Lögmannablaðið - 01.12.2011, Blaðsíða 37
lögmaNNaBlaðið tBl 04/11 37
ViðtAl
lögmenn eru að blanda sér í umræðuna
um dómsmál. best er þegar lögmenn
láta frá sér stuttar greinar um einstök
mál. Tjáning í formi viðtala skilar því
miður sjaldnast árangri. Krafan er um
stutt og helst litrík svör og þá gerist það
oftar en ekki að merkingin brenglast.
Sú þróun sem ég hef mestar áhyggjur
af í réttarkerfinu er þessi tilhneiging að
gera málin svo stór að enginn sem að
þeim kemur ræður við að fara í gegnum
þau. gögn í mörgum málum eru mörg
þúsund blaðsíður og það er engin leið
til þess fyrir dómara og málflytjendur
að lesa af neinu viti öll gögnin hvað þá
að reifa þýðingu þeirra í málflutningi
fyrir dómi. Ég fullyrði að tugir mála fara
í gegnum dómskerfið án þess að
dómarar eða sakflytjendur hafi náð að
lesa öll gögn málsins.Við verðum að
bregðast við þessari öfugþróun með
einhverjum hætti.
Þórunn: Dæmi um þetta er rannsókn
hjá sérstökum saksóknara. Þar er allt
tekið upp á band. Ég var þar með
skjólstæðingi í þrjá daga í röð um daginn
og mér varð hugsað til þess hversu langt
þetta yrði þegar búið væri að vélrita
málið upp. Svo þarf að yfirheyra alla
aftur fyrir dómi - ef málin fara á annað
borð fyrir dóm. magn málsskjala verður
ógnvænlegt.
fjölgun í lögmannastétt
Í lokin, fjöldi lögmanna hefur vaxið
gríðarlega og nú eru 950 félagsmenn í
LMFÍ. Teljið þið að það sé rými fyrir
slíkan fjölda lögmanna?
Jón Steinar: Lögmannsstörfin í dag
eru miklu meira en að flytja mál fyrir
dómstólum. Sennilega er málflutningur
hlutfallslega lítill hluti af heildarstörfum
lögmanna.
Gestur: Ég efast um að þörf sé fyrir
Heiðursfélagar lmfí
ár Nafn
1951 Sveinn björnsson, forseti Íslands (1881-1952)
1951 Lárus Fjeldsted, lögmaður (1879-1964)
1961 Lárus Jóhannesson hæstaréttardómari (1898-1977)
1971 einar baldvin guðmundsson (1903-1974)
1971 Sveinbjörn Jónsson (1894-1979)
1971 Theodór Líndal (1898-1975)
1979 rannveig Þorsteinsdóttir (1904-1987)
1986 Ágúst Fjeldsted (1916-1992)
1986 egill Sigurgeirsson (1910-1996)
1996 guðmundur Pétursson (1917-2009)
1996 Sveinn Snorrason (f. 1925)
2000 guðmundur ingvi Sigurðsson (1922-2011)
2002 Árni guðjónsson, hrl. (1928-2003)
2002 Jón Finnsson, hrl. (f. 1926)
2011 gestur Jónsson, hrl. (f. 1950)
2011 Hákon Árnason, hrl. (f. 1939)
2011 Jón Steinar gunnlaugsson, hæstaréttardómari (f.1947)
2011 ragnar aðalsteinsson, hrl. (f. 1935)
2011 Þórunn guðmundsdóttir, hrl. (f. 1957)
1000 manns til þess að sinna hefð-
bundnum lögmannsstörfum. Ég held
þessi mikla fjölgun sé ekki af hinu góða.
Sjálfsagt munu margir með lögmanns-
réttindi verða að leita á önnur mið.
Þórunn: mér finnst algengara en
það var að menn séu að stofna
lögmannsstofu beint frá prófborðinu.
Hákon: Ég tel að markaðurinn sé
þegar orðinn mettaður og rúmlega það,
hvað varðar fjölda praktíserandi
lögmanna og að það stefni í atvinnuleysi
með þessu áframhaldi, ef ekki er þegar
farið að bera á því. Þá blasir við að
fjórar lagadeildir, sem hver um sig
útskrifar lögfræðinga í tugatali á hverju
ári, er allt of mikið og fyrirsjáanlegt að
ekki muni nema hluti þeirra geta fengið
fengið störf á sviði lögfræðinnar.
Ragnar: Lögmenn hafa átt nokkuð
annríkt undanfarin ár einkum vegna
áfalla í efnahagslífinu og þeim hefur
fjölgað allnokkuð. Fjölgunin á sér einnig
rót í fjölgun lagaskóla og þar af leiðandi
fjölgun lögfræðinga, sem ekki fá allir
störf við hæfi. Þegar rofa tekur og
eðlilegt ástand kemst á er líklegt að
fækka muni í hópi lögmanna.