Lögmannablaðið - 01.12.2011, Blaðsíða 39
lögmaNNaBlaðið tBl 04/11 39
lMfÍ 100 ÁrA
stéttarblað starfandi lögmanna með
„juridiskt“ léttmeti
afhending Tímarits lögfræðinga til
Lögfræðingafélagsins mætti nokkurri
andstöðu innan LmFÍ og því var félags-
mönnum Lögmannafélagsins tryggður
forgangsaðgangur að plássi fyrir ritgerðir
og stjórn félagins lofaði að styrkja ritið
á allan hátt. Jafnframt var ákveðið að
félagið færi í blaðaútgáfu og var ritnefnd
kjörin á aðalfundi 1960. Í henni voru
benedikt Sigurjónsson hrl., Sigurgeir
Sigurjónsson hrl. og Þorvaldur ari
arason hrl. og í febrúar 1963 hóf bLað
Lögmanna göngu sína. Var því ætlað
að koma út fjórum sinnum á ári en í
inngangi, sem hét því skemmtilega nafni
„að heiman riðið“, segir að því væri
fyrst og fremst ætlað að vera stéttarblað
starfandi lögmanna og málsvari þeirra.
Í því ættu að birtast stuttar greinar
lögfræðilegs efnis, ritdómar um
lögfræðirit, skrif um dóma og
lagasetningar: „einnig mun það flytja
juridiskt léttmeti, gamansögur um
lögfræði og lögfræðinga. ... mun reynt
að raða efni þess það myndrænt niður,
að lestur þess þreyti ekki lesandann,
jafnvel þótt hann hafi átt erilsaman
starfsdag.“ einungis fjögur hefti komu
út af blaði lögmanna á tveimur árum.
lögmannablaðið hefur göngu sína
Í kringum 1970 var gefið út Félagsblað
LmFÍ sem var fjölritað fréttabréf og frá
mÓtframBoðið sem misHePPNaðist
Fyrir aðalfund árið 1977 höfðu nokkrir félagar ákveðið í
prakkaraskap að koma með framboð til formanns á móti Guðjóni
Steingrímssyni. Benedikt Blöndal var fundarstjóri og vissi af
þessum fyrirætlunum og að það væri í verkahring Sigurðar
Georgssonar að stinga upp á manninum. Þegar verið var að
ræða skýrslu stjórnar brá Sigurður sér á barinn til að fá sér í glas
og þegar Benedikt sá hann hverfa úr salnum sagði hann umræðum
um skýrslu stjórnar lokið, tilkynnti stjórnarkjör, óskaði eftir
mótframboðum og lét kjósa. Þegar Sigurður kom aftur af barnum
var stjórnarkjörið búið.28
golfmót lmfí eru ávallt opin fyrir aðra lögfræðinga. á myndinni eru þátttakendur
minningarmóts um guðmund markússon og Ólaf axles 2005.
golfmót
Fyrsta golfmót LmFÍ var haldið sumarið 1984 og hefur golfíþróttin allar götur
síðan notið mikillar hylli hjá félagsmönnum LmFÍ. auk þess að halda meistaramót
árlega eru nú haldin minningarmót um lögmennina guðmund markússon og
Ólaf axelsson auk golfkeppna við þrjár aðrar starfsstéttir; tannlækna, lækna og
endurskoðendur.27
19761977 f.v. Brynjólfur kjartansson meðstjórnandi, jón
finnsson varaformaður, guðjón steingrímsson formaður, Hjalti
steinþórsson ritari og gylfi thorlacius gjaldkeri.
1981 hóf Fréttabréf LmFÍ göngu sína.
Árið 1995 kom fyrsta hefti út af
Lögmannablaðinu en því var ætlað að
vera vettvangur stjórnar Lögmanna-
félagsins sem og lögmanna til að fjalla
um störf sín, réttindi og skyldur. Í fyrstu
ritnefnd voru Ástráður Haraldsson hrl.,
Jón g. briem hrl. og Sif Konráðsdóttir
hrl. „með stækkun félagsins undanfarin
ár, auknum umsvifum og sífellt
fjölbreyttari verkefnum er ekki óeðlilegt
að félagið eignist veglegan vettvang til
umfjöllunar um innri málefni þess.“ segir
marteinn másson fyrsti ritstjóri blaðsins
í inngangi. Lögmannablaðið hefur síðan
verið gefið út á vegum félagsins.25