Gripla - 20.12.2012, Page 256
GRIPLA254
í öllum dæmunum notar sá sem þarna tjáir sig, orðin vér og oss.18
sérkennilegt er að sjá snorra taka nánast óbreytt upp viðhorf höfundar
Morkinskinnu og gera þau að sínum, enda væru þessi orð þá tæplega
marktæk um skoðanir snorra. Hins vegar verða þessar þrjár klausur full -
komlega eðlilegar ef sami höfundur er að þeim öllum, þ.e. snorri sturlu-
son.19
til þess að hnykkja enn betur á þessu má bæta við einu dæmi. í
Morkinskinnu (íf 23, 128) er vitnað í Þorgils, vitran mann, um atburði
frá dögum Harlds harðráða. í Fagurskinnu (íf 29, 245) er vísað í Þorgils
snorrason um sama efni, og sams konar heimildartilvísun er í Heimskringlu
(íf 28, 101). Þarna mun átt við Þorgils snorrason (d. 1201), prest á skarði
á skarðsströnd. útgefendur Morkinskinnu segja neðanmáls:
ef um Þorgils snorrason er að ræða má vel vera að hann hafi sagt
Morkinskinnuhöfundi þessa sögu fyrir 1201, en geta má þess að Fsk.
og Hkr. vitna einnig beint í Þorgils, eins og hann sé heimildarmaður
höfundanna milliliðalaust. (íf 23, 128).
Þetta verður vel skiljanlegt ef höfundur þessara þriggja rita er sá sami.
Bæði Diana Whaley (Whaley 1991, 65) og Andersson og Gade
(Andersson et al. 2000, 14‒15) benda á að Snorri minnist hvergi á aðal-
heimild sína, Morkinskinnu. Það er eðlilegt ef hann var sjálfur höfund-
urinn. Aftur á móti fer snorri mörgum orðum um Hryggjarstykki eiríks
oddssonar, þó að það rit sé notað í Morkinskinnu (sbr. íf 24, 185) og hægt
að nálgast efni þess að miklu leyti þar. Hryggjarstykki var snorra hins vegar
mikilvæg heimild við ritun Morkinskinnu.
Það sem talið hefur verið upp í 3. til 5. kafla er sterk vísbending um
að sami höfundur sé að þessum þremur verkum, og beinast sjónir þar að
snorra sturlusyni. í næstu köflum verður farið yfir nokkur atriði til frekari
stuðnings því að böndin berist að snorra.
18 Vér og oss eru reyndar fleirtölumyndir, en það skiptir ekki öllu máli í þessu samhengi.
19 Ármann jakobsson (Ármann jakobsson 2002, 273) túlkar þetta sem ritklif, en eðlilegra
virðist að þarna sé sami maður að tjá sig.