Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Page 30

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Page 30
28 Tímarit um menntarannsóknir, 4. árgangur 2007 Þáttabygging kennslukönnunar við Háskóla Íslands þátta á túlkunina. Einnig var litið til meðaltals stuðla sem lýsa því hversu stóran hluta dreifingar hvers undirprófs fyrir sig fjöldi þátta skýrir (communalities). Við val á fjölda þátta í þáttagreiningum þegar svör stúdenta voru grunneining úrvinnslunnar var samhliðagreining (parallel analysis) notuð (Horn, 1965; Humphreys og Montanelli, 1975). Aðferðin byggist á því að lesa saman tvenns konar skriðumyndrit (scree plot). Annars vegar skriðumyndrit af eigingildum (eigenvalues) sem reiknuð eru út frá gögnum rannsóknarinnar og hins vegar skriðumyndrit þar sem eigingildi eru áætluð út frá handahófsgögnum (meðaltal eigingilda í 1000 endurtekningum í handahófsgögnum). Eigingildi úr báðum áttum eru síðan teiknuð á sama myndrit og fjöldi þátta ákvarðaður út frá eigingildum fyrir ofan skriðumyndrit handahófsgagna. Val á fjölda þátta í þessari rannsókn byggist því á eigingildum sem eru hærri en eigingildi sem eru reiknuð út frá handahófsgögnum. Þessi aðferð er fræðilega mun traustari við val á þáttum en viðmið eins og að ákvarða fjölda þátta með því að velja þá þætti sem hafa eigingildi hærra en einn eða með því að nota skriðupróf (scree test) eitt og sér. Raunar virðist framangreind aðferð vera sú besta sem völ er á við ákvörðun á fjölda þátta í þáttagreiningu (Zwick og Velicer, 1986). Áður en þáttagreiningar voru gerðar var athugað í öllum tilvikum hvort gögnin uppfylltu skilyrði þáttagreiningar. Bartlettspróf (Bartlett´s test of sphericity) var marktækt (p < 0,0001) og Kaiser-Meyer-Olkin-stærð var aldrei lægri en 0,83 og í flestum tilvikum hærri en 0,90. Niðurstöður Meginásaþáttagreining – einstök svör stúdenta Í 2. töflu er niðurstaða meginásaþáttagreininga í tveimur úrtökum á 21 staðhæfingu í kennslu- könnun við H.Í. Einstök svör stúdenta í grunn- námi voru þáttagreind. Hornréttur snúningur að varimax-lausn gaf skýra niðurstöðu. Samkvæmt samhliðagreiningu (parallel analysis) eru þrír þættir í báðum úrtökum með sama inntaki. Niðurstöðurnar benda því til þess að þættirnir séu stöðugir. Inntak fyrsta þáttar er almennt og vísar til kennslu, skipulags og samskipta í námskeiði. Annar þáttur vísar til kennsluaðstöðu og sá þriðji til vinnuálags. Inntak fyrsta þáttar (þáttur I) er skýrt en almennt. Inntak annars og þriðja þáttar (þáttur II og III) er skýrt og afmarkað. Þættirnir þrír skýra rúm 59% dreifingar staðhæfinganna í úrtaki A og tæp 60% dreifingar þeirra í úrtaki B. Þættirnir þrír skýra almennt vel dreifingu einstakra staðhæfinga (h2). Þ egar leifar eru skoðaðar á mun milli raunverulegrar fylgni milli staðhæfinga og spáfylgni út frá þáttunum þrem kemur í ljós að 25 leifar eða 11% allra leifa eru hærri en 0,05 í úrtaki A og 27 leifar eða 12% þeirra í úrtaki B. Hleðslur staðhæfinga á tiltekinn þátt eru afgerandi og markverðar í öllum tilvikum. Hleðslur 14 staðhæfinga sem tilheyra fyrsta þætti eru allar 0,57 eða hærri á þennan þátt í báðum úrtökum (meðaltal hleðslna er 0,71 í báðum úrtökum). Hleðsla þessara staðhæfinga á aðra þætti (þáttur II og III) í báðum úrtökum er lág og ómarkverð (meðaltal hleðslna á þátt II og III er 0,12). Með einni undantekningu (Stúdentar hafa nægan aðgang að kennara utan kennslustunda) eru hleðslur þessara staðhæfinga á aðra þætti 0,20 eða lægri á þættina sem þær tilheyra ekki. Fimm staðhæfingar hlaða afgerandi á þátt II í báðum úrtökum. Meðaltal hleðslna þessara staðhæfinga á þátt II er 0,81 í báðum úrtökum. Hleðslur þessara staðhæfinga á aðra þætti eru lágar og ómarkverðar eða á bilinu 0,05 til 0,28 í báðum úrtökum. Tvær staðhæfingar mynda þátt III. Þessar staðhæfingar hafa afgerandi og háar hleðslur á þennan þátt (0,80 að meðaltali í báðum úrtökum) en lágar og ómarkverðar hleðslur á þátt I og II (á bilinu 0,11 til 0,19) í báðum úrtökum. Alfastuðull þáttanna þriggja í báðum úrtökum er 0,83 eða hærri. Alfastuðull tveggja þátta (þátta I og II) er 0,92 eða hærri í báðum úrtökum. Almennt er áreiðanleiki þáttanna þriggja viðunandi í báðum úrtökum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.