Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Page 142
140
Tímarit um menntarannsóknir, 4. árgangur 2007
Kennaranemum í Noregi er kennt að takast
á við fjölmenningarlega kennslu, en það er gert
með ólíkum hætti í hinum ýmsu kennaramennt-
unarstofnunum landsins. Í opinberri námskrá er
lögð áhersla á þær miklu breytingar sem orðið
hafa í þjóðfélaginu og að kennaramenntun þurfi
að taka mið af þeim breytingum. Háskólinn
í Osló býður síðan upp á meistaranám með
áherslu á fjölmenningarlegan skóla og menntun
og þróun í alþjóðlegu samhengi. Þetta er eina
námsframboðið af þessu tagi í landinu. Námið
á að búa nemendur undir að takast á við
þróunarstörf, bæði innanlands og erlendis, og
efla þekkingu þeirra á ólíkum samfélögum
og hvernig vinna megi að alþjóðlegum og
fjölmenningarlegum málefnum út frá upp-
eldis- og kennslufræðilegum sjónarmiðum
(Högskolen i Oslo, 2006).
Ísland
Ísland er um 300.000 manna smáþjóð. Þjóðin
hefur lengi verið einsleit en á síðustu árum
hefur innflytjendum fjölgað hratt og menningin
orðið litríkari. Samkvæmt upplýsingum frá
Hagstofu Íslands (2006a) fengu 726 manns af
erlendum uppruna íslenskan ríkisborgararétt
árið 2005, en 161 árið 1991. Hlutfall erlendra
ríkisborgara af mannfjölda í landinu árið 2005
var 4,6%. Í upplýsingum Hagstofunnar kemur
fram að alls hafa 13.778 manns fengið hér
ríkisborgararétt frá árinu 1981. Flestir hafa
komið frá Póllandi eða 3.221. Hins vegar hefur
fjöldi fólks frá öðrum löndum verið svipaður
á þessu árabili, t.d. komu 903 frá Danmörku,
781 frá Þýskalandi, 771 frá Filippseyjum og
703 frá fyrrum Júgóslavíu (Hagstofa Íslands,
2006b).
Íslensk stjórnvöld hafa nýverið (2007)
mótað stefnu í málum innflytjenda. Í lögum
um leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla
hefur verið lögð áhersla á að hlutverk skólanna
sé að efla alhliða þroska allra nemenda svo
að þeir verði sem best búnir undir að taka
virkan þátt í síbreytilegu lýðræðisþjóðfélagi
(Lög um leikskóla, 1994; Lög um grunnskóla,
1995; Lög um framhaldsskóla, 1996). Um
skyldur kennara segir m.a. að kennarar skuli
temja nemendum víðsýni og efla skilning
þeirra á kjörum fólks og umhverfi. Þess skal
sérstaklega gætt að allir nemendur fái sem
jöfnust tækifæri til náms og komið skal í
veg fyrir mismunun vegna uppruna, kyns,
búsetu, stéttar, trúarbragða eða fötlunar (Lög
um grunnskóla, 1995).
Stutt virðist síðan kennaramenntunarstofn-
anir hér á landi fóru að búa nemendur undir
fjölmenningarlega kennslu. Haustið 2002 hófst
í fyrsta sinn kennsla um fjölmenningu með
sérstökum námskeiðum við framhaldsdeild
Kennaraháskóla Íslands (KHÍ). Kennslan
hófst með 15 eininga námi á námsbrautinni
Fjölmenning. Haustið 2004 var boðið upp
á sérhæfingu í fjölmenningu (30 einingar)
á sömu námsbraut. Um þessar mundir er
námskeiðið sérstök námsleið í nýju M.Ed.
námi í uppeldis- og menntunarfræðum við
KHÍ. Þetta eru framfarir, en um leið er ljóst að
þetta nám nær aðeins til afar fárra nemenda.
Í grunndeild KHÍ er kennt um afmarkaða
þætti fjölmenningarsamfélagsins og skóla í
ýmsum skyldunámskeiðum, auk þess er hægt
að sérhæfa sig frekar á valnámskeiðum. Unnið
er nú (2006) að því að festa enn frekar í
sessi kennslu um fjölmenningu í grunndeild
kennaranáms (Hanna Ragnarsdóttir, 2006).
Ekki eru í boði sérstök námskeið um fjöl-
menningu við kennaradeild Háskólans
á Akureyri, en málefni barna af erlendum
uppruna eru þáttur í ýmsum námskeiðum, svo
sem námskeiðinu Nútímasamfélagið.
Skóli án aðgreiningar
Í hugmyndinni um skóla án aðgreiningar felst
meðal annars það að allir nemendur eigi kost á
námi við hæfi. Það á einnig við um nemendur
frá öðrum löndum, nemendur af erlendum
uppruna. Ef vinna á samkvæmt hugmyndum
skóla án aðgreiningar getur það falið í sér
að breyta þurfi hefðbundnu fyrirkomulagi og
hugsun innan skólans, endurmeta starfsvenjur
hans og stefnu og vinna skipulega að breyting-
um þannig að skólinn verði raunverulega fyrir
alla. Litið er á námskrá í víðri merkingu og
kennarar vinna sameiginlega að markmiðum
Fjölmenningarleg kennsla í Manitoba í Kanada, í Noregi og á Íslandi