Lögmannablaðið - 01.12.2011, Blaðsíða 61
lögmaNNaBlaðið tBl 04/11 61
ViðtAl
verið settur sýslumaður í níu ár. Ég
gagnrýndi þennan gerning opinberlega
með gildum rökum að mér fannst og
sagði upp starfi. af þessu varð mikið
pólitískt uppistand, deilur á alþingi og
í blöðum. Í kjölfarið stofnaði ég
lögmannsstofu ásamt birni og tveimur
öðrum lögfræðingum sem höfðu starfað
hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga,
þeim Skúla J. Pálmasyni og Sveini Hauki
Valdimarssyni en Sambandið var okkar
stærsti viðskiptavinur.“
Hvernig líkaði þér lögmennskan?
„að mörgu leyti vel enda þekkti ég alla
lögmenn í byrjun frá fyrri störfum
mínum. margir voru skemmtilegir
karakterar en ég held að ekki hafi margir
á þessum tíma auðgast af lögmannsstarfi.
Samstarfsmenn mínir fyrr og síðar hafa
verið úrvalsmenn og það skiptir ekki
litlu máli. björn hætti á stofunni þegar
hann varð hæstaréttardómari árið 1973
en árið 1988 kom Kristinn Hallgrímsson
og við fórum að kalla stofuna Lögvísi.
Skúli hætti þegar hann varð
héraðsdómari 1992 og Sveinn Haukur
hætti störfum 1998. Sjálfur hætti ég 2003
en skömmu áður höfðum við tengst
ungum og vöskum mönnum, þeim Óðni
elíssyni og Óskari norðmann undir
nafninu Fulltingi.“
Hvað breyttist á þeim áratugum sem þú
varst lögmaður?
„mesta breytingin varð 1. júní 1992 með
aðskilnaði dóms- og framkvæmda valds
en þá komu ný einkamálalög o.fl. Fram
að þeim tíma var dómari meira ráðandi,
bæði í einkamálum og opinberum
málum. Í dag eru lögmenn mikið farnir
að flytja mál á opinberum vettvangi,
bæði í sjónvarpi og blöðum, og það er
ekki gott. Svo hefur tölvutæknin hafið
innreið sína og það hefur gjörbylt
starfsumhverfinu. mér hefur gengið
þokkalega að tileinka mér hana.“
Sinntir þú einhverjum sérstökum
málaflokkum umfram aðra?
„Ég hafði nokkuð breiðan grunn, bæði
í einkamálum og opinberum málum
þegar ég hóf lögmannsstörf en
sjóréttarmál höfðuðu alltaf nokkuð sterkt
til mín og komu þau gjarnan í minn
hlut. Deildum Sambandsins hafði verið
breytt í sex hlutafélög á árunum 1990-
1991 en árið 1994 neyddist félagið til
að leita nauðasamninga. Þeim lauk í
október sama ár og greiðslum samkvæmt
þeim lauk á árinu 1995. miðað við það
sem seinna gerðist var það sem út af
stóð hreinir smámunir. Samband
íslenskra samvinnufélaga er nú með
heimilisfang á akureyri.“
Jón sat í stjórn LMFÍ árin 19751977 og
var varaformaður síðara árið. Auk þess
sat hann í stjórn námssjóðs árin 1970
1974 og í laganefnd 19791982 en árið
2002 var hann gerður að heiðurs félaga.
Varðst þú strax virkur í lögmannafélaginu
er þú gerðist lögmaður?
„maður mætti alltaf á aðalfundi að
minnsta kosti en þar voru stundum átök.
Þá höfðu menn töluverðan metnað til
þess að verða formenn í félaginu og
skiptust upp í fylkingar.“
Þú varst í stjórn LMFÍ 19751977, var
mikil starfsemi hjá félaginu á þeim tíma?
„Það voru fundir reglulega en það var
ekki íþyngjandi starf að vera í stjórn.
Það var hins vegar talsverð vinna að
vera í laganefnd en hún gekk snurðulaust
fyrir sig.“
E.I.
stjórn lmfí 19761977 f.v. Brynjólfur kjartansson meðstjórnandi, jón finnsson
varaformaður, guðjón steingrímsson formaður Hjalti steinþórsson ritari og gylfi thorlacius
gjaldkeri.