Lögmannablaðið - 01.12.2011, Blaðsíða 46

Lögmannablaðið - 01.12.2011, Blaðsíða 46
46 lögmaNNaBlaðið tBl 04/11 lMfÍ 100 ÁrA Beðið eftir flugi eitt sinn var Örn Clausen í málflutningi í Stykkishólmi hjá Jóni „rakara“ Magnússyni sýslumanni. Jón hafði fengið viðurnefnið í lagadeildinni en þar átti hann alnafna sem var ekki eins skemmtinn. Að loknum málflutningi fengu þeir sér aðeins í glas á meðan Örn beið eftir flugi til Reykjavíkur. Jón sofnaði eins og hann átti vanda til, en Örn settist þá við ritvél hans á meðan hann drap tímann og samdi dóminn að öllu leyti öðru en því að hann skildi eftir eyðu fyrir málsvarnarlaunin. dögum seinna fékk Örn sendan dóminn í pósti og var þá búið að færa inn (hæfileg) málsvarnarlaun. Brot úr sögu félags konur í lögmennsku Lengi vel voru fáar konur félagsmenn í Lögmannafélagi Íslands. rannveig Tryggvadóttir var fyrsta konan sem öðlaðist rétt til málflutnings fyrir héraðsdómi árið 1952 en hún rak skrifstofu sína til ársins 1974. rannveig öðlaðist réttindi til málflutnings fyrir Hæstarétti árið 1959 og tók virkan þátt í störfum Lögmannafélagsins. önnur konan í félaginu var guðrún erlendsdóttir en hún hóf lögmennsku árið 1961. ekki er hægt að segja að konur hafi flykkst í lögmannastéttina eftir þetta því árið 1990 voru þær einungis 8% félagsmanna LmFÍ, eða 27 af 340 félagsmönnum. af þeim voru 15 sjálfstætt starfandi, sex fulltrúar og sex starfsmenn stofnana og fyrirtækja.48 Þakka Þér fYrir væNa míN! guðrún erlendsdóttir í munnlegu prófi við lagadeild Háskóla íslands. f.v. guðrún, theodór líndal, ármann snævarr og sveinbjörn jónsson. Guðrún erlendsdóttir var önnur konan sem stundaði lögmennsku, á eftir Rannveigu Þorsteinsdóttur hrl., en hún hlaut málflutningsréttindi fyrir héraðs- dómi árið 1961. Væntanlegir lögmenn þurftu þá að taka fjögur prófmál til að öðlast héraðsdómslögmannsréttindi og í einu málinu, sem Guðrún tók að sér, var maður ákærður fyrir nauðgun. Málið reyndist henni erfitt þar sem kennaranum í lagadeildinni, sem átti að fara yfir 194. gr. almennra hegningarlaga, hafði ekki þótt tilhlýðilegt að skilgreina fullframningu slíks brots í viðurvist konu. Guðrún var iðulega ávörpuð þannig af körlum sem komu á lögmannsstofuna sem hún rak ásamt erni Clausen, eiginmanni sínum: „Þakka þér fyrir væna mín, en má ég nú tala við lögmanninn?“ Hún var enn fremur s tundum t i t luð sem „her ra hæstaréttarlögmaður“ í málflutningi í Hæstarétti.49 ef fjölgun kvenna í lögmannastétt verður með sama hraða og undanfarin 20 ár munu konur verða jafn margar og karlar árið 2036.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.