Lögmannablaðið - 01.12.2011, Blaðsíða 40
40 lögmaNNaBlaðið tBl 04/11
lMfÍ 100 ÁrA
Brot úr sögu félags
sigurvegarar á fyrsta fótboltamóti lmfí
utanhúss var lið jóns steinars gunn
laugssonar, reynsla og léttleiki. efri röð f.v.
Bjarki diego, jón ármann guðjónsson,
jóhannes karl sveinsson, jón steinar
gunnlaugsson og ragnar Baldursson.
Neðri röð f.v.: ásgeir ragnarsson, jónas
Þór guðmundsson og jóhannes Bjarni
Björnsson.
knattspyrnuiðkan lögmanna:
Nú gengr maðr til leiks ...
Vorið 1995 var í fyrsta skipti haldið
knattspyrnumót á vegum LmFÍ. Fyrir
því stóðu ungir og upprennandi lög-
menn en þeir fengu Þórunni guðmunds-
dóttur hrl., formann félagsins, til að vera
verndara mótsins. Þar sem kappsamir
lögmenn voru vanari að takast á í
réttarsalnum en íþróttasalnum var
ákveðið að útbúa reglur fyrir mótin. Í
þeim var til dæmis bannað að gefa þung
högg undir kjálkastað og yngri og léttari
leikmönnum bar að sýna eldri og þyngri
leikmönnum tilhlýðilega virðingu.
Ákvæði 13. kap. Jónsbókar um váðaverk
giltu einnig á mótunum en þar segir:
„nú gengr maðr til leiks, fangs eða
skinndráttar at vilja sínum, þá ábyrgist
hann sik sjálfr at öllu, þó at hann fái
mein eða skaða af ...“.
Jafnframt var stofnuð kærunefnd sem
kennd var við Þórunni og martein
másson sem var framkvæmdastjóri
félagsins á þessum tíma. Kærunefnd
Teina og Tótu starfar enn þann dag í
dag en hún hefur aðeins einu sinni
komið saman, á haustmóti félagsins
1997. Fram að því höfðu liðin reynsla
og léttleiki og grínarafélagið skipst á
að vinna inni- og útimótin sem haldin
höfðu verið en mikill rígur var á milli
liðanna. Lið reynslu og léttleika var leitt
af Jóni Steinari gunnlaugssyni en Jón
Steinar (reynslan) safnaði að sér 25-27
ára gömlum hlaupagikkjum (léttleikinn)
og stóð svo alla leikina á markalínunni
og öskraði: „Hingað með boltann“.
gikkirnir voru út um allan völl að sækja
boltann, gáfu hann svo á Jón Steinar
sem þrusaði honum í markið. Þessi
leikaðferð gafst mjög vel og Jón Steinar
var með markahæstu mönnum. Á
haustmótinu 1997 sigraði lið grínara-
félagsins en eftir mótið uppgötvaði Jón
Steinar að Steinar Þór guðgeirsson
landsliðsmaður í fótbolta var í því.
Steinar Þór hafði lokið laganámi en átti
að útskrifast formlega í lok október. Jón
Steinar taldi að þar með væri Steinar
Þór ekki löglegur leikmaður og krafðist
þess að titillinn væri hirtur af vinnings-
liðinu og afhentur reynslu og léttleika
sem var í öðru sæti. Kærunefndin tók
kæruna ekki til greina og lét úrslitin
standa rökstuðningslaust, enda telur
kærunefndin að hún megi taka
geðþóttaákvarðanir. Þess má geta að
knattspyrnumót LmFÍ hafa verið haldin
árlega síðan og stundum tvisvar á ári.29
Það er rétt sem fram kemur að lið mitt
og félaga minna reynsla og léttleiki hafði
verið afar sigursælt í inni- og útimótum
félagsins alveg frá því að knattspyrnumótin
hófust. Við unnum þau flest. Þeir sem
helst öttu við okkur kappi nefndu sig
grínarafélagið. Þótt þeir þyrftu yfirleitt að
láta í minni pokann í boltanum voru þeir
samt betri í fótbolta en gríni. ein af
fjölþættum ástæðunum fyrir sigurgöngu
okkar liðs var sá eiginleiki fremsta fram-
herjans í liðinu að skora mörk. Það eru
nefnilega þau sem telja í boltanum.
Húmoristarnir réðu illa við framherjann
og skoraði hann grimmt. Kannski áttu
þessir kappar erfitt með að sætta sig við
þetta því framherjinn var nokkru eldri en
þeir og farinn að auka við sig á vigt inni.
Var þá stundum gripið til þess ráðs að
verjast með munnlegum mál flutningi eftirá
eins og lögmanna er siður. Þá var til dæmis
sagt að framherjinn stæði við markstöng
hjá andstæðingunum og sæi bara um að
ýta boltanum yfir línuna þegar félagar
hans hefðu komið boltanum til hans.
Skrítið að ráða ekkert við svona leikmann!
Um knattspyrnumót lögmanna giltu
reglur eins og um önnur mót. Þar var
meðal annars tekið fram að þátttökurétt
í mótinu hefðu allir lögfræðingar. Þetta
haust lá grínurum svo mikið á að vinna
rL að þeir munstruðu upp úrvalsdeildar-
leikmann í liðið og sigruðu mótið. Í ljós
kom að þessi leikmaður var ekki orðinn
lögfræðingur og því ekki gjaldgengur til
þátttöku. Það lýsir ákveðinni örvæntingu
að geta ekki leikið leikinn eftir reglunum,
eða hvað? Ég vakti máls á þessu við þá
sem fyrir þessu stóðu. aldrei gerði ég
samt kröfu um að hinir fyndnu yrðu sviptir
sigurlaunum. Til þess voru þeir of fyndnir.
greinargerð frá jóni steinari gunnlaugssyni