Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Page 62

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Page 62
60 Tímarit um menntarannsóknir, 4. árgangur 2007 brautskráðist úr þeirri deild 121 kennari, 111 karlar og 10 konur, en það réð þó ekki bót á kennaraskortinum (Lýður Björnsson, 1984). Það er athyglisvert að í Flensborgarskólanum var megináhersla á æfingakennslu og samningu ritgerða. Frumkvöðullinn Guðmundur Finnbogason vann mikið starf í skólamálum landsins í upphafi síðustu aldar með rannsóknum sínum, skrifum og fyrirlestrum. Árið 1901, þegar Guðmundur brautskráðist með meistarapróf frá Hafnarháskóla, óskuðu alþingismenn eftir því að hann setti fram tillögur að uppeldis- og menntunarmálum þjóðarinnar (Brynleifur Tobíasson, 1944) og veittu honum styrk til tveggja ára til að kynna sér þau mál erlendis. Tveimur árum síðar, árið 1903, veitti Alþingi Guðmundi aftur styrk til að kynna sér alþýðufræðslu og menntunarástand í landinu. Guðmundur sendi spurningar til prófasta og presta og leitaði upplýsinga um nemendur, námsgreinar, bækur og áhöld, kennslustaði, ferðir nemendanna og um kennarana. Hann spurði um nöfn þeirra og aldur, hjúskaparstöðu, um menntun, hvar og hve lengi þeir hefðu kennt og hvaða atvinnu þeir stunduðu auk kennslunnar. Loks spurði hann um laun þeirra úr sveitarsjóði og frá aðstandendum nemenda og árstekjur af annarri vinnu. Fram kom í könnun Guðmundar að alls kenndu þá á landinu um 415 manns, 321 karl og 94 konur, 62% þessa fólks voru ógift. Margt var fólkið mjög ungt og stundaði kennsluna fyrst og fremst sem aukavinnu. Fáir kennaranna, eða aðeins 24 (6%) höfðu gengið í kennaraskóla, um þriðjungur, eða 134 (34%), voru sjálfmenntaðir, alls 88 (21%) höfðu gengið í gagnfræðaskóla og þá höfðu 54 (13%) af kvenkennurunum gengið í kvennaskóla og 43 (10%) kennaranna voru búfræðingar (Guðmundur Finnbogason, 1905). Guðmundur komst að þeirri niðurstöðu að barnafræðslan væri langt frá því að vera í viðunandi horfi og efaðist um að þeir sem sinntu kennslu byggju yfir þekkingu og leikni í þeim kennsluaðferðum sem til þyrfti. Flesta sem stunduðu kennslu skorti þann undirbúning sem talinn var nauðsynlegur með öllum menntaþjóðum. Hann komst einnig að því að fólk með einhverja kennaramenntun hvarf oft til annarra starfa vegna þess hve illa var búið að kennurum og launin lág. Guðmundur Finnbogason vann síðan að gerð lagafrumvarps um skólaskyldu barna sem tók gildi 1907. Það gekk ekki þrautalaust að stofna eigin- legan kennaraskóla á Íslandi. Á árunum 1895– 1907 voru hvað eftir annað flutt frumvörp um kennaraskóla en þau felld hvert af öðru, ýmist vegna deilna um staðsetningu kennslunnar eða að þeim rökum var beitt að nógu margir fengjust við barnakennslu og skólinn yrði of dýr fyrir landið og kennaraefnin. Lagasetningin frá árinu 1907 um skólaskyldu barna jók samt þörfina fyrir sérstakan kennaraskóla og tók Kennaraskóli Íslands til starfa haustið 1908 sem þriggja vetra skóli. Í vígsluræðu fyrsta vetrardag 1908 sagði séra Magnús Helgason, fyrsti skólastjóri skólans, að Íslendingar hefðu lengi þurft að bíða eftir skólanum, líklega lengur en nokkur önnur þjóð sem menntuð væri talin (Magnús Helgason, 1934). Jónas Pálsson (1987), fyrrum rektor Kennaraháskóla Íslands, segir að markmið skólans og útfærslur hafi ekki verið margbrotnar en fallið að því þjóðfélagi sem með þeim átti að rækta. Um og eftir miðja tuttugustu öldina önnuðust nokkrir aðrir skólar kennaramenntun fyrir kennslu á grunnskólastigi. Kennaramenntun mátti stunda við Handíða- og myndlistaskóla sem stofnaður var 1940, Húsmæðraskóla Íslands og Íþróttakennaraskólann á Laugar- vatni sem báðir tóku til starfa 1942 og Tón- listarkóla Reykjavíkur sem útskrifaði fyrstu tónlistarkennarana árið 1959. Upp úr 1940 fór þúsund ára bændasamfélag á Íslandi að riðlast verulega, þótt rekja megi upphaf þess rofs allt til síðari hluta 19. aldar. Atvinnuhættir breyttust, þéttbýlið dró að sér vinnuafl úr sveitum og borgarsamfélag í þéttbýli var að verða til. Eftir að heimstyrjöldinni lauk 1945 fór fólki með langskólamenntun fjölgandi og það kom til landsins með ný viðhorf og breytta félagslega sýn. Áhrif þessara strauma á starfsmenntun kennara koma fram í lögum um menntun Að styrkja haldreipi skólastarfsins
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.