Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Síða 146

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Síða 146
144 Tímarit um menntarannsóknir, 4. árgangur 2007 Niðurstöður Undirbúningur kennara Enginn kennaranna átján í löndunum þremur sagðist hafa fengið kennslu um fjölmenningu eða fjölmenningarlega kennslu í kennaranámi sínu en margir þeirra töldu sig hafa öðlast þekkingu um málið, vegna uppruna síns, af eigin reynslu, með annarri menntun og á námskeiðum. Í Manitoba höfðu tveir kennarar af sex sótt námskeið um frumbyggja og fjölmenningu, annars voru kanadísku kennararnir sammála um að þeir hefðu lært mest af því að vinna og búa í fjölmenningarlegu umhverfi. Tveir þessara kennara voru innflytjendur og einn var úr frumbyggjafjölskyldu. Þeir töldu allir þrír að reynsla sín og upplifun af því að vera í minnihlutahópi gerði þá færari um að skilja og koma til móts við þarfir barna af hvaða þjóðerni sem væri. Í Noregi höfðu tveir kennaranna menntun í sérkennslufræðum sem þeir töldu nýtast vel við fjölmenningarlega kennslu og hafði annar þeirra sótt námskeið um uppeldisfræði fyrir innflytjendur. Á Íslandi höfðu tveir kennaranna sótt námskeið sem þeir töldu að hefðu gagnast við fjölmenningarlega kennslu. Bæði norsku og íslensku kennararnir töldu að lífsreynsla og reynsla af því að vinna með ólíkum börnum hefði gagnast sér best við að koma til móts við þarfir allra nemenda, en þeir voru sammála um að nauðsynlegt hefði verið að fjalla um fjölmenningu í grunnámi þeirra. Margbreytileg menning Í svörum kanadísku kennaranna kom fram augljós ábyrgðartilfinning. Þeim bar yfirleitt saman og sögðu að í Kanada mynduðu ólíkir menningarheimar sérstaka heild. Ljóst var af svörum þeirra að þeim þótti fjölbreytileiki mannlífsins það mikill að það væri nánast ekki sérstakt lengur að vera af erlendum uppruna. Þeir greindu samt sem áður skil á milli nemenda sem fæddir væru í Kanada og þeirra sem nýlega hefðu flutt til landsins. Þeir fyrrnefndu lifðu auðveldara lífi, tungumálið væri þeim síður fjötur um fót og þeir hefðu meira fé á milli handanna. Þeim bar saman um að börn af erlendum uppruna hefðu mikla aðlögunarhæfileika, væru metnaðarfull og dugleg þrátt fyrir tungumálaerfiðleika í upphafi. Það sem helst væri ólíkt og fram kæmi í skólanum tengdist þjóðlegum venjum, mat, hátíðum og klæðnaði. Þessum kennurum bar saman um að nauðsynlegt væri að stuðla að því að hvert og eitt barn gæti verið stolt af uppruna sínum. Þeir töldu að kennarar þyrftu að þekkja ólíka menningu og skólinn þyrfti að gera ráðstafanir til að mæta þörfum allra barna. Námskráin þyrfti að höfða til allra og sérstaka áherslu þyrfti að leggja á tungumálanám nemenda sem ekki hefðu náð tökum á opinberu tungumálununum. „Börn af ólíku þjóðerni bera sömu tilfinningar og önnur börn og þurfa öll siðferðilegt uppeldi,“ sagði einn kennaranna. Því þyrfti bekkjarbragurinn að einkennast af viðurkenningu, virðingu og hjálpsemi. Kennararnir voru sammála um að tekið væri á siðfræðinni með ýmsu móti og með margs konar námsefni og var það staðfest í vettvangsathugunum. Viðtölin við norsku kennarana sýndu ólík viðbrögð við spurningum um margbreytilega menningu innan skóla og fram komu vísbendingar um að kennarar fríi sig ábyrgð gagnvart börnum af erlendum uppruna. Nokkuð bar á mótsögnum í svörum kennaranna en einnig á milli kennara. Á meðan einn kennari sagði að hann liti á það sem sjálfsagðan hlut að nemendur kæmu frá öðrum löndum sagðist annar ekki sjá gildi þess að fólk af ólíkum uppruna byggi saman. Þessi síðarnefndi kennari virtist áhugalaus um að mæta þörfum nemenda af erlendum uppruna og sagði það skyldu annarra innan skólans. Hann bætti því við að þessir nemendur ættu að aðlagast norskri menningu. Fjórir kennarar töluðu um að skil væru á milli „þessa fólks“ og Norðmanna. Þá var miðað við efnahagslega stöðu, en kennararnir töluðu allir um að fólk af erlendum uppruna byggi við verri efnahag en Norðmenn. Kennari sem taldi börn af erlendum uppruna hafa jákvæð áhrif á aðra Fjölmenningarleg kennsla í Manitoba í Kanada, í Noregi og á Íslandi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172

x

Tímarit um menntarannsóknir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.