Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Page 103

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Page 103
Þáttabygging og áreiðanleiki íslenskrar þýðingar á kennaralista Conners Einar Guðmundsson og Emilía Guðmundsdóttir Háskóla Íslands Kennaralisti Conners (Conners’ Teacher Rating Scale-Revised) var þýddur úr ensku á íslensku og lagður fyrir í handahófsúrtaki 182 kennara barna á aldrinum 6 til 9 ára. Löng útgáfa listans samanstendur af 59 staðhæfingum. Í langri útgáfu kennaralistans í Bandaríkjunum eru sex af 13 kvörðum raunvísir. Þeir voru myndaðir með þáttagreiningu og innihalda 38 staðhæfingar. Í íslenska úrtakinu komu fram fimm þættir þegar meginásaþáttagreining (principal axes factor analysis) var gerð með promax-snúningi á 38 staðhæfingum í langri útgáfu kennaralistans. Þættirnir fimm skýra 57,8% af heildardreifingu staðhæfinganna. Inntak fjögurra þátta (Hugrænn vandi/Athyglisbrestur, Félagslegur vandi, Kvíði-feimni, Fullkomnunarárátta) er eins í íslenska úrtakinu og í Bandaríkjunum en tveir þættir í Bandaríkjunum (Mótþrói og Ofvirkni) mynda til samans einn þátt á Íslandi. Fylgni milli þátta var almennt lítil. Sex af sjö klínískum kvörðum í langri útgáfu kennaralista Conners í Bandaríkjunum eru að mestu eins á Íslandi. Þessir sex kvarðar eru: Heildartala Conners: Samantekt og tveir undirkvarðar (Heildartala Conners: Tilfinningalegur óstöðugleiki; Heildartala Conners: Eirðarleysi-hvatvísi) og DSM-IV: Samantekt og tveir undirkvarðar (DSM-IV: Athyglisbrestur; DSM-IV: Ofvirkni-hvatvísi). Heildartala athyglisbrests með ofvirkni (AMO) myndar hins vegar tvo þætti á Íslandi. Í stuttri útgáfu kennaralista Conners komu fram tveir þættir, Mótþrói-ofvirkni og Hugrænn vandi/Athyglisbrestur. Alfastuðlar kvarða í stuttri útgáfu kennaralista Conners fyrir drengi og stúlkur eru 0,85 eða hærri. Alfastuðlar kvarða í langri útgáfu kennaralista Conners fyrir drengi og stúlkur eru í fjórum tilvikum af 24 lægri en 0,80, í sex tilvikum á bilinu 0,80 til 0,89 og í 14 tilvikum af 24 0,90 eða hærri. Löng og stutt útgáfa á kennaralista Conners er ekki nothæf í núverandi mynd. Athuga þarf eiginleika listans nánar í stærra úrtaki og staðla áður en það er gert. Aftur á móti benda niðurstöðurnar til þess að frekari rannsóknarvinna geti skilað nothæfum atferlislista við skimun og greiningu geðrænna vandkvæða hjá börnum og unglingum. Atferlislistar eru gjarnan notaðir til að afla upplýsinga um hegðun, líðan og samskipti barna og unglinga í skimun, greiningu og meðferð á geðrænum vanda eða hegðunarvanda. Algengast er að foreldrar og kennarar svari spurningum um hegðun, líðan og samskipti barna og unglinga þegar matið fer fram. Notagildi atferlislista byggist einmitt á því að meta hegðun á líðandi stund en ekki löngu liðna atburði. Jafnframt beinist matið að sýnilegri hegðun fremur en skapgerðarþáttum. Atferlislistar eru gagnlegir til að bera saman mat þeirra sem umgangast barn (t.d. móður, föður og kennara) í mismunandi aðstæðum (t.d. heima og í skóla) og sjálfsmat barns eða unglings. Með þessu móti er hægt að skoða samkvæmni í hegðun og samskiptum barns eða unglings sem gagnast í greiningu hegðunarvandkvæða. Að auki gagnast mat ólíkra matsaðila á vanda barns, í sömu eða ólíkum aðstæðum, við ákvarðanir um íhlutun af einhverju tagi og mat á því sem gert er til hjálpar barni eða unglingi. Þrátt fyrir misræmi í mati mismunandi 101Tímarit um menntarannsóknir, 4. árgangur 2007, bls. 101–118 Tímarit um menntarannsóknir, 4. árgangur 2007 Hagnýtt gildi: Kennarar eru oft beðnir um að svara atferlislistum um hegðun og líðan nemenda sinna. Hagnýtt gildi rannsóknarinnar fyrir kennara og aðra sérfræðinga felst í kynningu á notagildi og fræðilegu samhengi þessara lista.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.