin á Þingvöllum voru ávallt tilhlökkunarefni enda var eins og félögin hefðu samið
við almættið um veðrið. Það var sama þótt dagana á undan væri hryssingsrigning, rok
og kuldi, þegar málþingsdagur rann upp, brast á með blíðu.
Lagadagurinn var haldinn í fyrsta skipti
vorið 2008 af LmFÍ, LÍ og DÍ. Hugmyndin
var fengin lánuð hjá systurfélögum í
Finnlandi en þar hefur um árabil verið
haldinn sérstakur ráðstefnudagur.
Dagurinn byrjar með hádegisverði og
sam eiginlegri málstofu en að henni
lokinni eru minni málstofur sem
þátttakendur verða að velja úr. Lagadegi
lýkur svo með hátíðar kvöldverði og
skemmtun fram á nótt. Á fyrsta laga-
daginn mættu 220 manns en síðan hefur
gestum farið fjölgandi og hafa verið
flestir 440.62
málflutningsmannafélagið fór snemma
að sinna fræðslumálum en á árunum
1930 til 1934 voru haldnir 15 fyrirlestrar
á vegum félagsins. Fyrstur til að halda
fræðsluerindi var dr. björn Þórðarson
lögmaður sem hélt fyrirlestur um
alþjóðadómstól Þjóða bandalagsins. Um
miðjan fjórða áratuginn fækkaði
fræðslufundum og undir lok áratugarins
var flutningur fræðilegra erinda að heita
má úr sögunni. Þá fór að gæta þess
viðhorfs að félaginu bæri að leggja fyrst
og fremst áherslu á sérstök hagmunamál
stéttarinnar og þegar Lögfræðingafélag
Íslands var stofnað árið 1958 var því
eftirlátið að standa fyrir fræðafundum.
Árið 1981 hófu LmFÍ og Dómarafélag
Íslands að halda málþing á Þingvöllum
í byrjun júní ár hvert og var því haldið
áfram til ársins 2008 er Lagadagurinn
var haldinn í fyrsta skipti ásamt
Lögfræðingafélagi Íslands.63
fræðslufundir
með allaN ÞorstaNN
Páll S. Pálsson hrl. var eitt sinn að aka
niður snjóþunga Vesturgötuna og sá þá
Árna Halldórsson hdl. skjótast inn í
Naustið. Árni hafði rekið lögmannsstofu
í Reykjavík en var á þessum tíma fluttur
til egilsstaða þar sem hann rak stofu.
Honum þótti sopinn góður, eins og fleiri
lögmönnum, en Páll S. orti af þessu
tilefni:
Þegar að lostinn laust´ann
lengst til Víkur braust´ann
með allan þorstann austan
inn í Naustið skaust´ann.