Lögmannablaðið - 01.12.2011, Blaðsíða 15
lögmaNNaBlaðið tBl 04/11 15
UMfJöllUn
,,16. febrúar 2009. borgara fundur
í Háskólabíói. Fundarstjóri spyr mig:
ragna ætlar þú að gera eignir
auðmanna upptækar? einfalt svar, já
eða nei. Já eða nei! Ég segi að það
sé ekki til einfalt svar og nefni að
það verði að gæta mann réttinda
þeirra sem verði fyrir eignaupptöku.
baulað úr salnum. eftir fundinn koma
til mín nokkrir gestir úr sal og einn
þeirra segir: Hvað með mín mann-
réttindi? Já, hvað með mannréttindi
allra þeirra sem urðu fyrir tjóni í
banka hruninu?“
Þessi spurning er áleitin og ein þeirra
sem mjög brennur á einstaklingum í
réttarríkinu. Spurt er hvert er réttlætið,
af hverju sjáum við réttlætinu ekki
framfylgt. Síðar í erindi sínu segir ragna:
,,Löggjafinn setur lögin, dóm endur
dæma eftir lögunum og fram-
kvæmdavaldið er í störfum sínum
bundið af lögum. margir telja ráðherra
vera valdameiri en þeir í raun eru – eða
ættu að vera. að ráðherrar geti í einni
svipan ákveðið að drífa í hlutunum
burtséð frá lögunum – lögin séu bara
óþarfa formalismi sem ryðja þurfi úr
vegi ... Það er mín reynsla, að útskýringar
um okkar réttar skipan og aðra grund-
vallarþætti í íslenskum rétti, duga oft til.
Þegar til kastanna kemur er fólk yfirhöfuð
sammála því að hér skuli gilda jafnræði
meðal borgaranna og að hér skuli mann-
réttindi virt. að mann réttindi snúi að
ákveðnum grund vallar réttindum sem
við viljum ekki að brotin verði og þá
ekki á neinum ...“
Það er á tímum áfalla sem á reglur
réttarríkisins reynir. Það er þá sem reynir
á okkur öll að muna eftir ástæðum þeirra
reglna sem við settum okkur á friðar-
tímum. Hverjir eru betur til þess fallnir
að útskýra það en lögmenn? að þeim
snýr því að stuðla að þeirri orðræðu
sem vikið var að í erindi fyrrum dóms-
málaráðherra og að hún fari fram á
réttum forsendum. Þeirra hlutverk er
jafnframt að gagnrýna það sem miður
hefur farið, og að benda á hvort og
hvaða reglum þurfi að breyta. Þeim á
að vera treystandi til þess að stýra leit
að betra fyrirkomulagi, án þess að láta
stjórnast af reiði eða tilfinningum.
Lærdómur sem draga má af fram-
söguerindum málþingsins er því sá að
lögmenn hafa ríku hlutverki að gegna
en þeim er treyst fyrir vandasömu
verkefni. Því verða lögmenn að gæta
þess sérstaklega að viðhalda hlutleysi
sínu þegar friður ríkir í samfélagi, svo
þeir geti gætt þessa mikilvæga hlutverks
síns í réttarríkinu á viðsjárverðum tímum.