Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Page 159

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Page 159
TUM: Það er útbreitt viðhorf að menntun skapi hagvöxt. Er það svo? AW: Það er ekki svo einfalt samband þarna á milli. Því miður eru þróunarríki víða um heim að eyða formúum í menntun án þess að hagvöxtur fylgi í kjölfarið. Þar með er ég ekki að segja að þróað hagkerfi geti þrifist án menntaðs fólks. Auðlegð krefst ákveðinnar menntunar. En það er ekki kjarni málsins. Spurningin er frekar hvort stjórnmálamenn eigi að leggja allt kapp á að sem flestir fari í háskóla, í þeirri trú að án þess verði enginn hagvöxtur. Ég held það sé mikill misskilningur. Í fyrsta lagi verður fólk sér ekki endilega úti um menntunina sem gagnlegust er fyrir efnahagslífið. Stjórnmálamenn keyra menntakerfið áfram með áætlanagerð í stað þess að láta fólk sjálft um að bregðast við þörfinni þegar og ef hún verður til. Það er ekki eins og það séu miklar gloppur í þekkingu vestrænna þjóða sem bráðliggi á að bæta úr. Í flestum tilfellum dugir góð almenn menntun mjög vel öllum þeim sem vilja sýna frumkvæði í atvinnulífinu. Og ef það er þörf fyrir ákveðna sérþekkingu er mun líklegra að hún dafni samhliða atvinnugreininni sem þarfnast hennar. Það er ekki hægt að búa sérþekkingu til fyrirfram, ekki hægt að mennta fólk núna í einhverju sem búist er við að mikil þörf verði fyrir eftir 10 ár. Þetta þarf að gerast samhliða því sérþekking úreldist mjög fljótt. Það er út í hött að ímynda sér að það hefði verið hægt að sjá fyrir 20 árum hvaða þekkingu við þyrftum Menntunargildran Viðtal við Alison Wolf, prófessor við King‘s College í London. Kristín Jónsdóttir, Kennaraháskóla Íslands og Ragnar F. Ólafsson, Námsmatsstofnun Á fundi forsvarsmanna samtaka norrænna háskólamanna á vegum Bandalags háskólamanna í Reykjavík 22. – 24. ágúst s.l. flutti Alison Wolf fyrirlestur sem bar yfirskriftina Æðri menntun – magn og gæði? Eða jafnvægi þar á milli? Í viðtali við Tímarit um menntarannsóknir ræddi Alison um stefnumótun í menntamálum, gæði skólastarfs, skólakerfið á Vesturlöndum, kennaramenntun, pípulagnir og konur á vinnumarkaði. Ferill: Alison Wolf er starfandi prófessor við King‘s College í London og hún hefur lengi kennt við Institute of Education, University of London. Sérsvið hennar eru stjórnun og starfsþróunarmál. Jafnframt er hún dálkahöfundur og skrifar reglulega um menntamál í Times Higher Education Supplement. Alison hefur lengi fengist við rannsóknir á vinnumarkaðnum, hagvexti og eftirspurn eftir menntun, og möguleikum skólakerfisins til að bregðast við og veita viðeigandi menntun og starfsþjálfun. Hún er einnig sérfræðingur í námsmati, einkum hæfnismati í starfsmenntun og sérfræðimenntun. Alison lauk M.A. og M.Phil.-gráðum frá University of Oxford og hún stundaði einnig nám við Université de Neuchâtel í Sviss. Að loknu námi starfaði hún í Bandaríkjunum um tíu ára skeið þar sem hún vann við stefnumótun en sneri að því búnu heim til rannsóknarstarfa í Bretlandi. Bók hennar Does Education Matter? Myths about education and economic growth kom út árið 2002 og hlaut verðskuldaða athygli. 157Tímarit um menntarannsóknir, 4. árgangur 2007, 157–163 Tímarit um menntarannsóknir, 4. árgangur 2007
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.