Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Síða 148

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Síða 148
146 Tímarit um menntarannsóknir, 4. árgangur 2007 barnalegt og spyrði óviðeigandi spurninga. Kennarinn taldi nemandann skorta eðlilega sjálfsstjórn til að „loka munninum“. Greinilegur munur var á viðhorfum kennaranna í löndunum þremur. Kennararnir í Manitoba virtust bæði í viðtölunum og í vettvangsathugunum meðvitaðir um stöðu nemenda og vinna markvisst að því að jafna hana sem best. Ekki er með því ætlast til að allir séu eins eða lagi sig að tiltekinni menningu heldur að allir geti gefið og þegið, verið stoltir af sér og uppruna sínum og lagt þannig sitt til nýrrar kanadískrar menningar. Í Noregi og á Íslandi bar annars vegar á að lagt væri kapp á að laga börnin að háttum skólastarfs og samfélags og hins vegar virtist sem aðgerðaleysi ríkti varðandi stöðu þeirra. Einstaklingsþarfir nemenda Í Manitoba útbjuggu kennararnir yfirleitt ekki einstaklingsnámskrá vegna tungumálaerfið- leika barnanna. Hins vegar fá nemendur stuðning sem fer yfirleitt fram inni í bekk. Kennararnir töldu að vegna tungumálsins og erfiðleika við að læra það hefðu nemendur af erlendum uppruna öðruvísi þarfir en aðrir nemendur í bekknum. Þeir þyrftu t.d. aðstoð við að læra um ríkjandi venjur og siði og best væri að aðstoða nemendur með ýmiss konar samvinnuverkefnum og fjölbreyttu vali. Fram kom að nemendur með takmarkaða enskukunnáttu fengju einstaka sinnum sérstaka tungumálakennslu í upphafi skólagöngu og færu þá stundum út úr bekk í sérkennslu en það væru mótsagnakennd skilaboð í skóla án aðgreiningar þar sem áhersla er á samkennd og virðingu fyrir einstaklingsmun. Mikil áhersla er lögð á að nemendur af erlendum uppruna í Noregi læri norsku. Kennslan fer oftast fram innan bekkjarins en stundum eru nemendur teknir úr bekk í sérkennslu. Skiptar skoðanir voru meðal kennaranna á því hvort væri betra fyrir nemandann. Tveir kennaranna sögðu að gerð væri einstaklingsnámskrá fyrir nemendurna og þeir sögðust gera minni námslegar kröfur til barna af erlendum uppruna til að byrja með og aðlaga viðfangsefni og kröfur. Það sýndi sig í vettvangsathugunum að nemendur unnu oft saman í hópum þó ekki væru þeim beinlínis kennd vinnubrögð samvinnunáms. Einn kennaranna taldi betra fyrir nemanda sinn að vinna einn meðan hann hefði ekki náð tökum á málinu en í ljós kom að nemandinn dró sig í hlé félagslega. Allir norsku kennararnir sögðu að sjálfsmynd nemenda af erlendum uppruna væri léleg, þeim fyndist þeir ekkert geta og væru hræddir um að gera vitleysu. Ekkert kom fram sem benti til að markvisst væri tekið á þessum vanda. Íslensku kennararnir sögðust yfirleitt ekki gera einstaklingsnámskrá fyrir nemendur af erlendum uppruna en þegar þeir væru í sérstakri málþjálfun hjá sérkennara væru þeir með séráætlun þar. Kennararnir virtust ekki þekkja vel til þeirra áætlana. Einn kennari gerði einstaklingsnámskrá í samvinnu við annan kennara með áherslu á tungumálið. Flestir kennaranna sögðust oft aðlaga verkefni jafnóðum og gera minni kröfur til þessara nemenda. Einn kennari hafði ekki upplýsingar um gengi nemanda síns í öðrum greinum en þeim sem hann kenndi sjálfur og hafði ekki upplýsingar frá foreldrum þó vandræði væru með heimanámið. Kennarar virtust oft ekki átta sig á því að þessir nemendur hefðu aðrar þarfir en hinn almenni nemandi. Einn kennari sagði að það væri hans skoðun að það væri gott fyrir börn af erlendum uppruna að taka þátt í samvinnunámi, það væri leið til tjáningar og þannig lærðist tungumálið. Þessir kennarar kváðust flestir nota fjölbreyttar kennsluaðferðir og hópvinnu en oft væri vandasamt að velja í hópa. Ekki kom fram af hverju svo væri. Fram kom sú skoðun hjá aðeins einum kennara að hann teldi að gott væri fyrir nemandann að vera í mikilli samvinnu og samskiptum, tengjast öðrum og læra málið. Vettvangsathuganirnar í Noregi og á Íslandi sýndu að það sem í fljótu bragði leit út fyrir að vera samvinnunám (því nemendur sátu saman í hópum) var í raun einstaklingsvinna og hver og einn vann út af fyrir sig. Tungumál Í skólunum sem heimsóttir voru í Manitoba Fjölmenningarleg kennsla í Manitoba í Kanada, í Noregi og á Íslandi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172

x

Tímarit um menntarannsóknir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.