Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Page 123
121
Tímarit um menntarannsóknir, 4. árgangur 2007
Breytingar á uppeldissýn í leikskóla
athugana á venjulegum fjölskyldum þar sem
eðlileg samskipti áttu sér stað milli foreldra
og ungra barna. Aðferðin hefur víða verið
notuð með góðum árangri, t.d. í leikskólum í
Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Drugli (1994)
telur aðferðina efla samstarfshæfni starfsfólks
í leikskólum og Dinsen og Rasmussen (2000)
telja marte meo aðferðina hafi skilað foreldrum
öflugum uppeldisaðferðum sem meðal annars
felast í því að orða hluti og tilfinningar og að gera
foreldrum auðveldara að lesa í líkamstjáningu
og ná augnsambandi við börn sín. Aarts (2000)
leggur áherslu á mikilvægi framangreindra
atriða í uppeldislegum samskiptum auk þess
að kennarar geri sanngjarnar kröfur til barna og
taki ábyrgð á uppeldisaðstæðunum. Baumrind
og Lamb (1978) komust að þeirri niðurstöðu að
blanda af hlýju, ábyrgð og jákvæðri hvatningu
leiddi til þess að börn yrðu sjálfstæðari,
öðluðust meiri félagsfærni, næðu betri stjórn
á tilfinningaviðbrögðum, þróuðu sterkari
sjálfsmynd og yrðu óháðari staðalmyndaðri
hegðun kynjanna en börn sem alast upp við
valdboð eða afskiptaleysi. Lýsingar Aarts
(2000) á gæðum í samskiptum eru í samræmi
við niðurstöður Baumrind (1967, 1971 og
1980) um lýðræðislegar uppeldisaðferðir.
Í marte meo aðferðinni beitir kennarinn
ákveðnum svipbrigðum, hljómfalli í rödd,
augnsambandi og orðar bæði sínar eigin
tilfinningar og barnsins. Samskiptin hafa
ákveðna uppbyggingu og hrynjandi eins og
í samtali (dialog). Samskiptunum má líkja
við þrískipt ferli; upphaf, miðbik og endi.
Í samskiptunum er víxlverkun milli þess
að bregðast við, tjá sig um það sem fyrir
augu ber og öðlast sameiginlegan skilning
á inntakinu. Gæði samskiptanna eru fólgin í
þessari víxlverkun og jákvæðum viðbrögðum
kennara (Aarts, 2000; Øvreeide og Hafstad,
1998; Sørensen, 1999).
Rannsóknir Dinsen og Rasmussen (2000) og
Drugli (1994) á marte meo aðferðinni sýndu að
hún skerpti skilning og þekkingu starfsfólks á
þörfum barna og einnig að myndbandsupptökur
af mismunandi námsaðstæðum og samskiptum
væru árangursríkasta leiðin til að þróa samskipti
og kennsluaðferðir. Niðurstöður Drugli
(1994) sýndu að skipta má námsaðstæðum í
leikskólanum í þrennt; skipulagðar aðstæður,
hálfskipulagðar aðstæður og óskipulagðar
aðstæður en flokkarnir ráðast af því að hve
miklu leyti stjórn aðstæðnanna er í höndum
starfsmanna eða barna. Áðurnefndir flokkar
voru notaðir í rannsókninni.
Menntun kennara virðist hafa áhrif á
uppeldissýn og kennsluaðferðir (sjá t.d. Barnett,
2004; Berk, 1985; Howes, 1997; Kontos,
Howes, Shinn, og Galinsky, 1995; Whitebook,
2003). Samkvæmt niðurstöðum Barnett
(2004) vinna leikskólakennarar markvissar
en leiðbeinendur að eflingu málþroska og
sköpun tækifæra til að efla vitsmunaþroska
og félagsfærni en leiðbeinendur. Niðurstöður
Crosser (2002) gefa til kynna að kennarar sem
beita lýðræðislegum uppeldisaðferðum þekki
stöðu hvers barns fyrir sig. Í lýðræðislegum
uppeldisaðferðum er barnið virkur þátttakandi
í námi sínu og tekur ábyrgð á því í samræmi
við þroska á hverjum tíma (Baumrind, 1967,
1971). Niðurstöður Barnett (2004) benda
hins vegar til þess að leiðbeinendur með
litla eða enga uppeldismenntun séu líklegri
til að beita valdboðsaðferðum í uppeldi
en leikskólakennarar og hafi að jafnaði
takmarkaðri skilning á menntunarhlutverki
leikskólans. Samkvæmt kenningum Baumrind
um mismunandi uppeldisaðferðir foreldra
og kennara einkennist valdboðsuppeldi af
mikilli stjórnun og áherslu á reglur og hlýðni
(Baumrind, 1967, 1971, 1980; Baumrind og
Lamb, 1978). Þótt sama uppeldisaðferðin sé
oft ríkjandi hjá sama aðila beita bæði foreldrar
og kennarar blönduðum aðferðum (Crosser,
2002; Baumrind og Lamb, 1978).
Í rannsóknum í leikskólum á Íslandi
hefur komið fram að þátttaka starfsfólks í
hlutverkaleik barna er lítil og börn eru oft
án afskipta eða leiðbeiningar frá starfsfólki
(Jóhanna Einarsdóttir, 1999). Niðurstöður
Hrannar Pálmadóttur (2004) benda til þess
að í íslenskum leikskóla sé litið á samskipti
sem einangraðan þátt en ekki hluta af námi
sem fram fer í leik og hópstarfi. Í niðurstöðum