Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Qupperneq 65
63
Tímarit um menntarannsóknir, 4. árgangur 2007
kennaramenntunar, því í árslok 1991 var nefnd
sett á laggirnar og sérfræðingur ráðinn til að
undirbúa stofnun kennaradeildar við Háskólann
á Akureyri. Skilaði nefndin áliti þar sem færð
voru byggðapólitísk, skipulagsleg, fræðileg
og fjárhagsleg rök fyrir stofnun slíkrar deildar
(Kristján Kristjánsson, Ólafur Arngrímsson,
Trausti Þorsteinsson og Þorsteinn Gunnarsson,
1992). Stofnun deildarinnar var talin þjóna
hagsmunum landsbyggðarinnar og talið var að
hún myndi draga úr skorti á kennurum, en um
þær mundir, skólaárið 1989–90, voru kennarar
með full réttindi frá 49,6% starfandi kennara
á Vestfjörðum til 97% starfandi kennara í
Reykjavík. Formleg heimild samkvæmt lögum
(nr. 51/1992) til stofnunar kennaradeildar
við Háskólann á Akureyri var undirrituð
af menntamálaráðherra ári síðar, eða 1992.
Deildin hóf starfsemi haustið 1993 með 71
nemanda.
Þegar leikskólinn var skilgreindur sem fyrsta
stig menntakerfisins árið 1994 voru hugmyndir
um sameiningu kennara- og uppeldismenntunar
komnar á fullt skrið (Davíð Ólafsson, 2000).
Þáttaskil urðu þann 1. janúar 1998 þegar
nám leikskólakennara, íþróttakennara og
þroskaþjálfa var fært á háskólastig með lögum
(nr. 137/1997). Í lögunum fólst meira en
sameining þessara fjögurra skóla. Þau voru
fyrstu lögin sem sett voru í samræmi við
heildarlöggjöf um háskólastigið, þar sem
kveðið er á um að kennarar við háskóla
skuli hafa lokið meistaraprófi hið minnsta
eða hafa jafngilda þekkingu og reynslu að
mati dómnefndar. Jafnframt jókst sjálfstæði
Kennaraháskólans og lögin skyldu tryggja að
inntökuskilyrði í háskólann og námskröfur
svöruðu til þess sem krafist væri í sambærilegum
háskólum erlendis. Þar með staðfestu
stjórnvöld alþjóðlegar kröfur sem gerðar eru
til háskóla. Ein höfuðrökin fyrir sameiningu
skólanna fjögurra voru þau að forsendur
til rannsókna á fræðasviði skóla- og uppeldis-
mála yrðu styrktar (Björn Bjarnason, 1998).
Árið 2000 lagði starfsfólk Kennaraháskólans
mikla vinnu í stefnumótun og skilgreiningu
á framtíðarsýn háskólans sem samþykkt var í
háskólaráði í maí það ár. Ári síðar, eða í júní
2001, voru samþykktar í háskólaráði reglur
fyrir háskólann (nr. 843/2001), þar sem enn
ítarlegar var fjallað um hlutverk hans. Um
þessar mundir er í Kennaraháskóla Íslands
unnið eftir kerfisbundinni áætlun um stefnu
háskólans fyrir árin 2005–2010.
Æfingakennsla hófst strax við stofnun
Kennaraskólans árið 1908 og fór þá fyrst
fram í húsnæði skólans en síðar í ýmsum
skólum í Reykjavík. Æfinga- og tilraunaskóli
Kennaraskólans var stofnaður 1968, en
áratugum saman hafði áhugafólk á sviði
uppeldis- og fræðslumála beðið eftir stofnun
sérstaks æfingaskóla fyrir kennaranema þar
sem framkvæma mætti tilraunir og standa
að nýbreytni í skólastarfi. Í Æfingaskólanum
fór fram margvísleg tilraunastarfsemi og
þróunarstarf en sjálfur gagnrýnir fyrrum
skólastjóri skólans eigin vinnubrögð í
bókarkafla og segir að helsti veikleiki í stjórnun
sinni hafi verið hve áætlanagerð um nýbreytni
og þróunarverkefni hafi verið almenn og
einstakir þættir lítt skilgreindir. Einnig segist
hann halda að sjaldan hafi verið gert formlegt
mat eða úttekt á vinnubrögðum eða árangri
skólastarfsins (Jónas Pálsson, 2002). Jónas
gerir lítið úr eigin starfi en dregur upp mynd
af frábæru starfsfólki sem var áhugasamt,
hugmyndaríkt og ósérhlífið við erfiðar aðstæð-
ur. Þessir kennarar unnu viðamikil tilraunastörf
og má þar nefna samkennslu aldurshópa, náms-
og starfsráðgjöf, vinnubrögð í lestrarkennslu
og samstarf við foreldra; verkefni sem voru í
samræmi við það nýjasta sem var að gerast í
hinum stóra heimi. Jafnframt æfingakennslunni
og þróunarstarfinu stóðu þessir kennarar fyrir
endurmenntunarnámskeiðum fyrir starfandi
kennara og unnu að námsefnisgerð.
Í tengslum við áætlun menntamála-
ráðuneytisins um styttingu náms til stúdents-
prófs hefur aukinn þungi færst í umræðuna
um eflingu kennaramenntunar og margir
virðast á þeirri skoðun að breyta þurfi
kennaramenntuninni til að ná fram mark-
vissum breytingum á starfi kennara og
skólastarfi almennt. Rektor Háskólans á
Að styrkja haldreipi skólastarfsins