Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Side 77

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Side 77
75 Tímarit um menntarannsóknir, 4. árgangur 2007 um hæfni kennara í mannlegum samskiptum og þekkingu til að miðla þeirri hæfni. Þegar kennsluskrár Kennaraháskóla Íslands og kennaradeildar Háskólans á Akureyri eru skoðaðar kemur í ljós að þar er ekki nægilegt svigrúm til að þjálfa, kenna og ígrunda markvisst þá hæfni í mannlegum samskiptum sem alþjóðlegar yfirlýsingar (Delors, 1996) og Aðalnámskrá grunnskóla (1999) gera ráð fyrir að væntanlegir kennarar verði færir um að beita og kenna. Rannsóknir sýna nauðsyn þess að kennaranemar eigi kost á góðri menntun um mikilvægi samskipta, ígrundun eigin hugsana og annarra og að þeir fái stuðning við mótun eigin sjálfsvitundar, bæði faglega og persónulega, svo þeir megi eflast og verða færari um að sinna þessum mannlegu þáttum (Hafþór Guðjónsson, 2004; Kristín Aðalsteinsdóttir, 2000 og 2002; María Steingrímsdóttir, 2005; Ragnhildur Bjarnadóttir, 2005). Rannsóknir Kristínar Aðalsteinsdóttur (2000 og 2002) gefa vísbendingar um að viðmót kennara og skilningur þeirra á eigin viðmóti geti haft áhrif á nám nemenda, samskiptin í skólastofunni, samstarf við aðra kennara og foreldra. Ætla má af niðurstöðum hennar að of margir kennarar (35%) hafi ekki nægilegan skilning á eigin viðmóti og samskiptum sínum við nemendur. Erfitt getur verið að leita skýringa á slakri sjálfsvitund kennara eða litlum skilningi þeirra á mikilvægi samskipta. Ein skýringin getur legið í því að kennaramenntunin hér á landi tryggi ekki nægilega markvissa þjálfun þeirra í mannlegum samskiptum. Hart (2000) hefur sýnt fram á að stigbundið ferli vísvitandi íhugunar auðveldi kennurum að átta sig á eigin hegðun eða viðmóti. Með því að leggja sig fram og ígrunda eigin hugsun segir Hart að kennarar geti eflt innsæi sitt og dómgreind. Staða kennaramenntunar nú um stundir er árangur margra ára þróunar. Á síðustu árum virðist framvindan hafa verið kerfisbundin og samvinna sem áður var ekki fyrir hendi hefur náðst milli stjórnvalda og kennaramenntunar- stofnana. Fagna má þeirri samvinnu og væntanlegri endurskipulagningu kennara- námsins í landinu, en meginmarkmið þeirra breytinga sem framundan eru er að efla starfsmenntunina sem háskólarnir veita, en jafnframt að bæta aðgang ungs fólks að framhaldsnámi. Markmið þessi falla að Bologna-samþykktinni sem miðar að því að prófgráður við háskóla í Evrópu verði samræmdar og innleitt verði námsskipulag sem í meginatriðum byggist á tveimur þrepum, grunnnámi og framhaldsnámi. Vænlegasta leiðin til að efla starfsmenntunina er talin felast í því að nemendum gefist kostur á að ljúka meistaragráðu (M.Ed.) áður en þeir hefja störf. Stefnt er að því að grunnnámið taki áfram þrjú ár en námi til starfsréttinda ljúki eftir fimm ára nám (Stefna Kennaraháskóla Íslands, 2005–2010; Háskólinn á Akureyri, 2005). Vegna samræmingar gefur Bologna- samþykktin einnig möguleika á að fylgst sé með inntaki náms og kennslu í heild í háskólum. Breytingar á skipulagi kennaramenntunar krefjast fjármagns, þekkingar, samvinnu og næms skilnings stjórnmálamanna, annarra ráðamanna og fagfólks á ferli breytinga. Sagan sýnir svo ekki verður um villst að oft hafa ráðamenn haft lítinn skilning á mikilvægi kennaramenntunar. Á allra síðustu áratugum hefur, fyrir forystu Kennaraháskólans í samvinnu við Menntamálaráðuneytið, skapast vettvangur fyrir breytt skipulag og leiðir opnast til að raungera hugmyndafræði sem þarf að vera grundvöllur kennarastarfsins. Kennarastarfið þarf að vera starf sérfræðings í uppeldi og kennslu. Beina þarf athyglinni að hæfni kennaranema og kennara í uppeldis- og kennslufræðum; að þeir skilji námslegar, félagslegar og tilfinningalegar þarfir og hæfni nemenda og búi almennt yfir þeirri dómgreind sem til þarf til að sinna þessu mikilvæga starfi, – hæfni sem er í samræmi við niðurstöður rannsókna og yfirlýsingar um skilyrði menntunar. Að styrkja haldreipi skólastarfsins
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.